Sigrún Ágústsdóttir skipuð forstjóri Umhverfisstofnunar

Umhverfis- og auðlinda­ráðherra hefur skipað Sigrúnu Ágústs­dóttur í embætti forstjóra Umhverf­is­stofnuanr frá og með deginum í dag.

Sigrún Ágústsdóttir
Sigrún Ágústs­dóttir Mynd: Umhverfisstofnun

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, hefur skipað Sigrúnu Ágústs­dóttur í embætti forstjóra Umhverfisstofnuanr frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Sigrún lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 1995. Hún hefur starfað að umhverfis­málum í um 20 ár, þar af sem sviðs­stjóri hjá Umhverfis­stofnun frá árinu 2008 og var auk þess stað­gengill forstjóra áður en hún var settur forstjóri í október síðastliðnum.

Þá starfaði hún sem lögfræðingur hjá umhverfis- og auðlinda­ráðuneytinu frá 2000-2008. Fyrir þann tíma starfaði hún sem lögfræðingur hjá Fangelsis­mála­stofnun ríkisins.

Sigrún hefur sinnt próf­dómara­störfum og stunda­kennslu við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík meðfram starfi sínu, m.a. í umhverfis­rétti og stjórn­sýslu umhverfis­mála. Þá hefur hún verið samræmingar­aðili Umhverfis­stofnunar og gagnvart IMPEL, samtökum umhverfis­stofnana í Evrópu.

Eigin­maður Sigrúnar er Davíð Pálsson tækni­maður og eiga þau tvö börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár