Rússar æfir á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna

Rússar segja að Bretar muni fá að iðrast þess að hafa farið í áróðurs­stríð við Rússa.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman í gærkvöldi vegna taugaeiturs­árásarinnar í Salisbury, og komu rússnesk stjórn­völd þar á framfæri harðri gagnrýni á Breta.

Vasily Nebenzya, sendi­herra Rússa hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði Breta hafa farið framm með offorsi gegn Rússum og að það ætti eftir að koma í bakið á þeim.

Sagði hann bresk stjórn­völd í áróðurs­stríði vegna málsins, og að opinberar ásakanir og aðgerðir gegn Rússum væru byggðar á sandi.

Bretar hafa fullyrt að rússnesk stjórn­völd eigi þátt í að tauga­eitrið Novichok var notað gegn rússneska gagnnjósn­aranum Sergei Skripal og dóttur hans, en Sergei liggur enn þungt haldin á sjúkra­húsi, en dóttir hans er á batavegi, samkvæmt frásögn The Times.

Margar þjóðir hafa tekið þátt í aðgerðum gegn Rússum í kjölfar árásarinnar, og er Ísland þar á meðal. Ráðamenn Íslands munu ekki fara á HM í Rússlandi, og þá munu stjórn­völd ekki funda með rússneskum erindrekum. Aðrar þjóðir, þar á meðal Norður­löndin og Banda­ríkin, hafa gripið til þess að vísa rússneskum sendiráðs­starfs­mönnum og mörgum öðrum erindrekum úr landi.

Rússar hafa brugðist við með sama hætti. Boris Johnson, utan­ríkis­ráðherra Breta, hefur sagt árásin hrikalega, og að það sé öruggt mál að Rússar standi að baki henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár