Vill efla menntakerfið til að koma í veg fyrir starfamissi

Mörg störf sem hurfu í heims­faraldrinum munu ekki koma aftur vegna aukinnar sjálfvirkni­væðingar. Hagfræðingur hjá Viðskipta­ráði segir mennta­kerfið leika lykil­hlutverki í að lágmarka starfs­missinn vegna tækni­breytinga framtíðar.

Elísa Arna Hilmarsdóttir, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði.
Elísa Arna Hilm­ars­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Við­skipta­ráði. Mynd: Aðsend

Fjölga ætti háskóla­nemum í vísinda-, tækni-, verkfræði- og stærð­fræði­greinum hér á landi og efla endur­menntun svo að mögulegt sé að mæta aukinni sjálfvirkni­væðingu starfa og bæta samkeppnis­hæfni á vinnu­markaðnum á næstu árum. Þetta skrifar Elísa Arna Hilmars­dóttir, hagfræðingur hjá Viðskipta­ráði, í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Samkvæmt Elísu Örnu eru sterkar vísbendingar um að efnahags­þrengingarnar í kjölfar útbreiðslu farsóttarinnar hafi leitt til varanlegs brott­falls fjölda starfa um allan heim, sökum hraðari sjálfvirkni­væðingar. Hún segir störfin sem séu hvað mest berskjölduð fyrir sjálfvirkni­væðingu fela í sér mikla endur­tekningu á einföldum og fyrir­sjáanlegum verkefnum, en meirihluti þeirra sé unninn af ungu fólki og þeim sem hafa litla menntun.

Búist er við því að enn fleiri störf muni verða sjálfvirkni­væðingunni að bráð á næstu árum, en Elísa Arna bendir á að tæpur helmingur allra starfa hérlendis geti horfið vegna hennar.

Fjölga STEM-menntuðum

„Á þessum umbrota­tímum, í hringiðu fjórðu iðnbyltingarinnar og við lok heims­faraldurs með tilheyrandi umróti, er nauðsynlegt að marka skýra stefnu í atvinnu­lífinu og hlúa að samkeppnis­hæfni vinnu­markaðarins,“ bætir hún við. Þar segir hún að mennta­kerfið leiki lykil­hlutverki í því að koma í veg fyrir töpuð störf með því að undirbúa fólk til að starfa í atvinnu­greinum sem eru ekki berskjaldaðar fyrir sjálfvirkni­væðingu.

Elísa Arna segir einnig að töluvert misræmi sé á milli menntunar fólks og starfa þeirra hérlendis, í saman­burði við önnur Norður­lönd og meðal­talið í Evrópu. Leiða megi líkur að því að þetta ósamræmi skýrist að hluta til vegna þess hversu fáir nemendur eru í vísinda-, tækni-, verkfræði- og stærð­fræði­greinum (e. STEM).

Hærra hlutfall STEM-menntaðra hérlendis gæti aukið samkeppnis­hæfni Íslands og tryggt vinnu­markaðinn fyrir þeim tækni­breytingum sem er fyrirséð að eigi sér stað á næstu árum. Einnig væri hægt að hlúa betur að þeim sem eiga á hættu að missa störf sín með auknum tækifærum til sí- og endur­menntunar, en Elísa Arna segir þá leið hafa verið farna í Danmörku.

Hægt er að lesa grein Elísu Örnu í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár