Bankamaður fer í kannabisbransann

Fyrr­verandi banka­maður hjá Barclays sér mikil tækifæri í vaxandi löglegum kannabis­markaði í Banda­ríkjunum.

Í Banda­ríkjunum hefur fjár­festing í kannabis­ræktun og þróun lyfja úr kannabis aukist mikið, ekki síst í Washington-ríki, þar sem kannabis­neysla eru stunduð löglega. Mörg lítil fyrirtæki hafa orðið til á skömmum tíma, sem sinna ræktun, sölu og dreifingu á kannabis­efnum.

Einn þeirra nú hefur veðjað á mikinn vöxt á þessar umdeildu syllu – sem er ólögleg í einu ríkinu en lögleg í öðru, eins og ótrúlegt og það hljómar – er Roger Jenkins, fyrr­verandi banka­maður hjá Barclays bankanum breska. Hann var árum saman með hæstlaunuðu banka­mönnum Barclays og hafði það verkefni að safna fjármunum frá Miðausturlöndum inn í eigna­stýringu bankans, einkum sjóði sem reknir voru í sjálf­stæðum rekstrar­félögum. Þá var hann einnig í því að safna nýjum hluthöfum á svæðinu.

Gerir út frá Kaliforníu

Hann hætti störfum árið 2009 og hefur lítið farið fyrir honum síðan þá, en nú hefur sjóður í hans eigu keypt land í Kaliforníu og hyggst hann stunda þar kannabis­ræktun, löglega, og vinna efni til sölu. Bloomberg greinir frá því í dag, að Jenkins hafi verið í lykil­hlutverki innan Barclays þegar bankinn náði í miklar fjárhæðir frá umdeildum fjár­festum í Miðausturlöndum, samtals um 15,5 milljarða Bandaríkja­dala. Þessar fjár­festingar björguðu fjárhag bankans mitt í hruninu, haustið 2008, og gerðu það að verkum að bankinn þurfti ekki á ríkis­aðstoð að halda eins Royal Bank of Scotland, og raunar margir fleiri.

En af hverju er Jenkins nú farinn að horfa í kannabis­efnin? Ástæðan er ör stækkun markaðar fyrir lyf sem unnin eru úr kannabis, og síðan vaxandi þrýstingur í mörgum ríkjum Banda­ríkjanna, þar sem notkun kannabis­efna er lögleg til eigin nota. Talið er að markaður með lækningalyf sem unnin eru úr kannabis­efnum í Kaliforníu muni marg­faldast á næstu árum og verði eftir rúmlega þrjú ár 2,6 milljarða Bandaríkja­dala, saman­borið við undir einn milljarða núna. Á landsvísu verður geirinn síðan margfalt stærri, og ef fleiri ríki löglega kannabis­neyslu hjá full­orðnum þá gæti orðið til risa­vaxinn iðnaður sem Jenkins telur að þurfi fagþekkingu frá fjár­festum.

Kannabissprotar

Eitt stærsta fyrir­tækið sem nú leiðir þróun í kannabis­fjár­festinum er Privateer Holdings, sem er staðsett í Seattle í Washington ríki. Milljarðamæringurinn Peter Thiel hefur lagt því fyrirtæki til 75 milljónir Bandaríkja­dala, eða jafnvirði tæplega 10 milljarða króna, en fyrir­tækið er einkum að framleiða og skipuleggja sölu á maríjúana, sem unnið er úr kannabis­plöntum.

Ekki laus allra mála

Þó Jenkins sé farinn að huga að kannabis­efnunum þá er hann ekki laus undan rannsókn breskra yfirvalda, sem eru með fjár­mögnun Barclays bankans, haustið 2008, til rann­sóknar. Málið snýst meðal annars um hvort fjár­festingar frá fjár­festum í Miðausturlöndum hafi verið löglegar. Rannsókn SFO, efnahags­brota­deildarinnar í Bretlandi, hófst árið 2012 og kemur fram í umfjöllun Bloomberg að líkur standi til þess að henni ljúki í lok árs. Meðal þess sem er verið að skoða, er fjár­festing frá Al-Thani fjöl­skyldunni í Qatar í bankanum, haustið 2008. Í heild keypu fjár­festar 13 prósent hlut í bankanum fyrir 7,5 milljarða punda, eða sem nemur um 1.300 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár