Utanríkisráðherrar NATO-rikjanna fordæma aðgerðir Rússa í Úkraínu

Utan­ríkis­ráðherrar NATO-ríkjanna fordæma ógn Rússlands við stöðug­leika í austur­hluta Úkraínu, sem þeir segja að sé í trássi við alþjóðalög. Þessi ógn felur í sér að aðskilnaðar­sinnar í Ukraínu fá ýmis vopn og annan búnað frá Rússum í trássi við samkomulag sem deilu­aðilar á svæðinu féllust á í Minsk í september síðastliðnum. Utan­ríkis­ráðherrarnir fordæma einnig hernaðar­uppbyggingu Rússa á Krímskaga og við Svarta hafið og kalla eftir því að rússnesk stjórvöld virði sjálf­stæði og fullveldi Úkraínu. Þetta er meðal þess sem kom fram í sameiginlegri yfir­lýsingu utan­ríkis­ráðherranna 28 eftir að fundi þeirra vegna stöðunnar í Úkraínu lauk rétt í þessu. Gunnar Bragi Sveinsson, utan­ríkis­ráðherra Íslands, situr fundinn.

„Við köllum eftir því að Rússland snúi við hinni ólöglegu innlimun Krím­skagans, sem við höfum ekki og munum ekki viðurkenna,“ sagði Jens Stoltenberg, framkvæmda­stjóri NATO, þegar hann ávarpaði frétta­menn eftir að fundinum lauk.

Utan­ríkis­ráðherrar allra NATO ríkjanna eru saman­komnir í Brussel. Gunnar Bragi Sveinsson, utan­ríkis­ráðherra Íslands, sést hér lengst til hægri á myndinni sem var tekin í morgun.

Sjálfstæð, fullvalda og stöðug Úkraína


Utan­rík­is­ráð­herrar allra NATO-rikj­anna 28 eru staddir í höf­uð­stöðvum NATO í Brussel í dag og á morgun til að funda um ýmis verk­efni banda­lags­ins. Í morgun var fundað um ástandið í Úkraínu, aðgerðir Rússa þar og hver afstaða NATO til ástands­ins sé. Pavlo Klimkin, utan­rík­is­ráð­herra Úkraínu, átti upp­haf­lega að vera við­staddur fund­inn í morgun en komst ekki í dag þar sem að búist er við að úkra­ínska þingið stað­festi nýja rík­is­stjórn síðar í dag. Klimkin tók því þátt í fund­ar­höld­unum í gegnum fjar­skipta­búnað.

Utanríkisráðherrar allra NATO ríkjanna eru samankomnir í Brussel. Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra Íslands, sést hér lengst til hægri á myndinni sem var tekin í morgun.
Utan­rík­is­ráð­herrar allra NATO ríkj­anna eru sam­an­komnir í Brussel. Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, sést hér lengst til hægri á mynd­inni sem var tekin í morgun.

Niður­staða fundarins var sú að NATO stað­festir fordæmingu sína á aðgerðum Rússa í Ukraínu og stuðning sinn við stjórn­völd í landinu.

John Kerry, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, er á meðal fundar­manna.

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á meðal fundarmanna.
John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, er á meðal fund­ar­manna.

Stoltenberg var brúna­þungur en ákveðinn þegar hann sagði að NATO „árrétti að sjálfstæð, fullvalda og stöðug Úkraína, sem stað­fastlega styður lýðræði og réttar­ríki, er lykillinn að öryggi á Evrópu-Atlanshafssvæðinu[...]sem Úkraína er órjúfanlegur hluti af.“

NATO hefur sett upp fimm sjóði til að styðja stjórn­völd í Úkraínu í þeim átökum sem þar geisa. Í gegnum þessa sjóði veitir NATO stuðning við úkraínska herinn án þess að taka beinan þátt í átökunum.

Evrópu­sambandið og Banda­ríkin hafa beitt Rússa efnahags­þvingunum vegna aðgerða þeirra í Úkraínu. Þær aðgerðir, ásamt hríð­lækkandi olíuverði í heiminum, hafa haft miklar efnahagslegar afleiðingar í Rússlandi.

Utan­ríkis­ráðherra Úkraínu var fjar­verandi vegna þess að ríkis­stjórn Úkraínu, sem mynduð er eftir kosningarnar í október, verður líklega staðfest á eftir.

Þórður Snær Júlíusson skrifar frá höfuð­stöðvum NATO í Brussel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár