Samkeppniseftirlitið: Full þörf að virkja samkeppni í lyfjainnkaupum

Sam­keppn­is­eft­ir­litið tekur undir umfjöllun Kast­ljóss um litla sam­keppni við lyfjainn­kaup hér­lendis. Það ætlar að að fylgja mál­inu eftir.

Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson er for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur gefið frá sér yfir­lýs­ingu um að hvetja til auk­innar sam­keppni við inn­kaup á lyfjum á Íslandi. Yfir­lýs­ingin kom í kjöl­far Kast­ljósum­fjöll­unar þann 1. júní um ein­okun lyfja­heild­sala á lyfja­kaupum Land­spít­al­ans.

Samkvæmt Kast­ljósum­fjöll­un­inni hefur Land­spít­al­inn orðið af millj­arða sparn­aði vegna inn­kaupa­laga hins opin­bera sem tor­veldur Land­spít­al­anum að kaupa lyf af öðrum en íslenskum dreif­ing­ar­að­ilum.Tvær heild­sölur, Distica og Parlogis, sjá um dreif­ingu og sölu lyfja á Íslandi fyrir öll stærstu lyfja­fyr­ir­tæki heims, en skortur á sam­keppni á þeim mark­aði hefur leitt til hás lyfja­verðs og lít­ils úrvals lyfja­teg­unda.

Í umfjöll­un­inni kemur fram að hags­muna­að­ilar íslenskra lyfja­fyr­ir­tækja hafi tor­veldað Land­spít­al­anum að taka þátt í lyfja­út­boði með öðrum Norð­ur­löndum. Hindr­unin hafi falist í því að krefj­ast sam­keppn­is­mats frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu áður en tekið er þátt í útboð­inu. Í yfir­lýs­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins kemur hins vegar fram að engin hindrun felist í umræddu sam­keppn­is­mati. Enn fremur er vakin athygli á því að Land­spít­al­inn hafi aldrei reynt á að sækja um sam­keppn­is­matið.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að það sé full þörf á að virkja betur sam­keppni við inn­kaup á lyfjum á Íslandi. Til dæmis væri það hægt með sam­eig­in­legum inn­kaupum með öðrum Norð­ur­landa­þjóðum, líkt og greint var frá í Kast­ljósum­fjöll­un­inni. Enn fremur hyggst Sam­keppn­is­eft­ir­litið fylgja þessu máli nánar eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár