Nýjar fjöldagrafir grafnar á laun

Borg­ara­stríð virð­ist vera að hefj­ast í Búrúndí í miðri Afríku. Amnesty International deilir mynd­bandi sem á að sýna nýjar fjölda­grafir.

Allt bendir til að fjölda­grafir hafi verið grafnar í Afr­íku­rík­inu Búrúndí í síð­ast­liðnum des­em­ber­mán­uði. Þetta sýna gervi­hnatta­myndir, mynd­bands­upp­tökur sem og vitn­is­burður sem mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International hafa tekið saman og birt á vef sínum.

Mikil ólga hefur verið í land­inu und­an­farin miss­eri eða allt frá því að for­seti lands­ins, Pierre Nkurunziza, til­kynnti í maí að hann myndi bjóða sig fram til for­seta á ný. And­stæð­ingar hans töldu fram­boð hans brjóta í bága við stjórn­ar­skrá lands­ins þar sem það yrði hans þriðja kjör­tíma­bil. Svo fór að Pierre var end­ur­kjör­inn for­seti lands­ins í júlí. Fyrst fóru fram frið­söm mót­mæli en harka færð­ist í leik­inn eftir að lög­reglan og her­inn börðu mót­mælin niður. Margt bendir nú til þess að borg­ara­styrj­öld sé að brjót­ast út. Afr­íku­sam­bandið hyggst senda 5.000 manna frið­ar­gæslu­lið til lands­ins og er það í fyrsta skipti í sög­unni sem slíkt er gert í óþökk stjórn­valda lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár