Jóhannes um notkun Samherja á DNB: „Þetta er góð leið til að þvætta peninga“

Uppljóstr­arinn í Samherja­málinu segir að orðspor Noregs á alþjóða­vísu hafi gert það að verkum að færri spurðu hvaðan peningar Samherja kæmu eftir að þeir voru fluttir inn á banka­reikninga DNB.

Jóhannes Stefánssonþ
Jóhannes Stef­áns­sonþ Mynd: Skjáskot/RÚV

„Þetta er góð leið til að þvætta peninga,“ segir uppljóstrarinn Jóhannes Stef­ánsson, sem lék lykil­hlutverk í að opinbera Samherja­málið, í viðtali við norska ríkis­sjónvarpið NRK þegar hann er spurður að því af hverju Samherja ákvað að vera í viðskiptum við norska stór­bankann DNB. Jóhannes starfaði hjá Samherja í Namibíu og hefur játað á sig að hafa framið lögbrot með því að taka meðal annars þátt í að greiða mútur til að tryggja aðgengi að ódýrum kvóta. Auk þess hefur hann sagt Samherja hafa stundað umfangs­mikið peninga­þvætti og skatta­sniðgöngu.

Í viðtalinu við NRK segir Jóhannes að þegar peningar séu komnir í norska kerfið og inn í norskt efnahagslíf þá sé spurt færri spurninga þegar þeir eru svo færðir annað, þar sem Noregur hefur gott orðspor á alþjóða­vísu og er talið áreiðanlegt. „Þá eru færri spurningar sem vakna frá öðrum löndum um hvaðan peningarnir koma.“

Jóhannes segir í viðtalinu að honum finnist sérkennilegt að DNB hafi ekki spurt fleiri spurninga um notkun Samherja á reikningunum, sem hafi falið í sér tilfærslur á fé frá Namibíu, í gegnum Kýpur og inn á reikninga DNB.

Rannsakað hvort DNB hafi verið misnotað af glæpamönnum

Meint peninga­þvætti Samherja í gegnum DNB bankann, sem er að stóru leyti í eigu norska ríkisins, er ein stærsta fréttin í Noregi um þessar mundir. Í gær greindi NRK frá því að DNB hefði svarað fyrir­spurn ríkis­miðilsins um hvort eigin reglum bankans um varnir gegn peninga­þvætti hefði verið fylgt á þann veg að DNB væri að rannsaka málið til að varpa ljósi á stað­reyndir þess. „Við munum tryggja að við komumst að öllu sem gæti varpað ljósi á hvort að þjónusta DNB hafi verið misnotuð af glæpa­mönnum.“

Það sé hins vegar of snemmt að segja til um hvort að reglur DNB hafi verið brotnar en það sé auðvitað eitt af því sem verið sé að rannsaka.

Í gærkvöldi birti Wikileaks ný gögn sem Kveikur, Stund­in og NRK eru nú með til umfjöll­un­ar. Þar kemur fram að hættan á pen­inga­þvætti hafi verið kveikjan að því að milli­færslur á fjár­magni voru stöðv­að­ar. Taldi að tvö félög í eigu Sam­herja gætu verið notuð í pen­inga­þvætt­i.

Bank­inn brást hins vegar ekki við áhættu­merkj­un­um, úr eigin eft­ir­liti, fyrr en banda­ríski bank­inn Bank of New York Mellon stöðv­aði milli­færslu til Banda­ríkj­anna í fyrra.

Kveikur og Stundin greindu frá því fyrir rúmum tveimur vikum að ­Sam­herji hefði kom­ist hjá því að greiða skatta í Namibíu af þeim hagn­aði sem skap­að­ist af mak­ríl­veiðum fyr­ir­tæk­is­ins þar, meðal ann­­­ars með því að færa hagn­að­inn til landa þar sem skattar voru litlir eða engir, til dæmis á Kýp­­­ur, með við­komu á eyj­unni Mári­­­tí­us. Allir pen­ingar Sam­herja voru hins vegar sagðir enda í Nor­egi, inni á reikn­ingum í DNB.

Í umfjöllun Stund­­ar­innar um málið sagði að DNB hefði látið loka ­banka­­reikn­ingum félags­­ins Cape Cod FS í skatta­­skjól­inu Mar­s­hall-eyjum í fyrra. Sam­­kvæmt Stund­inni fóru um níu millj­­arður í gegn án þess að DNB vissi nokkurn tím­ann hver ætti fyr­ir­tæk­ið. Fjár­mun­irnir voru m.a. not­aðir til að greiða laun sjó­manna Sam­herja í Namib­íu. Málið er nú til skoð­unar innan DNB.

Slitið í byrjun nóvember 2019

Stundin greindi frá því fyrir skemmstu að félag­inu Cape Cod FS hefði verið slitið í byrjun þessa mán­að­ar. Það gerð­ist í kjöl­far þess að stjórn­endum Sam­herja var gert ljóst að umfjöllun um ætl­aðar mútu­greiðsl­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu væri í far­vatn­in­u.

Í umfjöllun Stund­ar­innar hefur komið fram að DNB hafi lokað banka­reikn­ingum Cape Cod FS í maí í fyrra, í kjöl­far þess að banda­rískur banki hafði neitað milli­færslu frá félag­inu. „Ástæðan var meðal ann­ars sú að bank­inn fékk ekki upp­lýs­ingar um end­an­legan eig­anda félags­ins frá því félagi sem sagður var eig­andi þess, JPC Ship Management auk þess sem bank­inn sagði í áhættu­mati að áfram­hald­andi við­skipti við félagið fælu í sér „of mikla áhættu“ þar sem bank­inn vissi ekki hver end­an­legur eig­andi félags­ins var. Bank­inn sagð­ist því ekki hafa „neina vit­neskju“ um end­an­legan eig­anda félags­ins en full­yrti þó að félagið væri „ekki lengur undir Sam­herj­a“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár