Eysteinn Þórir hreppti Hríseyjarferjuna

Vega­gerðin tók lægsta boði í rekstur Hrís­eyjar­ferjunnar á árunum 2023-2025. Eysteinn Þórir Yngvason bauð rúm 85 prósent af kostnaðar­áætlun Vega­gerðarinnar í reksturinn, fyrir hönd óstofnaðs félags, en hann rak Viðeyjar­ferjuna frá 1993 til 2008.

Hríseyjarferjan Sævar.
Hrís­eyj­ar­ferjan Sævar. Mynd: Af veg Vegagerðarinnar

Vega­gerðin ákvað fyrir helgi að taka tilboði Eysteins Þóris Yngva­sonar í rekstur Hrís­eyjar­ferjunnar á árunum 2023-2025, en Eysteinn Þórir átti, fyrir hönd óstofnað einka­hlutafélags, lægsta boðið sem barst í útboði sem Vega­gerðin stóð fyrir nú undir lok ársins.

Tilboð Eysteins Þóris hljóðaði upp á 297,6 milljónir króna án vsk., sem samsvarar 85,3 prósentum af 347,7 milljóna króna kostnaðar­áætlun Vega­gerðarinnar. Eysteinn Þórir er ekki ókunnur ferju­rekstri, en hann rak Viðeyjar­ferjuna frá árinu 1993 til 2008.

Alls bárust þrjú tilboð í rekstur Hrís­eyjar­ferjunnar, en hin tvö voru vel yfir kostnaðar­áætlun Vega­gerðarinnar.

Félagið Ferry ehf. á Árskógssandi bauð 489 milljónir króna án vsk. í reksturinn eða 140,6 prósent af kostnaðar­áætlun og félagið Andey ehf. í Hrísey, sem hefur annast reksturinn undan­farin fimm ár, bauð 534,3 milljónir króna, eða sem samsvarar 153,7 prósentum af kostnaðar­áætluninni.

Það verður því félag Eysteins sem að óbreyttu mun taka að sér rekstur ferju­leiðarinnar til og frá Hrísey næstu árin, en notast er við ferjuna Sævar, sem er í eigu Vega­gerðarinnar, í siglingunum.

Hríseyingar óttast fækkun ferða

Nokkur kurr var meðal Hríseyinga eftir að útboðs­gögnin voru kynnt í október­mánuði, og þá ekki síst varðandi það að Vega­gerðin óskaði eftir tilboðum í 2.840 árlegar ferðir, með möguleika á 20 prósent viðbót, en núna er að renna sitt skeið samningur sem kveður á um að 3.100 ferðir séu sigldar á milli Árskógssands og Hríseyjar á ári.

„Almenn sátt ríkir um núverandi ferju­áætlun og getur breyting á áætlun eða fækkun ferða haft veruleg áhrif á skilyrði til búsetu í Hrísey. Niður­felling á ákveðnum ferðum getur haft þau áhrif að ómögulegt yrði fyrir íbúa að sækja atvinnu í landi ásamt takmörkun á mögu­leikum íbúa að stunda félags­starf, íþrótta­starf, sækja menningar­viðburði svo eitthvað sé nefnt. Teljum við fráleitt að það sé á valdi rekstrar­aðila að ákveða ferju­áætlun, hún ætti að vera föst í útboðs­gögnum og breytingar á henni gerðar í samráði við íbúa og notendur þjónustunnar,“ sagði í bréfi sem formaður hverfis­ráðs Hríseyjar, verkefna­stjóri byggða­verk­efnisins Áfram Hrísey og forsvars­maður ferðamála­ráðs eyjunnar sendu á þingmenn í nóvember­mánuði.

Vegagerðin segir hana ekki standa til

Vega­gerðin brást við fram­settri gagnrýni með tilkynningu, þar sem kom fram að ferðum í Hrísey yrði ekki fækkað og breytingar á siglingum Hrís­eyjarferju væru ekki á borðinu, þó að Vega­gerðin vildi auka svigrúm til að ekki þyrfti að sigla að óþörfu með tóma ferju.

„Ekki eru fyrir­hugaðar breytingar á ferðum ferjunnar út í Hrísey. Hins vegar viljum við ekki sigla tómri ferju á milli lands og Hríseyjar. Því viljum við hjá Vega­gerðinni hafa svigrúm til að breyta áætlun í samráði við íbúa ef útlit er fyrir mjög slæma nýtingu á ferðum ferjunnar. Það er best að sigla ekki ef það eru ekki farþegar um borð. Það er stóra málið,“ var haft eftir Halldóri Jörgens­syni forstöðu­manni almennings­samgangna hjá Vega­gerðinni í tilkynningu Vega­gerðarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár