Segir hugmynd forsætisráðherra fráleita

„Tillögurnar eru í fyrsta lagi algerlega útþynntar og mátt­lausar eftir meðfarir stjórnar­skrár­nefndar á uppruna­tillögunum. Þá á líka að sniðganga vilja þjóðarinnar og sleppa því að setja stjórnar­skrár­breytingar í bindandi þjóðar­atkvæði,“ skrifar Birgitta Jóns­dóttir

Birgitta Jóns­dóttir, þingkona Pírata, segir þá hugmynd Sigurðar Inga Jóhanns­sonar forsætis­ráðherra að nýta sumarþing Alþingis til afgreiðslu stjórnar­skrár­breytinga fráleita. Stjórnar­skrár­nefnd, skipuð af Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni, þáverandi forsætis­ráðherra í upphafi kjör­tímabils, skilaði af sér þremur frum­vörpum til stjórnar­skipunar­laga í gær.

Fram kom í viðtali við Sigurð á vef RÚV að brýnt væri að ljúka málinu áður en kosninga­baráttan fyrir Alþingis­kosningar í haust hæfist. „Þessi hugmynd forsætis­ráðherra er svo fráleit að það hálfa væri nóg. Tillögurnar eru í fyrsta lagi algerlega útþynntar og mátt­lausar eftir meðfarir stjórnar­skrár­nefndar á uppruna­tillögunum. Þá á líka að sniðganga vilja þjóðarinnar og sleppa því að setja stjórnar­skrár­breytingar í bindandi þjóðar­atkvæði,“ skrifar Birgitta Jóns­dóttir á Facebook-síðu sinni.

„Þá er ljóst að enginn almennilegur tími gefst til að eiga samtal við þjóðina um breytingarnar né verður tími á þinginu til að vinna þetta í sátt, því ef lesið er í bókanir þær sem komu með þessum tillögum er alveg ljóst að engin sátt er um málið.“ Fleiri fulltrúar stjórnar­andstöðunnar töluðu á svipuðum nótum í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár