Markaðsvirði Walmart féll um 20 milljarða Bandaríkjadala á 20 mínútum

Markaðs­virði stærstu smásölu­keðju heimsins, Walmart, féll um 20 milljarða Bandaríkja­dala, eða um 2.500 milljarða króna, á tuttugu mínútum í dag, þegar birt var afkomu­viðvörun vegna minnkandi sölu og hækkandi launa­kostnaðar. Lágmarks­laun fyrir­tækisins hafa verið hækkuð upp í níu Bandaríkja­dali á tímann og verða þau hækkuð upp í tíu dali á næsta ári, eða sem nemur 1.250 krónum á tímann.

Þessi launa­hækkun mun kosta þennan stærsta vinnu­veitanda Banda­ríkjanna, með ríflega tvær milljónir manna á launaskrá, 2,7 milljarða Bandaríkja­dala á næstu tveimur árum, eða sem nemur um 350 milljörðum króna.

Forstjóri Walmart í Banda­ríkjunum, Greg Foran, segir að Walmart sé „stórt skip“ og stundum taki langan tíma að koma hlutunum í ásættanlegt horf. Hann segir rekstrar­horfurnar þó bjartar, þrátt fyrir slæmt uppgjör nú.


$WMT hasn't seen a drop like this in 15 yrs. This is currently the 7th largest drop ever. Black Monday lost 11.6%. pic.twitter.com/1BefxzYZb7


— Ryan Detrick, CMT (@RyanDetrick) October 14, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár