Sigmundur Ernir setur undir sig hausinn

Stór­stjörnum flaggað á nýrri sjón­varps­stöð

Sjón­varps­stöðvar hafa sprottið upp eins og gorkúlur á Íslandi und­an­farið. Nýjasta stöðin er Hring­braut sem stýrt er af Sigmundi Erni Rún­ars­syni dag­skrár­stjóra sem á að baki ára­tug­a­reynslu í sjón­varps­þátta­gerð. Elín Sveins­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar, ann­ast útsend­inga­stjórn en hún er einn reynd­asti Íslend­ing­ur­inn í þeim efnum. Guð­mundur Örn Jóhanns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Lands­bjargar, er aðal­eig­andi stöðv­ar­innar. 

Stöðin fór í loftið á mið­viku­dag­inn. Stór­stjörnum er flaggað. Sig­mundur Ernir er sjálfur með þátt­inn Mannamál. Heims­ljós, þáttur um erlend mál­efni, verður í umsjón Sól­veigar Ólafs­dóttur. Þá snýr útvarps­stjór­inn fyrr­ver­andi, Páll Magn­ús­son, aftur í sjón­varp og verður með umræðu­þátt­inn Þjóð­braut. Þátt­ur­inn er í anda Silfurs Egils. 

Spaug­stofu­mað­ur­inn Karl Ágúst Úlfsson verður með þátt­inn Helgin. Björk Eiðs­dóttir, rit­stjóri MAN, stjórnar þætt­inum Kvenna­mál þar sem til umfjöll­unar verða við­kvæm mál­efni sem snúa að konum. 

Sjón­varps­stöðvar hafa und­an­farið komið og farið jafn­skjótt. Sigmar Vil­hjálms­son stofn­aði Mikla­garð og Bravó. Þær stöðvar voru undir hans stjórn í nokkrar vikur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár