Danir velta fyrir sér stórframkvæmd án hliðstæðu

Máls­hátturinn „orð er til alls fyrst“ á sannarlega við um þá stór­framkvæmd sem danskir þingmenn ræða nú sín á milli, og þær umræður eru algjör­lega óháðar pólitískum flokks­línum. Þessi framkvæmd sem dönsku þing­mennirnir skeggræða yrði ekki að veruleika, fyrr en eftir í fyrsta lagi 20 ár þótt ákvörðun um hana yrði tekin á morgun. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið en þessi stór­framkvæmd myndi, á verðlagi dagsins í dag, kosta 122 milljarða danskra króna, eða um það bil 2500 milljarða íslenskra króna. Þetta yrði lang stærsta og dýrasta framkvæmd sem Danir hafa nokkru sinni ráðist í, brýrnar yfir Eyrarsund og Stóra­belti eru nánast smámunir í saman­burðinum. Áætlaður kostnaður við hin fyrir­huguðu göng undir Femern sundið (tengja Danmörku og Þýskaland) nemur einungis þriðjungi þess sem hér er um rætt, nefnilega brú yfir Kattegat!

Tengir saman Sjáland og Jótland


Þegar danskur þing­maður sagði við umræður í danska þing­inu, fyrir um það bil tíu árum síðan, að fyrir miðja þessa öld yrði búið að tengja saman Sjáland og Jótland án þess að fara um Fjón var hlegið að honum. Það gerir engin í dag. Þegar þing­mað­ur­inn lét þessi orð falla voru rétt um sex ár síðan Stóra­beltisteng­ingin milli Sjálands og Fjóns var tekin í notkun og fáir, nema þing­mað­ur­inn áður­nefndi, létu sér til hugar koma að þörf yrði á tengja beint saman Sjáland og Jótland. Stóra­belt­is­brúin, eins og teng­ingin er ætíð kölluð, er 17 kíló­metra löng og sam­anstendur af tveim brúm, göngum og upp­byggðum vegi. Ljóst er að teng­ing milli Sjálands og Jótlands yrði miklu lengri, en hve löng hún yrði færi eftir stað­setn­ing­unni, sem ekki er enn farið að ræða.

Af hverju tenging yfir Kattegat?


122 millj­arðar danskra króna eru miklir pen­ingar og því eðli­legt að spurt sé hvers vegna verið sé að tala um svo fjár­freka fram­kvæmd og hvort hún sé nauð­syn­leg. Danskur þing­maður sem rætt var við í einu dag­blað­anna hér sagði aug­ljóst að fram­kvæmd sem þessi væri afar dýr en ekki þýddi að horfa ein­göngu á þá hlið máls­ins. Ef allir hefðu alltaf gert það hefðu fá fram­fara­spor verið stigin í henni ver­öld.

Hins vegar dyldist engum að kröfurnar og þörfin fyrir betri og tryggari samgöngur ykjust sífellt og þegar um svo flókið og sérstakt verk væri að ræða þyrfti að hafa tímann fyrir sér.

Frá byggingu Eyrar­sunds­brúarinnar. Smíði brúarinnar lauk 14. ágúst 1999 en vegurinn var vígður 1. júlí árið 2000.

Frá byggingu Eyrarsundsbrúarinnar. Smíði brúarinnar lauk 14. ágúst 1999 en vegurinn var vígður 1. júlí árið 2000.
Frá bygg­ingu Eyr­ar­sunds­brú­ar­innar. Smíði brú­ar­innar lauk 14. ágúst 1999 en veg­ur­inn var vígður 1. júlí árið 2000.

Í rauninni er þessi Kattegatstenging aðeins hluti af miklu stærra máli. Það er nefnilega nokkuð síðan stjórn­málamenn hér í Danmörku og Svíþjóð, þeirra á meðal samgöngu­ráðherrar landanna, fóru að tjá sig um nauðsyn þess að tengja saman með brú eða göngum þessi tvö lönd, til viðbótar Eyrar­sundsbrúnni sem tekin var í notkun sumarið 2000. Sjónir stjórn­málamanna jafnt og sérfræðinga um samgöngumál beinast ætíð að Helsingja­borg og Helsingja­eyri, þar er fjar­lægðin yfir sundið aðeins 5 kíló­metrar. Með sífellt fullkomnari tækni er orðið bæði einfaldara og ódýrara að leggja göng (einskonar risahólk sem liggur á sjávar­botni) en að bora eins og áður var gert. Þetta tvennt, Kattegatstenging og ný Eyrar­sunds­tenging ásamt nýjum vegi yfir Sjáland myndi gjör­breyta samgöngum milli Svíþjóðar (og Noregs) og Jótlands og þaðan áfram til Þýska­lands og suður í Evrópu og einnig til Póllands. Þegar það er svo líka tekið með í reikninginn að talið er að bæði Eyrar­sundsbrúin og brúin yfir Stóra­belti verði full­nýttar (anni ekki meiri umferð) eftir í hæsta lagi 20 ár er augljóst að horfa þarf til nýrra lausna.

Hvað með kostnaðinn, getur Kattegatstenging orðið arðbær?


Auðvitað vakn­aði þessi spurn­ing strax þegar farið var að ræða hug­mynd­ina. Kattegat­s­nefndin, hópur áhuga­fólks, fékk ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Ernst & Young til að meta arð­semi hugs­an­legrar teng­ingar yfir Kattegat. Nið­ur­staða fyr­ir­tæk­is­ins var að þrátt fyrir mik­inn kostnað myndi fram­kvæmdin borga sig upp á 30 árum, sem þykir stuttur tími. Þá er miðað við að greitt sé veg­gjald líkt og gert er á brúnum yfir Eyr­ar­sund og Stóra­belti.

Skýrsla Ernst & Young vakti mikla athygli hér í Danmörku. Kannski er hún ein helsta ástæða þess að nú segja sífellt fleiri stjórn­málamenn og umferðar­sérfræðingar að það sé ekki lengur spurning hvort heldur hvenær hægt verður að ferðast með ökutæki yfir Kattegat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár