Ekki samstaða í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd um breytingu á kosningaaldri

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist ekki vilja færa kosn­inga­ald­ur­inn niður í 16 ár á meðan ekki sé hægt að bjóða sig fram og lög­ræð­is­aldur sé 18 ár.

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson. Mynd: Anton Brink

Ekki er sam­staða um nefnd­ar­á­lit með breyt­ing­ar­til­lögu lagt var fram af meiri­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar síð­ast­lið­inn fimmtu­dag um frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um kosn­ingar til sveit­ar­stjórna, þar sem lagt er til að kosn­inga­aldur verði lækk­aður niður í 16 ár.

Þeir sem standa að meiri­hluta­á­lit­inu eru þing­menn frá Vinstri grænum, Sam­fylk­ingu, Viðreisn, Framsókn og Pírötum. Minni­hlut­inn í nefnd­inni sam­anstendur hins vegar af þing­mönnum frá Sjálf­stæð­is­flokki, einum frá Fram­sókn­ar­flokki og einum frá Mið­flokknum. Meiri­hluta­á­litið er því ekki lagt fram eftir hefð­bundnum víg­línum. Tveir stjórn­ar­þing­menn í nefnd­inni standa að álit­inu ásamt þremur stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönnum á meðan þrír stjórn­ar­þing­menn og einn stjórn­ar­and­stæð­ingur eru ekki fylgj­andi því.

Meiri­hlut­inn sam­anstendur af Kolbeini Ótt­ars­syni Proppé, Helgu Völu Helga­dóttur, Jóni Þóri Ólafs­syni, Jóni Stein­dóri Valdi­mars­syni og Þórunni Egils­dóttur. Þeir sem eru í minni­hlut­anum eru Brynjar Níelsson, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Óli Björn Kárason og Þor­steinn Sæmunds­son.

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir í sam­tali við Kjarnann prinsipp­á­stæður vera að baki afstöðu hans. „Ég lít svo á að því fylgi mikil ábyrgð að geta kosið. Mér finnst að þeir sem geta kosið ættu einnig að geta boðið sig fram,“ segir hann.

Brynjar seg­ist ekki vera mót­fall­inn 16 ára kosn­inga­aldri en hann telur að sam­ræma þurfi lög­ræð­is­ald­ur­inn að sama skapi. „Ég vil bara að menn séu sam­kvæmir sjálfum sér.“

Býst við að málið verði afgreitt fyrir páska

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna og fram­sögu­maður nefnd­ar­á­lits­ins, segir að þetta mál sé hluti af alþjóð­legri umræðu sem lúti að því að efla lýð­ræð­is­þátt­töku ungs fólks. Hann bendir á að Vinstri græn hafi áður lagt fram sam­bæri­legt mál en Katrín Jak­obs­dóttir lagði fram frum­varp í fyrra er varðar kosn­inga­aldur.

„Við teljum mjög mik­il­vægt að efla lýð­ræð­is­þátt­töku. Á þessum aldri eru þau farin að greiða skatta af tekjum sínum og þá er eðli­legt að þau taki þátt í kosn­ingum.“

Kolbeinn seg­ist ekki búast við öðru en að hægt sé að afgreiða málið fyrir páska. Hann segir að mik­il­vægt sé að nið­ur­staða fáist í málið og ef ekki sé meiri­hluti fyrir því á þing­inu þá þurfi það að koma fram.

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tekur í sama streng og Brynjar. Hann segir að mörg gild rök séu fyrir því að lækka kosn­inga­aldur en hann telur að þá þurfi að breyta sjálf­ræð­is­aldr­inum á sama tíma. Jafn­framt þyrfti kjör­gengi að fylgja. Hann segir að breyt­ing­arnar ættu að ná yfir allar kosn­ingar, ekki ein­ungis sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Ýmiss réttindi miðast við annan aldur en lögræðisaldur

Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að með frum­varp­inu sé lagt til að ald­urs­mörk kosn­ing­ar­réttar í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum verði við 16 ára aldur í stað 18 ára. Mark­miðið með frum­varp­inu sé að styðja við lýð­ræð­is­þátt­töku ungs fólks og auka tæki­færi þess til að hafa áhrif á sam­fé­lagið sem virkir og ábyrgir þátt­tak­endur.

„Nefndin ræddi nokkuð um rétt­indi og skyldur barna og skyldur for­sjár­for­eldra en sam­kvæmt lög­ræð­is­lögum verða menn lög­ráða 18 ára en fram að því ráða for­eldrar per­sónu­legum högum barns­ins, þ.e. fara með for­sjá þess. Í því felst skylda til að taka ákvarð­anir um upp­eldi barns og réttur barns­ins til að njóta for­sjár for­eldr­anna. Ýmis rétt­indi og skyldur barna mið­ast við annan aldur en lög­ræð­is­aldur auk þess sem skv. 5. gr. samn­ings­ins um rétt­indi barns­ins skulu börn njóta sívax­andi rétt­inda miðað við aldur og þroska.

Í ein­stökum lögum er með beinum hætti mælt fyrir um rétt­ar­stöðu barns yngra en 18 ára, t.d. ráða börn sjálfsaflafé og gjafafé sínu sam­kvæmt lög­ræð­is­lögum, réttur til að skrá sig í trú­fé­lag er mið­aður við 16 ár, réttur til að taka ákvörðun um fóst­ur­eyð­ingu er mið­aður við 16 ár og í lögum um rétt­indi sjúk­linga er rétt­ur­inn til að taka ákvörðun um heil­brigð­is­þjón­ustu mið­aður við 16 ár svo að eitt­hvað sé nefnt.

Meiri hlut­inn telur að það sé rétt skref að veita 16 ára börnum rétt til að kjósa og þurfa þau þá að fara að þeim fyr­ir­mælum sem eiga við um kjós­endur og kveðið er á um í kosn­inga­lögum. Meiri hlut­inn tekur fram að í for­sjá for­eldr­anna felst ekki réttur for­eldra til að taka ákvörðun fyrir börnin um hvað þau eigi að kjósa eða til að aðstoða börn sín á kjör­stað í krafti for­sjár­skyldna,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár