Vinstri græn enn með varann á sér vegna samstarfsins

Á annan tug félaga í Vinstri grænum sem voru á fundi flokksins þar sem greidd voru atkvæði um stjórnar­sáttmálann lýsa áhyggjum af því að umhverfis­málin séu nú á forræði Sjálfstæðis­flokksins. Þau segja að mörgum hafi brugðið illa á fundinum þegar það var tilkynnt. „Ég óttast mjög mikið að nú verði farið af stað með nýjar mengandi virkjanir,“ sagði ein. Nokkur segjast hafa samþykkt sátt­málann með semingi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson afhendir Guðlaugi Þór Þórðarsyni lyklavöldin í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son afhendir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni lykla­völdin í umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu Mynd: Heiða Helgadóttir

Formenn ríkis­stjórnar­flokkanna kynntu stjórnar­sáttmálann fyrir flokks­félögum sínum um helgina og að því loknu var haldin atkvæða­greiðsla um sátt­málann. Rétt tæplega 99 prósent þeirra sem höfðu atkvæðis­rétt hjá Framsóknar­flokknum samþykktu sátt­málann og hlut­fallið var svipað hjá Sjálfstæðis­flokki. Stjórnar­sáttmálinn var sumsé samþykktur af nær öllum sem greiddu atkvæði. Hlut­fallið var 80 prósent hjá Vinstri grænum. Á annað hundrað manns sótti fund­inn og þar af voru tæp­lega hundrað með at­kvæðis­rétt sem flokks­ráðsfull­trú­ar. Það er svipað hlutfall og samþykktu síðustu ríkis­stjórn. 

Stundin hefur síðustu daga rætt við hóp fólks sem var á fundi Vinstri grænna um síðastliðna helgi. Á annan tug félaga í hreyfingunni vildi tjá sig um það sem fram fór á fundinum en ekki undir nafni. „Það voru mjög opinskáar umræður um sátt­málann og skiptingu ráðuneyta en fólk staldraði við þá staðreynd að umhverfis­ráðuneytið færi til Sjálfstæðis­flokksins,“ sagði einn viðmælenda Stundarinnar en Guðlaugur Þór Þórðarson er umhverfis-, orku og loftslags­mála­ráðherra í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Hansson skrifaði
    Að éta skít úr lófa íhaldsins þykir Katrínu og félögum gott.!
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    ....en samþykkja samninginn "með semingi" alltaf sami aumingjaskapurinn og meðvirknin! Fólk á að stappa niður færi og segja NEI!
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Er ekki fylgjandi þessari ríkisstjórn.
    0
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Snobbið er dýrt
    0
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Samkvæmt því sem haft er eftir félagsmönnum í VG í þessari grein, er augljóst að þar fer afar skoðanadauft fólk með lítilfjörlegar og yfirborðskenndar pólitískar hugsjónir. Þá er enn fremur auðsjánlegt af lestri greinarinnar að VG er orðinn hægri flokkur, að vísu hægfara, eins og Sjálfstæðisflokkurinn var fyrir fjörutíu árum, með einhverskonar loftslagagsáherslum, sem aldrei verða kapítalismananum fötur um fót.

    Ekki veit ég hvort félögum í VG sé yfirleitt sjálfrátt, þegar kemur að pólitík, ég held ekki. Og mat þess á pólitík og forustufólki VG er í meira lagi brenglað og ruglingslegt, eins og eftirfarandi ummæli gefa ótvírætt til kynna: ,,og Við erum með forsætisráðuneytið og Katrín Jakobsdóttir er gríðarlega hæfur leiðtogi og ég treysti henni til að stýra landinu,“ sagði kona sem var á fundinum". Það er alveg óhætt fyrir þetta vesalings fólk sem er á mála hjá VG að fara að tygja sig til og flytja sig um set inn í Sjálfstæðisflokkinn, - það væri best fyrir það sjálf og það væri heiðarlegt af því.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "og Katrín Jakobsdóttir er gríðarlega hæfur leiðtogi" ???
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár