Lést vegna COVID-19 á gamlársdag

Kona lést á Land­spítalanum á síðasta degi ársins vegna COVID-19. Sex af þeim sjö sem eru á gjörgæslu­deild eru óbólusettir.

23 sjúklingar liggja á Land­spítala vegna COVID-19. Sjö eru á gjörgæslu­deild sjúkra­hússins og eru sex þeirra í öndunarvél. Sex af þeim sem liggja á gjör­gæslunni eru óbólusettir.

Kona á níræðis­aldri lést á spítalanum á gamlársdag vegna COVID-19. 38 hafa látist hér á landi frá upphafi faraldursins.

7.023 sjúklingar eru í COVID-göngu­deild Land­spítalans, þar af 1.601 barn.

167 starfs­menn Land­spítalans eru í einangrun.

Í gær, föstu­daginn 31. desember, greindust 1.076 með kórónu­veirusmit, þar af 127 á landa­mærunum sem er metfjöldi. Alls voru 493 í sóttkví við greiningu.

Í dag eru 7.685 í einangrun og 5.525 í sóttkví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár