Kjósa um sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi í næsta mánuði

Kosið verður um sameiningu fjögurra sveitar­félaga á Austur­landi í lok næsta mánaðar. Samkvæmt núverandi skipulagi sitja 113 fulltrúar í stjórnum, ráðum eða nefndum á vegum sveitar­félaganna en með nýja skipulaginu verður fulltrúum fækkað niður í 42.

Djúpivogur
Djúpi­vogur Mynd: Wiki Commons/Chensiyuan

Kosið verður um sameiningu Fljótsdals­héraðs, Seyðis­fjarðar, Borgar­fjarðar eystri og Djúpavogs í lok næsta mánaðar. Ef til sameiningar kemur verður núverandi stjórn­skipulagi sveita­stjórnanna breytt.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Róberti Ragnars­syni, verkefna­stjóra sameiningar Sveitar­félagsins Austur­lands, og Birni Ingimars­syni, bæjar­stjóra á Fljótsdals­héraði og formanns samstarfs­nefndar um sameiningu sveitar­félaga á Austur­landi.

Ný tegund stjórn­skipulags verður sem sagt tekin í gagnið verði af sameiningu þessara fjögurra sveitar­félaga. Í tilkynningunni segir að stjórn­skipulagið byggi á einfaldri og skilvirkri stjórn­sýslu, ásamt vald­dreifingu til heima­stjórna sem fara með tiltekin nærþjónustuverkefni. Markmiðið með heima­stjórnunum sé að tryggja áhrif íbúa á nærþjónustu og bregðast við þeirri gagnrýni að jaðar­byggðir missi áhrif í sameinuðum sveitar­félögum.

Fulltrúar úr 113 í 42

Ellefu kjörnir fulltrúar munu taka sæti í bæjar­stjórn og verða þrjú fagráð starfandi. Fimm fulltrúar verða í byggða­ráði, sjö í fjölskyldu­ráði og sjö í umhverfis­ráði. Þar að auki verða fjórar heima­stjórnir og ýmis notendaráð, svo sem ungmenna-og öldungaráð.

Samkvæmt núverandi skipulagi sitja 113 fulltrúar í stjórnum, ráðum eða nefndum á vegum sveitar­félaganna fjögurra. Með nýja skipulaginu verður fulltrúum fækkað niður í 42 og verður hlutverk þeirra og ábyrgð veiga­meira en áður, samkvæmt tilkynningunni. Hvert ráð mun funda vikulega en hugmyndin með ráðunum er að stytta boðleiðir og flýta afgreiðslu mála.

Bæjarstjórnin framselur hluta af valdi sínu til heimastjórna

Samkvæmt nýja skipulaginu framselur bæjar­stjórnin hluta af valdi sínu til heima­stjórna en þessi tilhögun byggir á tilrauna­ákvæði um stjórn og stjórn­skipulag einstakra sveitar­félaga í sveitar­stjórnar­lögum frá árinu 2011. Ef af sameiningu verður er það í fyrsta sinn sem þetta ákvæði er nýtt.

Heima­stjórnir verða fjórar og munu þrír fulltrúar munu sitja í hverri heima­stjórn, tveir sem kosnir eru beinni kosningu af íbúum á hverju svæði fyrir sig og einn sem á sæti í bæjar­stjórn. Fulltrúarnir þrír eru allir jafn réttháir. Í tilkyn­inngunni segir að með þessu móti verði sterk tenging á milli bæjar­stjórnar og heima­stjórna.

Aðalskipulag áfram í höndum bæjarstjórnar

Heima­stjórnir munu sinna ýmsum nærþjónustuverkefnum og fara meðal annars með afgreiðslu deili­skipulags á sínu svæði sem er veiga­mikill þáttur í hverju sveitar­félagi. Aðal­skipulag verður hins vegar áfram í höndum bæjar­stjórnar.

Þá mun bæjar­stjórnin setja umhverfis­stefnu fyrir sameinað sveitar­félag í heild sinni en verkefni náttúru­verndar­nefnda verða á hendi heima­stjórna á hverju svæði fyrir sig. Í því felst meðal annars að heima­stjórnir hafa mikil áhrif á ákvarðanir um frið­lýsingar og framkvæmdir í nærumhverfinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár