Nýttu Óskarssviðið til að ávarpa heiminn: „Nei við stríði – frjáls Palestína“

Pólitísk ummæli og tilvísanir í ástand heimsmála settu svip á Óskars­verðlauna­hátíðina sem fór fram í Dolby-leik­húsinu í Hollywood í nótt.

Frelsi
Frelsi Ind­verska leik­konan Priyanka Chopra og spænski leik­ar­inn Javier Bardem afhentu verð­launin fyrir bestu alþjóð­legu kvik­mynd­ina á 98. Ósk­arsverð­launa­há­tíð­inni í Dolby-leik­hús­inu í Hollywood í Kali­forníu í nótt. Bardem kall­aði eftir frjálsri Palest­ínu. Mynd: Patrick T. Fallon / AFP

Kynnir Óskars­verð­launanna, grín­istinn Conan O’Brien, gaf tóninn strax í upphafi. „Ég vara ykkur við, þetta gæti orðið pólitískt í kvöld,“ sagði hann þegar hann opnaði athöfnina, sem fram fór í nótt. „Ef það veldur ykkur óþægindum er önnur Óskars­verðlauna­hátíð í boði Kid Rock á Dave & Buster’s hérna niðri í götu.“

Vísaði hann til sérstakrar hálfleiks­sýningar Ofur­skálarinnar sem skipulögð var með tónlistar­manninum Kid Rock vegna óánægju íhalds­manna í Banda­ríkjunum með tónlistar­atriði Bad Bunny, frá Púertó Ríkó, í úrslita­leik bandarísku fótbolta­deildarinnar. 

Óskars­verðlauna­höfninni, sem er stærsta verðlauna­hátíð kvikmynda­iðnaðarins í Banda­ríkjunum, var sjón­varpað víða um heim og margir sem stigu á svið nýttu tækifærið til að vísa til þeirrar vaxandi spennu sem er í alþjóða­málum og átaka sem nú eiga sér stað víða í heiminum.

Meðal þeirra var leik­stjórinn Paul Thomas Anderson, sem tók við verð­launum fyrir besta handrit byggt á áður útgefnu efni. Í þakkar­ræðu sinni tengdi hann efni …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilborg Norðdahl skrifaði
    Frábært að nota þennan vettvang til að lýsa yfir andstöðu við stríðum, þjóðarmorðum, ofbeldi af öllu tagi við fólk/dýr/náttúru og sóun og umhverfisspjöllum. Veröldin þarf á röddum sem flestra til að ná til margra/allra um þessi mál. Meira svona.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár