Landsbankinn mátti ekki greiða starfsfólki sínu 85 milljónir í aukagreiðslur

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Lands­bank­inn hafi brotið gegn lögum með því að greiða starfs­fólki sínu auka­greiðslur vegna tíma­bund­ins álags á árunum 2014 til 2016. Greiðsl­urnar fóru til 76 starfs­manna.

Lands­bank­inn braut gegn reglum um kaupauka­kerfi sam­kvæmt lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki með auka­greiðslum sem komu til við­bótar föstum greiðslum til starfs­manna bank­ans á árunum 2014 til 2016. Þetta er nið­ur­staða athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á umræddum auka­greiðslum. Eft­ir­litið telur þó ekki ástæðu til að beita neinum við­ur­lögum vegna brots­ins.

Alls námu greiðsl­urnar 85 millj­ónum króna og voru greiddar til 76 starfs­manna sem starfa á öllum sviðum bank­ans. Hvorki banka­stjóri Lands­bank­ans á þessum tíma né fram­kvæmda­stjórar fengu auka­greiðsl­urnar.

Bankinn rök­studdi greiðsl­urnar með því að þær væru til­komnar vegna tíma­bund­ins álags í starfi. Hins vegar var hvorki vísað til þeirra í ráðn­ing­ar­samn­ingum né voru gerðir sér­stakir skrif­legir við­aukar við ráðn­ing­ar­samn­inga vegna þeirra.

Upphaf máls­ins var að Lands­bank­inn til­kynnti Fjár­mála­eft­ir­lit­inu sjálfur um að hann væri með til skoð­unar hvort að greiðsl­urnar sam­rýmd­ust reglum um kaupauka­kerfi sam­kvæmt lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur byggt á þeirri skil­grein­ingu að starfs­kjör starfs­manna séu annað hvort föst starfs­kjör eða kaupaukar, sem sér­stakar reglur gilda um. Ekki sé um aðra flokka að ræða sem auka­greiðslur Lands­bank­ans gætu fallið undir.

Í nið­ur­stöðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem birt var í dag, segir að Lands­bank­inn hafi ekki sýnt fram á að til­teknar auka­greiðslur gætu talist til fastra starfs­kjara, þar sem end­an­leg fjár­hæð eða umfang lá ekki fyrir með nákvæmum hætti fyrir fram, og þær hafi því falið í sér kaupauka. Þá hafi legið fyrir að Lands­bank­inn var ekki með kaupauka­kerfi og greiðsl­urnar voru því ekki inntar af hendi á grund­velli slíks kerfis. „Lands­bank­inn hf. hefði þar af leið­andi brotið gegn 57. gr. a fftl., 3. gr. reglna nr. 700/2011 og 3. gr. reglna nr. 388/2016, um kaupauka­kerfi, með því að hafa árunum 2014 til 2016 greitt hluta af starfs­mönnum sínum auka­greiðslur sem komu til við­bótar föstum launum þeirra án þess að það hafi verið gert á grund­velli kaupauka­kerfis.“

Fjár­mála­eft­ir­litið horfði til þess, við mat á við­ur­lögum í mál­inu, að Lands­bank­inn hafði gert lík­legt að auka­greiðsl­urnar hefðu verið inntar af hendi vegna tíma­bund­ins álags í starfi. „Þá voru greiðsl­urnar óveru­legar sem hluti af heild­ar­launa­kostn­aði bank­ans á þeim árum sem voru til skoð­unar. Enn fremur sýndi bank­inn sam­starfsvilja og hafði, áður en nið­ur­staða máls­ins lá fyrir, horfið frá umræddu fyr­ir­komu­lagi við greiðslu álags­greiðslna og tekið upp vinnu­reglur sem miða að því að tryggja sam­ræmt verk­lag og betri skjölun með sam­þykki starfs­kjara­nefndar og aðkomu innri end­ur­skoð­anda.“

Með hlið­sjón af því var það nið­ur­staða eft­ir­lits­ins að ekki væri ástæða til að beita bank­ann við­ur­lögum vegna brots­ins, auk þess sem það telur að Lands­bank­inn hafi þegar gripið til full­nægj­andi úrbóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár