Jón Trausti stígur til hliðar sem ritstjóri og Helgi Seljan verður rannsóknarritstjóri

Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir verður ein aðal­ritstjóri eftir skipulags­breytingar hjá Stundinni og Jón Trausti Reynisson einungis framkvæmda­stjóri Útgáfu­félagsins Stundarinnar. Helgi Seljan gengur til liðs við fjöl­miðilinn.

Jón Trausti og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hafa bæði verið ritstjórar fjölmiðilsins síðustu ár.
Jón Trausti og Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir hafa bæði verið rit­stjórar fjöl­mið­ils­ins síð­ustu ár. Mynd: Bára Huld Beck.

Jón Trausti Reynisson mun stíga úr stóli ritstjóra Stundarinnar og verður því eingöngu framkvæmda­stjóri Útgáfu­félagsins Stundarinnar og blaða­maður á ritstjórn Stundarinnar. Frá stofnun Stundarinnar í janúar 2015 hafa ritstjórar verið tveir en Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir verður framvegis ein aðal­ritstjóri.

Þetta kemur fram í frétt Stundarinnar þar sem einnig er tilkynnt að frétta­maðurinn og rannsóknar­blaða­maðurinn Helgi Seljan hafi gengið til liðs við Stundina. Hann mun gegna hlutverki rannsóknar­ritstjóra en það hlutverk hefur ekki verið til staðar fram að þessu „en þekkist á rannsóknar­frétta­miðlum erlendis undir titlinum investigations editor“. Hann hefur störf þann 15. febrúar næst­komandi.

Kjarninn greindi frá því í dag að Helgi, sem hefur starfað hjá frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik hjá RÚV á und­an­förnum árum og þar áður hjá Kast­ljósi, hefði sagt upp störf­um.

Í stöðu­upp­færslu sem Helgi birti inni lok­uðu vef­svæði starfs­manna RÚV, þar sem hann greindi frá ákvörð­un­inni, segir hann að hún hafi hvorki tekin í skyndi eða af neinni vonsku. „Ég mat það bara sem svo að nú væri rétti tím­inn til að takast á við nýjar áskor­anir á nýjum stað. Ég ætla þó ekki að halda því fram að atburð­ar­rás und­an­far­inna miss­era hafi ekki haft nein áhrif á að ég yfir­leitt fór að velta þessum mögu­leika fyrir mér. Ég skil þó við RÚV sáttur við allt og alla, vit­andi það að öll höfum við lært og munum draga lær­dóm af því sem gengið hefur á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár