Nýjasta nýtt í eftirlíkingabransanum

Hefur þú einhvern tíma keypt eftir­líkingu af úri, hálsbindi, handtösku, sólgleraugum eða einhverju öðru sem þú veist að er ekki ekta? Mjög margir geta ugglaust svarað þessari spurningu játandi og enn fleiri hafa kannski keypt eitthvað í þeirri trú að um ekta vöru sé að ræða. Eftir­líkinga „iðnaðurinn“ á sér langa sögu, einkum í Asíu. Undan­farið hafa danskir bankamenn margoft séð annars konar eftir­líkingar sem ferða­langar frá Asíu hafa reynt að koma í verð.

Starfs­maður í Jyske bank í miðborg Kaupmanna­hafnar sperrti eyrun og leit af tölvu­skjánum þegar hann heyrði óvenjulegt hljóð, eins og hringl í peningum. Sá þá að lágvaxinn maður af asískum uppruna var að rogast inn í afgreiðsluna með, að því er virtist, þungan poka­skjatta á bakinu. Þeir sem slíka poka bera eru iðulega á ferðinni í desember, rauð­klæddir og gráskeggjaðir. Þessi pokaberi var ekki þannig klæddur og auk þess var þetta í apríl.

Maðurinn með pokann gekk rakleitt að sérstakri vél sem tekur við og telur smámynt og byrjaði að tæma úr pokanum. Banka­manninum sýndist peningarnir allir vera danskir 10 krónu peningar og eftir að hafa ráðfært sig við yfirmann hringdi starfs­maðurinn í lögregluna sem var fljót á staðinn en beið átekta fyrir utan. Þegar maðurinn fór með kvittunina úr talninga­vélinni til gjaldkerans greip lögreglan inn í og handtók manninn. Starfs­fólk bankans taldi strax að 10 krónu peningarnir úr pokanum, sem voru 3 þúsund talsins, væru „heima­tilbúnir“ og þegar lögreglan leitaði á hótel­herbergi sem poka­maðurinn (frá Suður-Kóreu) leigði kom í ljós að hann hafði skipt álíka mörgum peningum í nokkrum öðrum bönkum í Kaupmanna­höfn án þess að vekja eftirtekt.

Danska 10 krónu myntin.

Ekki einsdæmi


Þessi saga er ekki eins­dæmi. Á und­an­förnum mán­uðum hefur danska lög­reglan margoft haft hendur í hári manna sem komið hafa með mikið magn smá­myntar, einkum 20 krónu pen­inga (20 danskar krónur eru rúm­lega 400 íslenskar) en einnig smærri mynt, allt niður í 10 aura.

Danska 10 krónu myntin.
Danska 10 krónu myntin.

Langflestir þessara manna eru Kínverjar en einnig frá öðrum Asíu­löndum og nokkrir Serbar hafa verið hand­teknir hér í Danmörku vegna sömu iðju. Fyrir nokkrum dögum var Kínverji dæmur í 18 mánaða fangelsi í Bæjar­réttinum hér í Kaupmanna­höfn, sá hafði komið í danska Seðla­bankann (af öllum stöðum) og reynt að skipta þar 75 þúsund dönskum krónum í 20 krónu peningum í seðla.

Danska 20 króna myntin.

Skrautlegar skýringar


Þegar kemur að því að útskýra hvernig á því standi að við­kom­andi hafi kom­ist yfir þessa pen­inga skortir ekki skraut­legar skýr­ingar, sumar í anda Munchausens bar­óns sem krítaði lið­ugt þegar hann sagði frá afrekum sínum. Einn sagð­ist bara hafa gengið fram á marga poka af smá­pen­ingum þegar hann var að fylla lungun lofti, eins og hann orð­aði það. Annar sagði að vinur sinn keypti gömul bíl­hræ og úr sér gengnar þvotta­vélar frá Evrópu og það væri, að sögn vin­ar­ins, aldeilis með ólík­indum hvað leynd­ist í þessu gamla dóti sem Evr­ópu­búar væru að losa sig við. Sá þriðji sagði að sig hefði dreymt til­tek­inn stað og fyrir for­vitni sakir fór hann þangað og viti menn: þar beið dönsk mynt í stórum haug. Danska lög­reglan hefur sam­visku­sam­lega skráð allar þessar frá­sagnir, eins og vera ber. Einn af yfir­mönnum lög­regl­unnar sagði að sumar þess­ara frá­sagna fengju örugg­lega inni í bók­inni „Skemmti­sögur úr starfi lög­regl­unnar“ ef sú bók yrði ein­hvern­tíma skrifuð.

Af hverju danskir peningar?


Danskir mynt­sér­fræð­ingar og lög­reglan hafa reynt að geta sér til um ástæður þess að asískir „mynt­fram­leið­endur“ beina kröftum sínum að danskri mynt. Sér­fræð­ing­arnir segja að dönsk mynt sé ein­fald­ari í fram­leiðslu en t.d breska myntin, evru­myntin sé mjög flókin að gerð og því mikil kúnst að fram­leiða hana „í bíl­skúrnum.“ Að fram­leiða seðla er mjög flókið og slík fram­leiðsla dæmd til að mis­takast að sögn sér­fræð­inga. Tals­maður lög­reglu sagði í við­tali að asíu­menn­irnir geri sér ekki grein fyrir smæð Dan­merkur, hér frétti allir allt nán­ast sam­dæg­urs. Að maður hafi komið með fals­aða pen­inga í banka á Skagen nyrst á Jótlandi frétt­ist strax um allt land.

Hvernig sést hvort mynt er fölsuð?


Lög­reglan og sér­fræð­ingar danska Seðla­bank­ans vilja ekki segja í smá­at­riðum frá aðferðum til að greina hvort mynt sé fölsuð. Ein þeirra aðferða sem sér­fræð­ingar nota er að leggja pen­ing­ana í bleyti í sér­staka efna­blöndu og enn fremur að slípa yfir­borð pen­ing­anna. Þá sést hve mik­ill þrýst­ingur er not­aður til að þrykkja (stansa) mynt­ina, sem líka hefur áhrif á þyngd pen­ing­anna. Margar fleiri aðferðir eru líka not­aðar til að ganga úr skugga um hvað sé ekta og hvað ekki.

Danska 20 króna myntin.
Danska 20 króna myntin.

Á annan tug asískra manna dúsa nú í grjótinu hér í Danmörku, sumir afplána dóma sem þeir hafa hlotið vegna tilrauna til myntsölu, aðrir bíða dóms vegna svipaðra mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár