Andstaða við gjaldtöku í jarðgöngum mismikil eftir því hvaða flokk fólk kýs

Kjósendur Viðreisnar eru líklegastir til að styðja gjaldtöku í jarð­göngum en kjósendur Sósíalista­flokksins eru líklegastir til að vera andvígir gjaldtöku, samkvæmt niður­stöðum úr könnun Maskínu á afstöðu til gjaldtöku í öllum jarð­göngum á Íslandi.

Alls segjast 55 prósent svarenda í könnun Maskínu fremur eða mjög andvíg gjaldtöku í öllum jarðgöngum á Íslandi.
Alls segj­ast 55 pró­sent svar­enda í könnun Maskínu fremur eða mjög and­víg gjald­töku í öllum jarð­göngum á Íslandi. Mynd: Bára Huld Beck

Áform stjórn­valda um að stofna opinbert hluta­félag um uppbyggingu og rekstur samgöngu­innviða fela í sér gjaldtöku í jarð­göngum á Íslandi. Í greinar­gerð með samgöngu­áætlun 2020 til 2034 kom fram að stefnt væri að gjaldtöku af umferð í jarð­göngum á Íslandi til að fjármagna rekstur og viðhald ganganna sem og hluta framkvæmda­kostnaðar nýrra jarðganga.

Nú er í pípunum að gera frumvarp til laga um heimild til að stofna áðurnefnt hluta­félag og þar með hefja gjaldtöku, líkt og greint var frá þann 18. júlí á samráðs­gátt stjórn­valda.

Í könnun Maskínu sem gerð var dagana 20. til 25. júlí kemur fram að meirihluti lands­manna er andvígur gjaldtöku í jarð­göngum, en alls svöruðu 55,1 prósent svarenda, eða 565 manns, því til að vera mjög eða fremur andvíg gjaldtöku. Spurt var: Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu fyrir­hugaðri gjaldtöku í öllum jarð­göngum á Íslandi? Hlynntir eða mjög hlynntir gjaldtöku voru 22,2 prósent svarenda, alls 228 manns, en þeir sem merktu við svar­möguleikann í meðallagi voru ögn fleiri, 232 einstaklingar eða 22,6 prósent svarenda.

Talsverður munur á afstöðu eftir flokkum

Kjósendur Viðreisnar eru líklegastir til að styðja gjaldtöku í jarð­göngum á Íslandi en kjósendur Sósíalista­flokksins eru líklegastir til að vera andvígir gjaldtöku, samkvæmt niður­stöðum úr könnun Maskínu á afstöðu fólks til gjaldtöku í öllum jarð­göngum á Íslandi.

Alls eru 78 prósent kjósenda Sósíalista­flokksins mjög eða frekar andvíg gjaldtöku, 16 prósent svara í meðallagi og aðeins 5 prósent segjast fremur hlynntir en enginn kjósenda sósíal­ista segist mjög hlynntur gjaldtöku.

Andstaða við gjald­tökuna er einnig yfir meðaltali hjá kjósendum Flokks fólksins, en 77,9 prósent kjósenda flokksins eru mjög eða frekar andvígir gjaldtöku, 8,3 prósent svara í meðallagi og 13,9 prósent eru mjög eða fremur hlynnt gjaldtöku.

Þá eru 64,3 prósent kjósenda Miðflokksins mjög eða frekar andvíg gjaldtöku, 57 prósent kjósenda Pírata og 54,7 prósent kjósenda Samfylkingar.

Kjósendur Viðreisnar jákvæðari en kjósendur stjórnarflokka

Svarendur sem segjast kjósa Viðreisn eru líklegastir til að vilja gjaldtöku, en alls eru 38,7 prósent fremur eða mjög hlynnt gjaldtöku í jarð­göngum, 25 prósent í meðallagi og 36,3 prósent mjög eða fremur andvíg.

Stuðningur kjósenda stjórnar­flokkanna við áform stjórn­valda um gjaldtöku í jarð­göngum er töluvert minni en kjósenda Viðreisnar.

Mestur stuðningur er hjá kjósendum VG, en úr þeim hópi segjast 32 prósent mjög eða fremur hlynnt áformum um gjaldtöku, 31,2 prósent svara í meðallagi en 36,7 prósent kjósenda VG eru mjög eða fremur andvíg áformunum um gjaldtöku.

Af þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðis­flokk eru 27,6 prósent fremur eða mjög hlynnt gjaldtöku í jarð­göngum, 28,2 prósent svara í meðallagi en 44,2 prósent kjósenda Sjálfstæðis­flokks eru mjög eða fremur andvíg gjaldtöku.

Meira en helmingur kjósenda Framsóknar­flokksins, eða 51,5 prósent, segist mjög eða fremur andvígur gjaldtöku, 23,4 prósent kjósenda flokksins svara í meðallagi en innan við fjórðungur, eða 24,2 prósent, er fremur eða mjög hlynntur gjaldtöku.

Mest andstaða við gjaldtöku á Austurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum

Þegar afstaða svarenda er skoðuð eftir búsetu sést að íbúar í Reykjavík og nágranna­sveitar­félögum á höfuð­borgar­svæðinu eru líklegri til að vera hlynntir áformum um gjaldtöku en íbúar annars staðar á landinu. Mest andstaða við áformin er hins vegar á Vestur­landi, Vestfjörðum og Austur­landi.

Af íbúum Reykja­víkur í hópi svarenda eru 25,8 prósent svarenda mjög eða fremur hlynnt gjaldtöku, 21,1 prósent í meðallagi og 53,1 prósent fremur eða mjög andvíg gjaldtöku í jarð­göngum. Að sama skapi eru 24,4 prósent íbúa nágranna­sveitar­félaga Reykja­víkur fremur eða mjög hlynnt gjaldtöku, 24,6 prósent í meðallagi og 51 prósent fremur eða mjög andvíg.

Á Austur­landi eru 72,2 prósent svarenda fremur eða mjög andvíg gjaldtöku og 75 prósent íbúa á Vestur­landi og Vestfjörðum eru fremur eða mjög andvíg. Aðeins 12,4 prósent svarenda á Austur­landi eru mjög eða fremur hlynnt gjaldtöku og 15,3 prósent í meðallagi. Andstaðan er enn skýrari á Vestur­landi og Vestfjörðum en þar er enginn mjög hlynntur gjaldtöku og 3,6 prósent svarenda fremur hlynnt, en 21,3 prósent í meðallagi.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu sem er svokallaður þjóðhópur fólks sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu, að því er fram kemur á vef Maskínu. Alls svöruðu 1069 könnuninni og gild svör voru 1025.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár