Sigríður segist hafa rætt við regluvörð og formann bankaráðs

Sigríður Bene­dikts­dóttir, sem situr í banka­ráði Lands­bank­ans, segir það ekki rétt að hún hafi sam­þykkt að sitja í nefnd sem metur hæfi umsækj­enda um stöðu seðla­banka­stjóra án þess að bera það undir for­mann banka­ráðs eða reglu­vörð Lands­bank­ans.

Sigríður Benediktsdóttir, formaður hæfisnefndar um skipan nýs seðlabankastjóra og bankaráðsmaður í Landsbankanum, segir að hún hafi látið regluvörð Landsbankans vita þegar henni var boðið að taka að sér formennsku í þriggja manna hæfisnefnd sem Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra hefur skipað til að meta hæfni þeirra umsækj­enda sem sótt hafa um emb­ætti seðla­­banka­­stjóra. Katrín mun síðan skipa næsta seðlabankastjóra eftir að nefndin hefur metið hæfi alls 16 umsækjenda um starfið.

Sigríður segir auk þess að hún hafi beðið regluvörð Landsbankans um að upplýsa bankastjóra bankans, Lilju Björk Einarsdóttur, um að henni hafði verið boðið að sitja í nefndinni. Þetta hafi hún gert áður en hún þekktist boð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um að taka að sér setu og formennsku í hæfisnefndinni.

Þá segir Sigríður að hún hafi upplýst formann bankaráðs Landsbankans, Helgu Björk Eiríksdóttur, um stöðuna áður en það var gert opinbert að Sigríður myndi sitja í nefndinni.

Á forsíðu Fréttablaðsins í dag er frétt úr Markaðnum, fylgiriti blaðsins um efnahagsmál og viðskipti, þar sem greint er frá því að Sturla Páls­son, fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta og fjárstýringar hjá Seðla­banka Íslands, og annar ónafn­greindur ein­stak­ling­ur, hafi kvartað form­lega yfir skipun Sig­ríðar í nefndina. Bæði Sturla og ónafn­greindi ein­stak­ling­ur­inn, eru á meðal 16 umsækj­enda um stöðu seðlabankastjóra.

Sturla og Sig­ríður störf­uðu saman hjá Seðla­banka Íslands á árunum 2011 til 2016. Sig­ríð­ur, sem er for­maður nefnd­ar­inn­ar, sat einnig í rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði umfangs­­mik­illi skýrslu í apríl 2010.

Í Mark­aðnum segir að umsækj­end­urnir tveir gagn­rýni meðal ann­ars að Sig­ríður leiði nefnd­ina á sama tíma og hún sitji í banka­ráði Lands­bank­ans. Sá banki sé stærsti við­skipta­vinur Seðla­banka Íslands og eigi veru­legra hags­muna að gæta sem snúi að ýmsum ákvörð­unum Seðla­bank­ans.

Þá er því haldið fram í frétt blaðsins að óánægju gæti innan Lands­bank­ans með skipan Sig­ríðar í nefnd­ina og að hún hafi sam­þykkt að sitja í henni án þess að bera það undir for­mann banka­ráðs eða reglu­vörð bank­ans.

Sigríður segir í samtali við Kjarnann, líkt og áður hefur komið fram, að þetta sé rangt. Hún hafi borið ákvörðunina undir báða þessa aðila. Landsbankinn er í eigu íslenska rík­is­ins og Sig­ríður situr í banka­ráð­inu sem full­trúi þess, ekki vegna eigin hags­muna.

Kjarninn óskaði í morgun eftir því að fá bréf umsækjendanna tveggja afhent hjá forsætisráðuneytinu og er sú beiðni nú í vinnslu.

Með Sigríði í nefnd­inni eru Eyjólfur Guð­munds­son, rektor Háskól­ans á Akur­eyri, til­nefndur af sam­starfs­nefnd háskóla­stigs­ins, og Þór­unn Guð­munds­dótt­ir, hæsta­rétt­ar­lög­maður og vara­for­maður banka­ráðs, til­nefnd af banka­ráði Seðla­banka Íslands.

Alls sóttu 16 um starf seðla­banka­stjóra, en Már Guð­munds­son lætur af störfum í ágúst næst­kom­andi. Hann hefur þá setið þau tvö fimm ára skip­un­ar­tima­bil sem lög heim­ila honum að sitja.

Ráð­gert er að end­an­leg nið­ur­staða hæfn­is­nefndar liggi fyrir eigi síðar en 15. júní næst­kom­andi.

Umsækj­endur um emb­ætti seðla­banka­stjóra:

  • Arnór Sig­hvats­son, ráð­gjafi seðla­banka­stjóra
  • Ásgeir Jóns­son, dós­ent og for­seti hag­fræði­deildar Háskóla Íslands
  • Ásgeir Brynjar Torfa­son, lektor við Háskóla Íslands
  • Bene­dikt Jóhann­es­son, fyrrv. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra
  • Gunnar Har­alds­son, hag­fræð­ing­ur
  • Gylfi Arn­björns­son, hag­fræð­ing­ur
  • Gylfi Magn­ús­son, dós­ent
  • Hannes Jóhanns­son, hag­fræð­ing­ur
  • Jón Dani­els­son, pró­fess­or
  • Jón G. Jóns­son, for­stjóri banka­sýslu rík­is­ins
  • Sal­vör Sig­ríður Jóns­dótt­ir, nemi
  • Sig­urður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri
  • Sturla Páls­son, fram­kvæmda­stjóri mark­aðs-, við­skipta- og fjar­stýr­ingar í Seðla­banka Íslands
  • Vil­hjálmur Bjarna­son, lekt­or
  • Þor­steinn Þor­geirs­son, sér­stakur ráð­gjafi á skrif­stofu seðla­banka­stjóra
  • Katrín Ólafs­dótt­ir, lektor

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár