Danir deila enn um Múhameðsteikningarnar - Þrír Danir á dauðalista Al Qaeda samtakanna

Þótt tíu ár séu liðin síðan Jótlands­pósturinn birti Múhameðsteikningar Kurts Westergaard deila Danir enn um hvort rétt hafi verið að birta þær. Kennarar eru ósammála um hvort rétt sé að sýna teikningarnar í kennslu­stundum þegar fjallað er um Múhameðskrísuna eins og Danir kalla þetta mál.

Það var fyrir hálfgerða tilviljun að Múhameðsteikningarnar urðu til. Nokkrir blaðamenn og rithöfundar voru í samkvæmi í Kaupmanna­höfn sumarið 2006 og þar sagði einn þeirra frá því að sér gengi illa að fá einhvern til að mynd­skreyta barnabók sem hann hefði skrifað um Múhameð spámann. Þeir teiknarar sem hann hefði rætt hefðu allir færst undan og gjarna nefnt að þeir vildu ekki verða fyrir barðinu á reiðum múslímum.

Tveimur árum fyrr var hollenski leik­stjórinn Theo van Gogh myrtur skömmu eftir að hann lauk gerð stuttmyndarinnar „Submission“ sem fjallar um múslím­skar konur. Einn gestanna í áður­nefndu samkvæmi var frétta­maður Ritzau frétta­stofunnar sem nokkrum vikum síðar skrifaði frétt sem bar yfir­skriftina „Danskir listamenn hræddir við að gagnrýna Íslam“. Fréttin vakti mikla athygli og á ritstjórnar­fundi Jótlands­póstsins stakk blaða­maður uppá því að danskir teiknarar yrðu beðnir að teikna mynd af Múhameð spámanni, eins og þeir sæju hann fyrir sér. Fimmtán teiknarar svöruðu, tólf þeirra sendu mynd, þrír vildu ekki taka þátt.

30. september 2005


Laug­ar­dag­inn 30. sept­em­ber 2005 birti Jót­land­s­póst­ur­inn teikn­ing­arnar tólf. Þær voru mjög ólíkar að gerð en ein þeirra skar sig algjör­lega úr. Hana hafði Kurt Westergaard teiknað, en hann var fastur teikn­ari Jót­land­s­pósts­ins á þessum tíma. Mynd hans sýndi höfuð spá­manns­ins með sprengju í vefj­ar­hett­inum. Enginn texti fylgdi teikn­ing­unni en hún var merkt (signeruð) K W, svo ekki fór á milli mála hver höf­und­ur­inn var. Á rit­stjórn Jót­land­s­pósts­ins taldi fólk sig vita að teikn­ing­arnar, og sér­ílagi mynd Westergaards, myndu vekja athygli. Engan grun­aði hins vegar að hún myndi valda slíkum úlfa­þyt sem raun varð á.

Sendiherrar vildu fund með forsætisráðherra


Samtök múslíma í Danmörku og fleiri löndum mót­mæltu sam­dæg­urs harð­lega birt­ingu teikn­ing­anna. Ellefu sendi­herrar múslíma­landa í Danmörku ósk­uðu eftir að fá að hitta Anders Fogh Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra en ráð­herr­ann synj­aði þeirri beiðni. Samtök ísla­mista báðu dönsku rík­is­stjórn­ina að bregð­ast við með ein­hverjum hætti, og biðj­ast afsök­unar, en ekki var orðið við þeirri beiðni. Jót­land­s­póst­inum bár­ust hót­anir og paki­stönsk ung­menna­sam­tök lögðu fé til höf­uðs Westergaard.

Danskir múslímar í herferð gegn Danmörku


Hópur danskra múslíma ferð­að­ist um nokkra vikna skeið í árs­lok 2005 um Mið­aust­ur­lönd. Hópurinn hélt fyr­ir­lestra vítt og breitt um birt­ingu Múhameð­steikn­ing­anna, til­gang­ur­inn var að hvetja til mót­mæla gegn Danmörku. Hópurinn heim­sótti meðal ann­ars full­trúa Hamas sam­tak­anna og Hezbollah sam­tak­anna í Líbanon.

Eftir þessar heim­sóknir hófust mikil mótmæli gegn Danmörku í mörgum múslíma­ríkjum og fjölmörg samtök og trúar­leiðtogar hvöttu fólk til að sniðganga danskar vörur. Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælum gegn Danmörku þar sem hrópuð voru slagorð gegn Dönum og danski þjóð­fáninn brenndur á götum úti. Víða kom til óeirða og kveikt var í danska sendi­ráðinu í Sýrlandi og danskri ræðis­skrifstofu í Líbanon. Skemmdir voru unnar á sendi­ráðum og ræðis­skrifstofum í Indónesíu, Afganistan og fleiri löndum. Talið er að á annað hundrað manns hafi látist í þessum mótmælum.

Dönsk fyrirtæki urðu illa úti


Samtök danskra iðn­fyr­ir­tækja lýstu yfir þungum áhyggjum vegna ástands­ins og hvöttu Jót­land­s­póst­inn til að biðj­ast afsök­unar á birt­ingu mynd­anna. Mörg dönsk fyr­ir­tæki urðu illa úti vegna tap­aðra við­skipta, einkum í Mið­aust­ur­löndum. Mjólk­ur­vinnslu­fyr­ir­tækið Arla tap­aði til dæmis rúm­lega tveimur millj­örðum króna (tæpum fjöru­tíu millj­örðum íslenskum). Smám saman dró úr mót­mælum og ástandið virt­ist vera að kom­ast í eðli­legt horf.

Í febrúar 2008 handtók danska lögreglan þrjá menn sem höfðu skipulagt að ráða teikn­arann Kurt Westergaard af dögum. Í kjölfarið birtu öll helstu dagblöð Danmerkur Múhameðsteikningarnar. Þau vildu þannig sýna fram á að ekki væri hægt að hefta tjáningar­frelsið með hótunum og tilræðum.

Ný mótmælaalda


Þessar nýju mynd­birt­ingar urðu til þess að hrinda nýrri mót­mæla­bylgju af stað. Fjöl­mennar mót­mæla­sam­komur voru víða haldnar og danski þjóð­fán­inn brenndur. Rit­stjóri Jót­land­s­pósts­ins neit­aði að biðj­ast afsök­unar á mynd­birt­ing­unni en sagði í yfir­lýs­ingu að birt­ing mynd­anna færi ekki í bága við dönsk lög en hún hún hefði greini­lega mis­boðið mörgum múslímum og það bæri að afsaka. Baðst semsé ekki beint afsök­unar. Anders Fogh Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra neit­aði sem fyrr að biðj­ast afsök­unar sagð­ist virða tján­ing­ar­frelsið þótt hann sjálfur myndi aldrei láta sér detta í hug að sýna eða tala um Múhameð, Jesús eða aðrar trú­ar­legar fyr­ir­myndir með þeim hætti að fólk gæti móðg­ast.

Þrír Danir á dauðalista Al Qaeda samtakanna


Þótt nú séu liðin tíu ár frá því að Múhameð­steikn­ing­arnar voru birtar telur danska leyni­þjón­ustan að enn telj­ist „tals­verð“ hryðju­verkaógn í land­inu eins og atburð­irnir í febr­úar sl. þegar hryðjverka­maður myrti tvo menn í Kaup­manna­höfn, sýni best Þótt nú um stundir sé kannski hljótt um teikn­ing­arnar séu þeir margir sem enn hugsi Dönum þegj­andi þörf­ina. Ekki sé heldur hægt að líta fram­hjá því að meðal tíu efstu manna á dauða­lista Al Qaeda sam­tak­anna séu þrír Danir. Þessir þrír eru Carsten Juste sem var aðal­rit­stjóri Jót­land­s­pósts­ins 2003 – 2008, Flemming Rose, hann var menn­ing­ar­rit­stjóri Jót­land­s­pósts­ins þegar teikn­ing­arnar voru birtar en er nú rit­stjóri erlendra frétta á blað­inu. Þriðji Daninn á lista Al Qaeda er svo teikn­ar­inn Kurt Westergaard. Þessir þrír menn njóta allir lög­reglu­verndar.

Eru Múhameðsteikningarnar kennsluefni?


Birting Múhameð­steikn­ing­anna í Jót­land­s­póst­inum árið 2005, og síðar í fleiri blöðum, og það sem fylgdi í kjöl­farið er í dag hluti náms­efnis í dönskum skólum. Engir deila um það. Hins vegar er tals­vert deilt um það meðal danskra skóla­manna hvort rétt sé að teikn­ing­arnar sjálfar séu hluti þess náms­efnis. Þeir sem eru því hlynntir segja að teikn­ing­arnar séu jú það sem allt sner­ist um og það væri því bein­línis óeðli­legt að hafa þær ekki með. Auk þess geti hver sem er séð þessar teikn­ingar á net­inu.

Andstæðingar þess að hafa teikningarnar sem hluta námsefnis segja það augljóst að nemendur geti séð myndirnar en ef þær væru hluti náms­efnisins væri verið að ögra ákveðnum hópi nemenda og slíkt sé óþarfi. Ekki hefur verið tekin um það ákvörðun innan Menntamálaráðueytisins danska hvort teikningarnar skuli vera hluti námsefnis eða ekki. Enn sem komið er er það í valdi hvers skóla hvernig þessum málum er háttað. Í nýlegri skoðana­könnun dagblaðsins Berlingske kom fram að 57% Dana eru hlynnt því að myndirnar séu hluti náms­efnisins.

Það má bæta því hér við að Prent­frelsis­samtökin dönsku gerðu árið 2009 samning við Kurt Westergaard. Samtökin fengu leyfi til að prenta 1000 plaköt með teikningu Westergaards af Múhameð sem sprengjuna í vefjar­hettinum og 1000 kaffi­krúsir með þessari sömu mynd. Hluti sölu­verðsins gekk til teikn­arans. Bæði plakötin og kaffirkrúsirnar seldust upp á örfáum dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár