Apple og Facebook borga fyrir frystingu eggja starfsmanna

Apple og Facebook, tvö af stærstu tækni­fyrirtækjum veraldar, hafa brugðið á það ráð að bjóða kvenkyns starfs­mönnum sínum allt að 20 þúsund dali, um 2,4 milljónir króna, í styrk til að gera þeim kleift að frysta úr sér egg. Tilgangurinn er sá að gera konum sem vilja einbeita sér að frama innan fyrir­tækjanna kleift að gera það án þess að fórna mögu­leikanum á því að eignast börn síðar á lífs­leiðinni.

Facebook er þegar búið að ýta stefnunni úr vör og Apple mun gera slíkt hið sama í janúar næst­komandi. Business Insider greinir frá.

Alls starfa um áttunda þúsund manns hjá Facebook. Starfs­menn Apple eru töluvert fleiri, eða um 98 þúsund talsins.

Vilja laða fleiri konur í stjórnunarstöður


Umdeilt hefur verið á meðal fræði­manna á und­an­förnum árum hvort fryst­ing eggja sé góð hug­mynd og hvort hún skili þeim konum sem ákveða að fara þá leið til­ætl­uðum árangri þegar þær vilja loks frjóvg­ast. Það hefur hins vegar færst mjög í aukanna, sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum, að konur velji að fresta barn­eignum til að ná sér í menntun, frama eða öðrum mark­miðum.

Þar sem frjósemi kvenna minnkar með aldrinum er talið líklegast til árangurs að frysta egg kvenna á meðan að þær eru á besta barnsburðar­aldrinum, undir þrítugu. Þegar þær vilja síðan ganga með barn er eggjunum komið fyrir leginu sem eldist ekki með sama hætti og egg eða eggja­leiðarar. Með þessari aðferð geta konur borið börn vel fram á sextugsaldurinn.

Í umfjöllun Businessweek um málið kemur fram að rannsókn sem NYU háskólinn framkvæmdi í fyrra hafi leitt í ljós að þeim 183 konum sem tóku þátt og höfðu fryst egg sögðust 19 prósent að þeir hefðu líklegast átt börn fyrr en atvinnu­rekandi þeirra hefði sýnt meiri sveigjanleika. Kísil­dalurinn, heima­völlur helstu tækni­fyrirtækja vestur­heims, er þekktur fyrir eftir­tekarverðan skort á konum í áhrifa­stöðum. Ein af röksemdum Facebook og Apple fyrir þessu óvenju­lega skrefi er að fyrir­tækin vonast til að laða að fleiri konur í stjórnunar­stöður. Fyrir­tækin eru, enn sem komið er, einu stóru atvinnu­rekendurnir í Banda­ríkjunum sem brugðið hafa á það ráð að bjóða starfs­mönnum sínum upp á kostnaðar­þátttöku í eggja­frystingu vegna ástæðna sem eru ekki tengdar heilsu­fari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár