Þar eru hrafnar, lundar og skarfar – Ópera um rétt alls sem lifir

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Fugla­bjargið sem sýnt er í Borgar­leikhúsinu. „Á þeim tímum sem við nú lifum hefur aldrei verið mikil­vægara að taka til sín hugmyndina um náttúruna sem á rétt á að vera til á sínum eigin forsendum.“

Borgarleikhúsið í samvinnu við leikhópinn Hin Fræga Önd

Handrits­höfundur: Birnir Jón Sigurðsson

Tónskáld: Ingibjörg Ýr Skarp­héðins­dóttir og Ragn­heiður Erla Björns­dóttir

Leik­stjóri: Hallveig Kristín Eiríks­dóttir

Leikmynd: Hallveig Kristín Eiríks­dóttir og Birnir Jón Sigurðsson

Búningar: Sólveig Spillaert

Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson

Hljóð: Kristinn Gauti Einarsson

Flytjendur: Björk Níels­dóttir, Ragnar P. Jóhannsson, Viktoría Sigurðar­dóttir, Björg Brjáns­dóttir, Bryndís Þórs­dóttir, Halldór Eldjárn, Tumi Árnason.

Skammt undan ströndum Austur­lands er eyja sem heitir Skrúðsey, í daglegu tali kölluð Skrúður. Skrúður stendur eins og klettur uppúr hafinu, sést vel úr Fáskrúðs­firði og einnig Reyðar­firði, hún er erfið uppgöngu en þaðan voru þó stundaðir útróðrar fyrr á öldum og höfðust þá vermenn við í helli, sem þar er og hefur í þjóðsögum verið talinn heimili bergrisa eða hrímþursa þess sem einnig er kallaður Skrúðs­bóndinn; um hann segir í þekktu kvæði Ólafs Indriða­sonar sem ort var um miðja nítjándu öld:

„Mjög er reisugt í Skrúð,

þar sig berg­risans búð

inn í brim­þveginn hamarinn klýfur!“

Í næsta erindi – sem einnig má lesa í leikskrá að Fugla­bjarginu – lýsir Ólafur öðrum íbúum Skrúðs, en það eru fuglarnir:

„Þar er hafsúla og már,

Þar er haftyrðill smár,

Þar eru hrafnar, lundar og skarfar.

Þar er æður og örn

Þar sín ótalmörg börn

Elur svartfugl og skegglurnar þarfar.“

Og hérna er í raun komin hlut­verkaskrá sýningarinnar Fugla­bjargið eða því sem næst; í sýningunni koma fram Súlan, Ritan, Lundinn, Haftyrðillinn, Langvían, Hrafninn, Skarfurinn, Æðar­fuglinn og Hafassan og þau segja sína sögu eins og hún birtist á einu ári í lífi Skrúðs með öllum þeim tilbrigðum sem árstíða­skipti og veðra­skipti bjóða.

Höfundur handrits er Birnir Jón Sigurðsson og leitar hann fanga í eðli og hegðunar­mynstri fuglanna og mótar og myndar söguþráð útfrá því. Reyndar er kannski ekki rétt að tala um söguþráð í þeim skilningi sem algengastur er, og þó – fer hreyfing og framþróun nátt­úrunnar og alls þess lifandi sem hana byggir ekki eftir ákveðinni rökfestu sem kalla má þráð sögu? Allt sem lífsanda dregur fæðist, dafnar, vex, nær þroska, hrörnar og deyr og í því má vissulega greina ákveðinn þráð – söguþráð. Sú saga sem þannig er ofin kallar þó á öðruvísi nálgun áhorfenda og áheyrenda – lífssaga af því tagi sem sögð er í Fugla­bjarginu skorar á áhorf­andann að beita athygli og skilningi á annan hátt en þegar horft er á venjulega frásögn í leikhúsi.

Þær persónur sem hér birtast sjónum haga sér á annan hátt en mann­fólkið og það kallar á einbeitingu og hæfileika til innlifunar að taka sögu þeirra til sín. En það er hverju manns­barni hollt að þjálfa þann eigin­leika og hér gefst kostur á því – Fugla­bjargið skorar á áhorf­endur sína að opna sig fyrir því sem fyrir augu ber og þá sést kannski, þegar allt kemur til alls, að fuglar Skrúðs eru hreint ekkert svo frábrugðnir okkur mönnunum þegar allt kemur til alls. Það er nefnilega ýmislegt líkt með skyldum og öll erum við ábúendur í sama vistkerfi.

Fugla­bjargið er fyrst og fremst ópera eða tónverk og tónlistin flutt með lifandi hljóðfæra­leik á sviðinu undir söng leik­aranna/söngvaranna, sem bregða sér í hlutverk fuglanna sem áður eru nefndir. Tónlistin, líkt og sögu­þráðurinn, sækir innblástur í atferli fuglanna og notar þau hljóð sem heyra má í fugla­bjargi Skrúðs. Úr verður líflegt tónverk, fjöl­breytilegt eins og fugla­hljóðin í nátt­úrunni, sem tjáir öll tilbrigði þess lífs sem kviknar, vex, þróast, elskar og játast því lífi sem í boði er. Tónskáldin Ingibjörg Ýr Skarp­héðins­dóttir og Ragn­heiður Erla Björns­dóttir eru höfundar tónlistarinnar, en sú síðarnefnda er einnig tónlistar­stjóri sýningarinnar. Þær Ingibjörg Ýr og Ragn­heiður Erla hafa báðar útskrifast af tónsmíða­braut LHÍ og hafa síðan fengist við nútíma tónsmíðar þar sem unnið er að því að tengja tækni og tónlist á nýjan hátt, en það skilar sér með ágætum í hljóð­heimi Skrúðs. Það má nefna hér að í fyrri verkefnum sínum hafa þær leitað í hugarheim þjóðsagna og menningar­arfs, sem nýtist svo um munar í Fugla­bjarginu. Tónlistin er aðlaðandi í þeirri merkingu að hún vekur forvitni og er samtvinnuð þeim vist­fræðilega söguþræði sem sýningin fylgir.

Söngvararnir hafa það verkefni að gæða hvern fugl lífi og leysa það af hendi á hrífandi hátt undir styrkri leik­stjórn Hallveigar Kristínar Eiríks­dóttur. Þarna birtast Súla, Haftyrðill og Langvía, öll leikin og sungin af Viktoríu Sigurðar­dóttur, Riturnar eru leiknar og sungnar af Halldóri Eldjárn og Bryndísi Þóris­dóttur, sem skipa einnig hljómsveit sýningarinnar; þá er þarna kostulegur Lundi, sunginn og leikinn af Björk Níels­dóttur, sem einnig fer með hlutverk Hrafnsins. Þá er ógetið Skarfsins, sem Ragnar Pétur Jóhansson leikur og syngur og Hafassan sem Björg Brjáns­dóttir syngur og leikur ásamt því að vera í hljóm­sveitinni. Tumi Árnason leikur einnig í hljóm­sveitinni og bregður sér ásamt fleirum í hlutverk Æðar­fuglsins. Það má því ljóst vera að lífið í klettum Skrúðs er hið fjöl­breytilegasta – en það birtist ekki síst í frábærlega fallegum og hugvit­samlega hönnuðum fugla­búningum Sólveigar Spilliaert. Það er auðfundið, að þessir búningar styðja vel við túlkun leikara og söngvara í hlut­verkum sínum og þeir gleðja svo sannarlega augað og eiga sinn þátt í því, ásamt hagnýtri og fallegri leikmynd að gefa sýningunni töfrandi og heillandi yfirbragð. Ónefnd er leik­myndin, sem hönnuð er af leik­stjóranum Hallveigu Kristínu og handrits­höfundinum Birni Jóni og um hana má segja að hún er nánast eins og áttundi leikarinn, svo vel þjónar hún sögunni og myndar um hana lifandi umgjörð, sem er umbreytileg eftir aðstæðum og þörfum.

Fugla­bjargið er heil­steypt og fallegt listaverk sem enginn skyldi láta framhjá sér fara. Á þeim tímum sem við nú lifum hefur aldrei verið mikil­vægara að taka til sín hugmyndina um náttúruna sem á rétt á að vera til á sínum eigin forsendum. Fugla­bjargið styður þá hugmynd að allt sem lifir fái að gera það á sínum eigin forsendum.

Í kynningu á Fugla­bjarginu, t.d. á heimasíðu Borgar­leikhússins, er sýningin sögð „tónleik­húsverk fyrir börn“ og „barnaverk“. Það er í sjálfu sér satt, en þó vaknar sú hugsun hvort ekki væri rétt að benda á hversu vel sýningin er fallin til að kveikja samræður milli kynslóða, milli barna og foreldra, milli barna og móður- eða föður­foreldra. Hér er nefnilega ekki aðeins unnið með náttúruna sem þema, heldur einnig og ekki síður með þann menningararf, sem snýr að sambúð manns og náttúru. Öll saga okkar Íslendinga snýst um það og okkur er nauðsynlegt og hollt að kynnast henni og öðlast tækifæri til að móta persónu­lega afstöðu til hennar.

Kvæði Ólafs Indriða­sonar, sem vitnað var til hér í upphafi, og sem hefur nýst höfundum Fugla­bjargsins, segir frá hinu þekkta þjóð­sagnaminni sem er Skrúðs­bóndinn og þeirri mystík sem umvefur hann. Slíkur heimur þjóðsagna og þjóðtrúar umlykur vitaskuld einnig alla þá fugla sem byggja þetta land, Ísland, ásamt okkur mönnunum, og eru til vitnis um sambúskap manna og fugla.

Fugla­bjargið er kjörin fjölskyldu­sýning, þar sem kynslóðirnar geta útfrá sýningunni og því sem þar segir frá, leyft sýningunni að lifa áfram í minningunni og glætt hana nýjum fróðleik og nýjum upplifunum, t.d. með því að fletta í nýút­kominni bók Sigurðar Ægissonar, Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin, sem segir frá sömu fuglum og sýningin (og allmörgum til viðbótar) og þar að auki í sama anda, þótt í öðruvísi miðli sé. Bók Sigurðar kemur út eftir að höfundar hafa samið handrit og tónlist, en það er eins og það sé ekki tilviljun að Fugla­bjargið og bók Sigurðar komi út á sama tíma – bæði verkin horfa til heildar og bera með sér anda virðingar og réttar alls til lífs á eigin forsendum.

Fugla­bjargið er sýning sem engin ætti að láta framhjá sér fara – og það væri hreint ekki verra ef von væri á framhaldi; af nógu er að taka í dýraríki lofts, láðs og lagar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár