Lífskjarasamningurinn heldur – „Ánægjuleg niðurstaða“

Formaður VR segist vera létt að lífs­kjara­samningurinn haldi. Engin stemning hafi verið hjá atvinnu­lífinu né almenningi að fara í átök við þessar aðstæður.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Lífs­kjara­samningurinn mun halda gildi sínu þar til hann rennur út þann 1. nóvember 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Alþýðu­samband Íslands (ASÍ) sendi frá sér í dag.

Samninga­nefnd Alþýðu­sambands Íslands og framkvæmda­stjórn Samtaka atvinnu­lífsins hittust á fundi í dag um framhald lífs­kjara­samningsins en bregðist forsendur getur hvor aðili sagt honum upp fyrir klukkan 16:00 þann 30. september næst­komandi.

Í tilkynningunni segir að lífs­kjara­samningurinn hvíli á forsendum sem ekki hafi fullkomlega staðist þar sem stjórn­völd hafi ekki efnt öll fyrirheit í yfir­lýsingu sinni þann 4. apríl 2019.

Á fundi aðila kom fram vilji af beggja hálfu til þess að samningar standi og halda þeir því gildi sínu þar til þeir renna út á næsta ári.

Mikilvægt að ríkisstjórnin vinni sér aftur inn traust

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir í samtali við Kjarnann að forsendu­bresturinn sem varð í endur­skoðuninni hafi nánast eingöngu snúið að vanefndum stjórn­valda.

„Báðir aðilar voru sammála um það en það var tekin ákvörðun um það að standa við samninginn. Við munum síðan reyna eftir fremsta megi að klára þau mál sem eftir standa við næstu ríkis­stjórn hvort sem hún verði sú sama eða einhver önnur.

Af því að það er gríðar­lega mikilvægt fyrir sitjandi ríkis­stjórn að vinna aftur það traust sem hún hefur tapað gagnvart aðilum vinnu­markaðarins. Þú getur ekki farið í þríhliða samkomulag við aðila sem hefur þver­brotið allt sem hann hefur sagst ætla að gera og lofað,“ segir hann.

Engin stemning að fara í átök

Ragnar Þór segir að þessi niður­staða hafi verið fyrir­sjáanleg og að „engin stemning“ hafi verið hvorki hjá atvinnu­lífinu né almenningi að fara í átök við þessar aðstæður. „Þannig að þetta er ákveðinn léttir. Það er lítið eftir af samningnum, það er ekki eftir nema ár af honum þannig að við getum notað þann tíma vel. Við erum að fá hækkun núna um áramótin og mögulegan hagvaxtar­auka, þannig að það á töluvert mikið eftir að koma úr samningnum. Þetta var því mjög ánægjuleg niður­staða.“

Hann segist vera mjög feginn að ekki verið drama í kringum þessa ákvörðun „eins og oft hefur verið í kringum verkalýðs­hreyfinguna og aðila vinnu­markaðarins“.

„Mér er mjög létt. Það var ágætis hljóð í fólki á fundinum í dag og mikill vilji til að fara að hefja vinnu við næstu samninga mjög fljótlega. Þannig að þetta er held ég bara mjög ánægjuleg niður­staða fyrir samfélagið og þjóðina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár