Stytta ætti vinnutíma foreldra áður en leikskólinn er styttur

Leik­skóla­kenn­ari segir stytt­ingu dval­ar­tíma barna jákvæða, en að byrjað sé á röngum enda. Borg­ar­yf­ir­völd hafa lofað sam­ráði við for­eldra 937 barna sem stytt­ingin myndi bitna á. Ekki er víst hvernig sam­ráðið mun fara fram á þeim skamma tíma sem er til stefnu.

Egill Óskarsson
Egill Ósk­ars­son Leik­skóla­kenn­ari segir að sveit­ar­fé­lögin ættu að sýna gott for­dæmi og stytta vinnu­vik­una. Mynd: Heiða Helgadóttir

Óljóst er hvernig borg­ar­yf­ir­völd ætla að tala við um þús­und for­eldra og kanna afstöðu þeirra til breytts opn­un­ar­tíma leik­skóla. Leik­skóla­kenn­ari segir dval­ar­tíma barna of langan, en að sveit­ar­fé­lögin ættu að byrja á að stytta vinnu­tíma for­eldr­anna áður en opn­un­ar­tím­inn er styttur.

Tillaga um að stytta almennan opn­un­ar­tíma leik­skóla í Reykja­vík þannig að þeim verði lokað 16.30 í stað 17.00 áður liggur nú fyrir borg­ar­ráði. Breyt­ingin tæki gildi 1. apríl, en heim­ilt yrði að sækja um aðlög­un­ar­frest til 1. ágúst vegna sér­stakra ástæðna.

Í færslu á Facebook í kjöl­far fundar borg­ar­stjórnar á þriðju­dag ítrek­aði Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar og for­maður borg­ar­ráðs, að fram muni fara ítar­legt jafn­rétt­is­mat um til­lög­una. „Sem hluti af þessu mati verði talað við alla for­eldra sem eru með dval­ar­samn­ing eftir kl. 16.30 og aðstæður þeirra og afstaða til til­lagn­anna kann­aðar,“ skrif­aði hún.

Alls 937 börn í Reykja­vík eru með dval­ar­samn­ing sem lýkur eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár