Í skoðun að framleiða pinna hér á landi

Heilbrigðis­yfirvöld leita allra leiða til að fá fleiri sýnatöku­pinna til greiningar á COVID-19 veirunni og í skoðun er að framleiða þá innanlands. 701 barn hefur verið skimað og af þeim reyndust þrjú bera veiruna.

Á fundi Almannavarna
Á fundi Almanna­varna Frá vinstri: Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, Alma D. Möller land­læknir og Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Lögreglan

Heilbrigðis­yfirvöld hafa nú allar klær úti við að reyna að fá fleiri sýnatöku­pinna til greiningar á COVID-19 og í skoðun er að framleiða þá innanlands. Þetta  sagði Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir á daglegum upplýsinga­fundi Almanna­varna sem haldinn var klukkan 14 í dag. 701 barn hefur verið skimað og af þeim reyndust þrjú bera veiruna. 

Hann sagði að liggja myndi fyrir á næstu dögum hvort faraldurinn væri í miklum eða litlum vexti, en nú hafa 588 smit verið staðfest, þar af eru 13 á sjúkra­húsi samkvæmt vefsíðunni Covid.is. Skimanir sýndu að smithætta til barna yngri en 10 ára væri óveruleg. Af þeim 268 börnum sem skimuð hefðu verið á vegum sýkla- og veiru­fræði­deildar Land­spítala hefðu þrjú börn greinst með veiruna.

433 börn hefðu verið skimuð hjá Íslenskri erfða­greiningu og ekkert þeirra hefði reynst vera með veiruna. „Það er mat okkar á þeim aðgerðum sem við höfum verið að grípa til er að við séum á réttri leið. Við erum að grípa til réttra aðgerða og stoppa smit. Dagleg meðaltals­aukning sýkinga er einna lægst hér á landi, sé miðað við nágranna­löndin,“ sagði Þórólfur.

„Ég held að við getum fullyrt út frá þessum tölum að það er ekki sjáanlegt verulegt smit meðal barna í þessu samfélagi,“ sagði Þórólfur. Umræða um mikið smit hjá börnum og smithættu í grunn­skólum hefði því ekki raungerst þótt svo ekki væri hægt að segja til um hvað síðar yrði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár