Ætla að ákæra Samherjamenn um leið og þeir verða handsamaðir

Íslendingar sem störfuðu í Namibíu fyrir Samherja og áttu aðkomu að mútu­greiðslum til þarlendra áhrifa­manna eru ekki sloppnir við ákæru. Saksóknari þar í landi segir ástæðu þess að nöfn þeirra sé ekki á nýju ákæru­skjali í málinu sé sú staðreynd að ekki hafi tekist að færa þá fyrir dóm.

Ekki sloppnir við mögulega ákæru
Ekki sloppnir við mögu­lega ákæru Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu segir að þeir Aðal­steinn Helgason, Ingvar Júl­í­us­son og Egill Helgi Árnason séu ekki sloppnir við ákæru í Sam­herj­a­mál­inu þó þeir séu ekki ákærðir nú.

Enn stendur til að ákæra Íslendinga í tengslum við Namibíu­málið svokallaða. Í nýlegu ákæru­skjali sem lagt var fyrir dóm í Namibíu eru engin nöfn Íslendinga, líkt og í fyrri gögnum. Saksókn­arinn í málinu, Martha Imwala, segir í skriflegu svari til Stundarinnar að það breyti engu um fyrir­ætlanir sínar að ákæra þá Íslendinga sem komu beint að mútu­greiðslum sem félög tengd Samherja eru sökuð um að hafa greitt áhrifa­mönnum þar í landi. Íslendingarnir hafi aftur á móti ekki brugðist við kröfum um að mæta fyrir dóm og því hafi ekki verið hægt að gefa formlega út ákæruna á hendur þeim. 

Tíu namibískir menn hafa verið ákærðir þar í landi fyrir að taka við mútu­greiðslum frá Samherja­félögum á Kýpur og í Namibíu. Nöfn þeirra komu fram í þessu nýja ákæru­skjali sem lagt var fyrir dómstóla þar syðra eftir að mála­rekstur þar var sameinaður í eitt dómsmál. 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Í þessu tilfelli væri rík ástæða til að framselja þessa menn til Namibíu sé litið til þess tjóns sem þeir hafa valdið namibísku þjóðinni.
    0
  • Arnar Gudlaugsson skrifaði
    Afhverju er Þorsteinn Már ekki á lista sakborninga? Sá eini sem að græddi á þessu aðrir voru bara í vinnuni og fengu bara sín venjulegu laun frá samherja
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár