Þúsund á dag krefjast þess að Google gleymi þeim

Google hefur borist um 145 þúsund beiðnir frá aðilum sem vilja láta fjarlægja upplýsingar um sig úr leitar­vélinni eftir að Evrópu­dómstóllinn úrskurðaði að fyrir­tækið ætti að fjarlægja óviðkomandi og/eða úr sér gengnar upplýsingar með dómi í maí síðastliðnum. Niður­staða dómstólsins byggir á rétti einstaklingsins til að verða gleymdur.

Það þýðir að Google berist meiri en eitt þúsund slíkar beiðnir á hverjum einasta degi. Alls geta rúmlega 500 milljón manns í 32 mismun­andi löndum, þar með talið á Íslandi, farið fram á að hlekkir með upplýsingum um sig verði fjar­lægðir úr leitarvél Google, sem er sú lang­stærsta í heiminum í dag.

Þjóðverjar með flestu beiðnirnar


The Guardian greinir frá því að um 18.304 beiðnir hafi borist frá Bretum til Google um að fjar­lægja alls um 60 þús­und hlekki með upp­lýs­ingum um þá af leit­ar­vefnum. Af þeim hefur Google fjar­lægt 18.459 hlekki og hefur því orðið við um 35 pró­sent af beiðn­unum.Flestir hlekkir hafa verið fjar­lægðir að beiðni Frakka, 29.010, og Þjóð­verja, 25.078.

Sú ákvörðun að fjarlægja hlekki að fréttum eða upplýsingum um nafn­greinda einstaklinga vakti upp heitar umræður um hvort að með því færi fram ritskoðun á því efni sem birtist í leitarvél Google eða hvort verið væri að slá skjald­borg um sjálfsögð mann­réttindi fólks.

Flestir hlekkir fjarlægðir á Facebook


Google hefur birt nokkur dæmi um beiðnir sem bár­ust frá Bret­landi. Fyr­ir­tækið seg­ist meðal ann­ars ekki hafa orðið við beiðni frá fjöl­miðla­manni um aðfjar­lægja fjóra hlekki á greinar sem sögðu frá nið­ur­lægj­andi efni sem hann póstaði á inter­net­inu né beiðni læknis sem fór fram á að um 50 hlekkir á fréttir um mislukk­aða aðgerð sem hann tók þátt í yrðu fjar­lægðir. Í síð­ara til­fell­inu voru reyndar þrír af þeim hlekkjum sem lækn­ir­inn vildi losna við fjar­lægðir en ekki var minnst á aðgerð­ina í neinum þeirra.

Sú síða sem flestir hlekkir hafa verið fjar­lægðir á er Facebook, alls eru þeir 3.353 talsins. Profileengine.com er í öðru sæti og Youtube í því þriðja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár