Ráðherra segir banka eiga að nota „ofurhagnað“ til að lækka vexti

Lilja Alfreðs­dóttir segir að ef bankarnir útfæri ekki sjálfir leið til að nota mikinn hagnað sinn til að styðja við heimili og fyrirtæki í landinu komi til greina að hækka banka­skatt að nýju.

Lilja Alfreðsdóttir.
Lilja Alfreðs­dóttir. Mynd: RÚV/Skjáskot

Lilja Alfreðs­dóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningar­mála­ráðherra sem situr í ráðherra­nefnd um efnahagsmál, segir að vaxta­munur sé orðinn of mikill á Íslandi, að bankar landsins eigi að lækka vexti á lánum heimila og fyrir­tækja í ljósi þess sem hún kallar ofur­hagnað þeirra. „ Ég tel óá­byrgt að rík­is­sjóður borgi all­an reikn­ing­inn fyr­ir far­ald­ur­inn og tel að bank­arn­ir eigi að styðja við þau heim­ili og fyr­ir­tæki, sér í lagi í ferðaþjón­ustu, sem koma einna verst út úr far­aldr­in­um. Þá vísa ég í þá sam­fé­lags­legu ábyrgð sem fjár­mála­stofn­an­ir í land­inu þurfa að sýna þegar vaxta­stigið er farið að hækka.“ Geri bankarnir það ekki sjálfir gæti þurft að „end­ur­vekja banka­skatt, eins og við gerðum á sín­um tíma, til að dreifa þess­um byrðum.“

Þetta kemur fram í Morgun­blaðinu í dag.

Hagnaðurinn verður nálægt 80 milljörðum

Tveir af þremur kerfis­lega mikil­vægum bönkum landsins, Arion banki og Lands­bankinn, hafa birt uppgjör sín fyrir árið 2021 og sá þriðji, Íslands­banki, gerir það í dag. Arion Banki hagnaðist um 28,6 milljarða króna á síðasta ári og ætlar sér að greiða 79 prósent þess hagnaðar út í arð til hluthafa. Til viðbótar ætlar bankinn að kaupa eigin bréf fyrir að minnsta kosti 3,4 milljarða króna á árinu 2022. Hann skilaði alls 31,5 milljarði króna til hluthafa sinna í gegnum arðgreiðslur eða endurkaup á bréfum í fyrra og hefur áform um að greiða þeim um 30 milljarða króna til viðbótar í nánustu framtíð. Gangi þau áform eftir munu hluthafar bankans hafa fengið allt að 88 milljarða króna greidda út úr honum frá byrjun árs 2021. Arion banki hefur líka tekið upp kaupauka- og kaup­réttarkerfi fyrir starfs­menn. Bankinn bókfærði tæplega 1,6 milljarða króna kostnað vegna kaupauka­greiðslna í fyrra.

Lands­bankinn hagnaðist um 29 milljarða króna í fyrra og ætlar að greiða eiganda sínum, ríkis­sjóði, 14,4 milljarða króna í arð hið minnsta. Bankinn heldur því opnu að ráðast í sérstaka arðgreiðslu til viðbótar.

Íslands­banki birtir sitt ársuppgjör í dag. Hann hagnaðist um 16,6 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum síðasta árs og því er saman­lagður hagnaður þessara þriggja banka kominn upp í 74,1 milljarða króna áður en að hagnaður Íslands­banka á síðustu þremur mánuðum ársins 2021 er talinn með, en hann mun alltaf hlaupa á milljörðum króna. Til saman­burðar högnuðust allir bankarnir þrír samanlagt um 29,8 milljarða króna á árinu 2020. Í fyrra högnuðust bæði Arion banki og Lands­bankinn um þá upphæð hvor.

Vaxtamunur miklu hærri en á Norðurlöndunum

Vaxta­munur banka er mun­ur­inn á þeim vöxtum sem bank­arnir greiða fólki og fyr­ir­tækjum fyrir inn­lán sem þau geyma hjá þeim og vöxt­unum sem þeir leggja á útlán. Sam­an­dregið þá borgar bank­inn lægri upp­hæð fyrir að fá pen­inga á láni og rukkar álag fyrir að taka þá pen­inga og end­ur­lána á hærri vöxt­um. Það álag stendur undir rekstr­ar­kostn­aði bank­ans og myndar hluta hagn­aðar hans, en almennt hafa um 70 pró­sent tekna kerfis­lega mik­il­vægu bank­anna á Íslandi verið hreinar vaxta­tekj­ur.

Vert er að taka fram að bankar fjár­magna sig líka með skulda­bréfa­út­gáfu sem fag­fjár­festar kaupa, ekki ein­ungis með inn­lánum almenn­ings, líf­eyr­is­sjóða og fyr­ir­tækja.

Þeir sem greiða þá vexti eru að uppistöðu íslensk heimili og fyrirtæki.

Bankarnir kvörtuðu lengi yfir því að hinn svokallaði banka­skattur gerði það að verkum að vaxta­munur þyrfti að vera hár. Með því gáfu þeir til kynna að heimilin og fyrir­tækin í landinu væru látin greiða skattinn. Banka­skatturinn var lækkaður úr 0,376 í 0,145 pró­sent árið 2020 sem hluti af fyrsta efnahags­pakka ríkis­stjórnarinnar til að bregðast við kórónu­veiru­faraldrinum. Þetta rýrði tekjur ríkis­sjóðs vegna skattsins um meira en sex milljarða króna á ári. Skörp lækkun banka­skatts­ins, hefur ekki skilað því að vaxta­munur banka hafi lækkað sem neinu nemur. Vaxta­munur Arion banka á síðasta ári var 2,8 prósent og lækkaði úr 2,9 prósent árið 2020. Vaxta­munur Lands­bankans var 2,3 prósent. Til sam­an­­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­­sent á árinu 2020. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­­senti, sam­­kvæmt því sem fram kom í árs­­riti Sam­­taka fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja fyrir það ár.

Lækkun banka­skattsins hefur hins vegar spilað inn í miklar hækk­anir á virði hluta­bréfa í þeim bönkum sem skráðir eru á mark­að. Arion banki tvöfaldaðist til að mynda í markaðs­virði í fyrra.

Kemur til greina að endurvekja bankaskattinn

Lilja segir í viðtalinu við Morgun­blaðið að eignaverð hafi hækkað mikið í far­aldr­in­um, bæði hluta­bréf og fast­eign­ir, og við þær aðstæður sé ekki óeðli­legt að bank­ar skili mikl­um hagnaði. „Þetta er hins veg­ar of­ur­hagnaður og til þess að við öll, sam­fé­lagið, kom­um vel út úr far­aldr­in­um þurf­um við að jafna byrðarn­ar.“

Hækkun á húsnæðis­verði drífi áfram verðbólgu og það muni skila vaxta­hækkunum. „Ég tel því mjög mik­il­vægt að ákveðin heim­ili, sér­stak­lega ungs fólks og tekju­lágra, sitji ekki eft­ir með svarta pét­ur. Það er því betra að bank­arn­ir komi strax inn í þetta og fari að huga að heim­il­un­um í land­inu og ef bank­arn­ir finna ekki ein­hverja lausn á því tel ég að við ætt­um að end­ur­vekja banka­skatt­inn.“

Níu þingmenn frá Samfylkingu, Viðreisn, Flokki fólksins og Pírötum hafa lagt fram þings­ályktunar­tillögu um að stjórn­völd greini þann vanda sem hafi skapast á húsnæðis­markaði og grípi í kjölfarið inn í stöðuna með mótvægis­aðgerðum.

Kristrún Frosta­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir í Frétta­blaðinu í dag að hringl með hagstjórn, sem birtist í því að vextir voru lækkaðir hratt en síðan hækkaðir hratt skömmu síðar, hafi skapað ójafnvægi. Um þriðjungur þeirra sem keypti fasteign í þessu ástandi séu fyrstu kaupendur, að stærstum hluta ungt fólk sem er í fyrsta sinn að komast í gegnum greiðslumat. „Hættan er sú að neyðar­ástand geti skapast hjá þeim sem hafa skuldsett sig hátt á dýrum fasteigna­markaði [...] Við höfum sértækar leiðir til að koma peningum til þeirra sem þess þurfa, svo sem vaxta­bætur, barna­bætur og húsaleigu­bætur. Ef ástandinu er leyft að grassera er hættan sú að það komi miklu almennari krafa um launa­hækkanir sem verða mun dýrari fyrir fyrirtæki og ríkið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár