60 manns vilja verða næsti forsetaritari Íslands

Á meðal þeirra sem vilja verða næsti for­seta­rit­ari er fyrr­ver­andi þing­maður, aðstoð­ar­maður for­stjóra Lands­spít­al­ans og upp­lýs­inga­full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls sóttu 60 manns um emb­ætti for­seta­rit­ara sem nýverið var aug­lýst til umsóknar. Örnólfur Thorsson, sem starfað hefur hjá for­seta­emb­ætt­inu frá árinu 1999 og verið for­seta­rit­ari frá árinu 2005, greindi frá því seint á síð­asta ári að hann myndi hverfa til ann­arra starfa. Hann lýkur störfum 1. mars næst­kom­andi en verður nýjum for­seta­rit­ara innan handar til 1. ágúst.

Þegar starfið var aug­lýst kom fram að for­seta­rit­ari stýri emb­ætti for­seta Íslands und­ir yf­ir­stjórn for­seta. Fel­ur það meðal ann­ars í sér stjórn fjár­mála, mannauðs og dag­leg­um störf­um á skrif­stofu for­seta og Bessa­stöðum. Þá ann­ast for­seta­rit­ari sam­skipti við Alþingi, ráðu­neyti, fjöl­miðla og sendi­herra er­lendra ríkja.

[adspot]Á meðal umsækj­enda er fyrr­ver­andi þing­mað­ur­inn Guð­friður Lilja Grét­ars­dóttir, Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­maður for­stjóra Lands­spít­al­ans, Urður Gunn­ars­dóttir, sem starfar á lýð­ræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu ÖSE og er fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, og Kristján Guy Burgess, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra. Þá er Rósa Guðrún Erlings­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, á meðal umsækj­enda. 

Eftirtalin sóttu um embætti forsetaritara:

  • Agnar Kofoed-Hansen ráð­gjafi
  • Andrés Pét­urs­son, stjórn­andi Nordplus
  • Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­maður for­stjóra
  • Auðbjörg Ólafs­dóttir, yfir­maður sam­skipta
  • Auður Ólína Svav­ars­dóttir deild­ar­stjóri
  • Ásgeir Sig­fús­son fram­kvæmda­stjóri
  • Ásgeir B. Torfason rekstr­ar­hag­fræð­ingur
  • Ásta Sól Krist­jáns­dóttir umsjón­ar­maður
  • Ásta Magn­ús­dóttir lög­fræð­ingur
  • Bergdís Ell­erts­dóttir sendi­herra
  • Birgir Hrafn Búason yfir­lög­fræð­ingur
  • Birna Lár­us­dóttir upp­lýs­inga­full­trúi
  • Björg Erlings­dóttir sveit­ar­stjóri
  • Dag­finnur Svein­björns­son stjórn­mála­hag­fræð­ingur
  • Davíð Stef­áns­son stjórn­sýslu­fræð­ingur
  • Davíð Freyr Þór­unn­ar­son menn­ing­ar­stjóri
  • Finnur Þ. Gunn­þórs­son hag­fræð­ingur
  • Gísli Ólafsson tækni­stjóri
  • Gísli Tryggva­son lög­maður
  • Glúmur Bald­vins­son leið­sögu­maður
  • Guð­fríður Lilja Grét­ars­dóttir, starf­andi yfir­maður sam­vinnu­sviðs mann­rétt­inda­stofn­ana Evr­ópu­ráðs­ins
  • Guðjón Rún­ars­son lög­maður
  • Guðný Kára­dóttir verk­efna­stjóri
  • Guðrún Björk Bjarna­dóttir fram­kvæmda­stjóri
  • Guðrún E. Sig­urð­ar­dóttir mennta­skóla­kenn­ari
  • Gunnar Þór Pét­urs­son pró­fessor
  • Gunnar Þorri Þor­leifs­son kenn­ari
  • Hanna Guðfinna Bene­dikts­dóttir fram­kvæmda­stjóri
  • Hans F. H. Guð­munds­son full­trúi
  • Hildur Hörn Daða­dóttir fram­kvæmda­stjóri
  • Hreinn Pálsson sendi­full­trúi
  • Ingi­björg Ólafs­dóttir fram­kvæmda­stjóri
  • Jóhann Bene­dikts­son mark­aðs­stjóri
  • Jóhanna Bryndís Bjarna­dóttir deild­ar­stjóri
  • Jörundur Krist­jáns­son for­stöðu­maður
  • Kristján Guy Burgess stjórn­mála­fræð­ingur
  • Lilja Sigrún Sig­mars­dóttir við­skipta­stjóri
  • Magnús K. Hann­es­son sendi­full­trúi
  • Margrét Hall­gríms­dóttir þjóð­minja­vörður
  • Margrét Hauks­dóttir for­stjóri
  • Matthías Ólafsson mark­aðs­stjóri
  • Monika Waleszczynska við­skipta­stjóri
  • Nína Björk Jóns­dóttir sendi­full­trúi
  • Pétur G. Thor­steins­son vara­prótókoll­stjóri
  • Rósa Guðrún Erlings­dóttir sér­fræð­ingur
  • Salvör Sigríður Jóns­dóttir mót­töku­rit­ari
  • Sif Gunn­ars­dóttir skrif­stofu­stjóri
  • Sigríður Helga Sverr­is­dóttir kenn­ari
  • Sigrún Lilja Guð­bjarts­dóttir fram­kvæmda­stjóri
  • Sigurður Nordal, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands
  • Sigurjón Sig­ur­jóns­son verk­efna­stjóri
  • Sig­ur­jóna Sverr­is­dóttir fram­kvæmda­stjóri
  • Sólveig Kr. Bergmann sam­skipta­stjóri
  • Stefán Vil­bergs­son verk­efn­is­stjóri
  • Steinar Almars­son leið­sögu­maður
  • Urður Gunn­ars­dóttir stjórn­mála­fræð­ingur
  • Valdimar Björns­son fjár­mála­stjóri
  • Þorgeir Pálsson sveit­ar­stjóri
  • Þor­valdur Víðisson bisk­ups­rit­ari
  • Þóra Ing­ólfs­dóttir for­stöðu­maður
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár