Kvenleg reynsla, ósvikin kómík

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um sýningu Reykjavik Ensemble, Polishing Iceland.

Reykjavik Ensemble í samvinnu við Tjarnarbíó: Polishing Iceland

Höfundur: Eva Marcinek

Leikgerð, leik­stjórn og hönnun búninga: Pálína Jóns­dóttir

Leiktexta­fræðingur: Angela Rawlings

Tónlist og hljóð­hönnun: Anna Halldórs­dóttir

Hönnun lýsingar: Juliette Louste

Leikarar: Magdalena Tworek, Michael Richardt, Pétur Óskar Sigurðsson

Polishing Iceland er það sem á stundum hefur verið kallað „líkamlegt leikhús“ – sem er leiklist sem byggir á sterkri og meðvitaðri líkams­tjáningu leikarans. Meistarar slíks leikhúss í Evrópu eru menn á borð við Jerzy Grotowski sem ýtti hugmyndinni um líkams­tjáningu leikarans út á ystu nöf og gerði kröfur til leikara sinna um að beita líkamanum á óhefðbundinn hátt og fara út fyrir realisma og natúralisma til að geta fangað kjarna þeirrar tilfinningar sem verið var að tjá. Leikhús það sem kennt er við Grotowski er einatt nefnt „The Poor Theatre“, sem lýsir vel þeim mínímalisma sem hann beitti; áherslan var á leik­aranum og tjáningu hans. Það má einnig nefna í þessu sambandi Eugenio Barba, ítalskan leik­stjóra sem vann um tíma með Grotowski en ferðaðist síðar til Indlands þar sem hann sótti innblástur í indverska dansinn Kathakali, sem var nýmæli á Vestur­löndum. Ekki má heldur gleyma snillingum á borð við Peter Brook, Jacques Copeau og Joan Littlewood, sem öll voru innblásin af japanska No-leik­húsinu; forveri þeirra var faðir „leikhúss grimmdarinnar“, Antonin Artaud, sem sótti innblástur í leikhús­menningu Bali. Þessir frumkvöðlar lögðu grunninn undir þá stefnu að brjóta tjáningu hins vestræna leikara úr menningarviðjum hennar – en, eins og leiða má rök að, er einnig leik­listin undir þá menningu lögð þar sem hún á sér stað.

Þetta „líkamlega leikhús“ einkennist af því að leikarinn nýtir sér í ríkari mæli tónlist, dans, myndlist og fleira í þeim dúr en aðeins hið hefð­bundna „leikhús orðsins“, sem er og hefur verið ríkjandi tjáningar­form leikhúss á Vestur­löndum – enda liggja rætur þess í leiklist forn­grikkja, sem var til á fimmtu öld fyrir Krist og markaðist af sterkri, retórískri orðræðu, enda hluti af samfélags­þróun þeirra tíma þar sem einnig mælsku­list og lýðræði haslaði sér völl í stjórn samfélagsins og menningu þess. Þá eru einnig mörkin milli sviðs og salar, leikara og áhorfanda, einatt rofin þannig að úr verður líkt og Brechtísk nálgun sem kallar á sameiginlegan skilning beggja vegna sviðs­brúnar – áhorf­endur fá að uppgötva í stað þess að eingöngu treysta á tilfinningar sínar. Þannig ögrar hið „líkamlega leikhús“ hinu Aristótelíska leikhúsi, þar sem áhorf­endur áttu að ganga í gegnum tilfinninga­lega hreinsun og í stað þess öðlast nýjan, vitrænan skilning á samfélaginu og samtímanum.

Þessi leikstíll er sem fyrr segir ráðandi í sýningu Pálínu Jóns­dóttur þar sem smásögur Evu Marcinek liggja til grund­vallar; þær segja frá reynslu hennar sem innflytjanda til Íslands frá Póllandi og það verður ekki annað sagt en Eva hafi bæði næmt auga og góða tilfinningu fyrir menningarmun þeim, sem ríkir á milli hinna tveggja menningar­heima, Póllands og Íslands. Nú skal það tekið fram að undir­rituðum hefur ekki gefist færi á að lesa sögur hennar í frumgerð, en ef marka má þau atriði sem fljúga hjá á leiksviði Tjarnar­bíós nálgast hún viðfangs­efnið með bæði klínískri nákvæmni, eftirbreytnis­verðri virðingu og miklum húmor. Þar með einnig sagt að hún sneiðir hjá klisjum og ódýru fordóma­kitli, sem er ekki síður til fyrir­myndar og styrkir hina listrænu viðleitni.

Sýningar­höfundinum og leik­stjóranum Pálínu Jóns­dóttur nýtist þessi efniviður vel og hún býr hann í sviðsgerð sem er einkar frjálsleg, hrífandi og örvandi fyrir ímyndunarafl áhorf­andans; áhorf­andinn er þannig virkjaður og verður óhjá­kvæmilega hluti af sýningunni.

Polishing Iceland er vissulega tvíræður titill, ef ekki þríræður: Hér er verið að slípa myndina af Íslandi og fanga það sem er einkennandi, það er verið að gera Ísland ívið pólskara – og veitir kannski ekki af! – og það má jafnvel finna vott af gagnrýni á þá viðleitni okkar að fegra Ísland og allt sem íslenskt er. Við fylgjumst með hinum pólska innflytjanda, sem leikinn er af Magdalenu Tworek, þar sem hún tekst á við menningar­árekstra sem eiga sér óhjá­kvæmilega stað í hinu nýja heima­landi; hinn súrrealíski heimur snýr að öllu mannlegu: tungu­málinu, siðum, mat og – líkams­tjáningunni.

Sýningin samanstendur af stuttum atriðum, eins konar svip­myndum, sem sýna hvernig átök geta orðið til milli tveggja menningar­heima. Sumt kemur þar á óvart, annað hljómar frekar kunnug­lega eins og við má búast. En allar eru þessar svip­myndir tær dæmi um hvað mætir þeim sem ætlar sér að takast á við að samsama sig nýjum siðum, nýjum skilningi og nýrri menningu. Þetta er veröld sem allir innflytjendur heimsins kannast við og það eru til allrar hamingju æ fleiri Íslendingar líka farnir að kannast við þessi atvik enda fjölgar hratt þeim Íslendingum sem deilt hafa kjörum með öðrum þjóðum. Sýning Reykjavik Ensemble – já, sjálf stofnun og tilurð þessa leikhóps! – er áþreifanleg sönnun þess að Ísland færist nær því að verða hluti af alheimi og við Íslendingar hluti af mannkyni heimsins.

Þá skaðar ekki heldur að yfir sýningunni hvílir sterkur andi kvenlegrar reynslu og kvenlegra gilda. Það þarf kannski ekki að koma á óvart – þríeykið Eva Marcinek, Pálína Jóns­dóttir og Magdalena Tworek eru greini­lega vel meðvitaðar um að reynsla og upplifun kvenna af því að vera lítilmagninn er annars eðlis en reynsla karla og það er hreint ekkert að því að vera minntur á það af og til. Það er svo bara meira gaman að því þegar það er gert með ósvikinni kómík eins og gert er í Polishing Iceland, en leik­ararnir ná að halda hárfínu jafnvægi milli þeirrar kómíkur sem í sögum Evu Marcinek býr og þess boðskapar sem sögur hennar koma á framfæri.

Leikið er á þremur tungu­málum, sem veldur þó engum misskilningi, svo greini­lega sem allt er fram sett og tjáð: íslenskan, pólskan og enskan hljóma nokkuð jöfnum höndum og eiga á sinn hátt sinn þátt í að valda misskilningi og greiða úr honum; en alls staðar má finna næmni fyrir efninu og það klætt í málfars­legan og líkamlegan búning af því tagi sem við erum óvön hér á landi. Það er auðséð og auðfundið að Pálína og leikhópur hennar hefur borið með sér andblæ framandi menningar inn á leiksvið Tjarnar­bíós og það er vel. Íslenskt leikhús hefur einatt borið með sér að vera háð orðinu sem er í sjálfu sér ekkert einkennilegt – við teljum okkur bókmennta­þjóð og byggjum að stórum hluta sjálfs­mynd okkar á því og það hlýtur því að vera kappsmál að færa orðsins list upp á leik­sviðið og koma þá einnig orðum yfir alla þá list sem treystir á annars konar tjáningu – dans og hreyfingu, myndlist, tónlist. Það hefur verið okkar ríkidæmi, bóka­þjóðarinnar. En Pálína sem listrænn stjórn­andi Reykjavik Ensemble og hennar listræna teymi sýnir og sannar að til er annað ríkidæmi sem er ekki síður magnað og nær að fanga tilfinningu og stemningu sem hefð­bundin orð ná ekki yfir.

Eitt skal áréttað: hér hefur orðið tíðrætt um hið „líkamlega leikhús“ og bent á frumkvöðla sem kunna að hafa veitt leik­stjóranum Pálínu Jóns­dóttur innblástur og hughrif. En það er einnig nauðsynlegt að geta þess, að sem leik­stjóri bregður hún sínum eigin lit á allt sem fram fer á sviðinu. Pálína er leikari og dansari að mennt og hefur einkum starfað í Banda­ríkjunum þar sem hún lauk námi frá MFA Theatre Directing Program við Háskólann í Columbia, en þar áður hafði hún starfað meðal annars sem leikari um árabil. Yfirbragð sýningar hennar ber vitni um hennar eigin stíl og áferð. Hreyfingar leik­aranna þriggja eru skýrt og vel skipulagðar, ekkert smáatriði er tilviljun háð heldur hluti af frásögninni og miðlar merkingu; þessi vinnu­brögð eru fáséð á íslensku leiksviði og væri svo sannarlega gaman að sjá áhrifa af þessum vinnu­brögðum gæta víðar.

Reykjavík Ensemble er alþjóð­legur leikhópur sem stofnaður var á síðastliðnu ári og Pálína Jóns­dóttir er listrænn stjórn­andi hans. Það er óskandi að þessi frjóa og eggjandi viðbót við íslenskt leikhúslíf fái að vaxa og dafna um langa framtíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár