Sif Gunnarsdóttir nýr forsetaritari

Sif Gunn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri menn­ing­ar­mála á menn­ingar- og ferða­mála­sviði Reykja­vík­ur­borgar, hefur verið skipuð for­seta­rit­ari. Alls sótt­ust 60 manns eftir emb­ætt­inu þegar það var aug­lýst í lok síð­asta árs.

Sif Gunnarsdóttir hefur verið skipuð nýr forsetaritari.
Sif Gunn­ars­dóttir hefur verið skipuð nýr for­seta­rit­ari. Mynd: Af vef stjórnarráðsins.

Sif Gunn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri menn­ing­ar­mála á menn­ingar- og ferða­mála­sviði Reykja­vík­ur­borgar, verður næsti for­seta­rit­ari. Nið­ur­staða for­seta Íslands og for­sæt­is­ráð­herra varð sú að Sif væri hæfust umsækj­enda til þess að hljóta skipun í emb­ættið. Frá þessu er sagt á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Embætti for­seta­rit­ara var aug­lýst laust til umsóknar 27. nóv­em­ber 2020 og bár­ust alls 60 umsóknir um emb­ættið. For­sæt­is­ráð­herra skip­aði ráð­gef­andi hæfn­is­nefnd í jan­úar 2021 til að meta hæfni umsækj­enda.

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að 33 umsækj­endum hafi verið boðið að leysa skrif­legt verk­efni og af þeim var síðan 17 umsækj­endum boðið í við­tal við nefnd­ina auk þess sem leitað var umsagna um þá.

Hæfn­is­nefnd skil­aði for­seta Íslands og for­sæt­is­ráð­herra grein­ar­gerð þann 8. mars sl. og þar var því lýst að átta umsækj­endur væru allir mjög vel hæfir til að gegna emb­ætt­inu. Að lok­inni skoðun á grein­ar­gerð hæfn­is­nefndar og öðrum gögnum máls­ins var ákveðið að bjóða þeim átta umsækj­endum sem metnir voru mjög vel hæfir í fram­halds­við­tal.

Nið­ur­staðan varð á end­anum sú að Sif þykir hæfust.

Hún er með BA-próf í danskri tungu og bók­menntum frá Háskóla Íslands og meist­ara­próf í menn­ing­ar­miðlun frá Háskól­anum í Óðins­véum, auk þess sem hún lauk diplóma­námi í rekstr­ar­hag­fræði við Háskóla Íslands árið 2006.

Sif var for­stöðu­maður Höf­uð­borg­ar­stofu á árunum 2007-2013 og for­stöðu­maður Norræna húss­ins í Færeyjum á árunum 2013-2018. Þá hefur hún einnig feng­ist við kennslu og dag­skrár­gerð fyrir hljóð­varp, auk núver­andi starfa sinna hjá Reykja­vík­ur­borg.

Örnólfur kveður eftir rúma tvo áratugi við forsetaembættið

Örn­ólfur Thors­son, sem starfað hefur hjá for­seta­emb­ætt­inu frá árinu 1999 og verið for­seta­rit­ari frá árinu 2005, greindi frá því seint á síð­asta ári að hann myndi hverfa til ann­arra starfa. Til stendur að hann verði nýjum for­seta­rit­ara innan handar til 1. ágúst.

Í starfs­aug­lýs­ing­unni kom fram að for­­seta­­rit­­ari stýrði emb­ætti for­­seta Íslands und­ir yf­ir­­stjórn for­­seta. Starfið fæli meðal ann­­ars í sér stjórn fjár­­­mála, mannauðs og dag­­legra starfa á skrif­­stofu for­­seta og Bessa­­stöð­um. Þá ann­­ast for­­seta­­rit­­ari sam­­skipti við Alþingi, ráðu­neyti, fjöl­miðla og send­i­herra er­­lendra ríkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár