Bjarni Benediktsson forsætisráðherra: „Það tókst, loksins“

Ný ríkis­stjórn hægri flokkanna Sjálfstæðis­flokksins og Viðreisnar með miðju­flokknum Bjartri framtíð hefur verið kynnt.

„Við töluðum um kerfis­breytingar en engar koll­steypur,“ sagði Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, eftir að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, kynnti hann til leiks á blaðamanna­fundi rétt í þessu. Á fundinum er ný ríkis­stjórn kynnt, sem samanstendur af Sjálfstæðis­flokknum, Viðreisn og Bjartri framtíð.

„Ég er líka mjög ánægður með það hvað flokkarnir eru samstíga í að vera ánægðir og eigna sér þessa stefnu­yfirlýsingu,“ sagði Benedikt.

Hér má lesa stefnu­yfir­lýsinguna í heild sinni.

Á fundinum sagði Benedikt mikilvægt að „við temjum okkur gagnsæi“ og „opnari stjórn­sýslu“.

„Það tókst. Loksins,“ sagði Bjarni Benediktsson, sem verður forsætis­ráðherra. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar og Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, lýstu einnig ánægju sinni með að hafa náð að mynda ríkis­stjórn. „Ekki bara vegna þess að við þurfum auðvitað starfhæfa ríkis­stjórn í landinu heldur líka vegna þess að hér er, eins og við sjáum í stefnu­yfir­lýsingunni, búið að vinna mjög vel í haginn fyrir farsæla frjáls­lynda og framsýna ríkis­stjórn,“ sagði Óttarr. 

Meirihluti nýrrar ríkis­stjórnar á Alþingi er aðeins einn þingmaður. „Við þurfum að reyna að vinna mál í meiri sátt,“ sagði Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, sem taldi veikan meirihluta „ákveðinn styrk­leika“.

Naumur meirihluti

„Fyrir liggur að ríkis­stjórnin mun styðjast við nauman meirihluta á Alþingi,“ sagði Bjarni. „Í því í sjálfu sér felst viss áskorun en það er líka ákall um það að menn horfi oftar þvert yfir flokks­línur og leiti samstöðu þar sem það er hægt á Alþingi og það munum við gera. Mig langar sömuleiðis að segja, það má ekki gera lítið úr því hversu mikil áskorun það getur verið fyrir stjórn­völd þess tíma að taka við sterkri stöðu í efnahags­málum. Það er ekki sjálf­gefið að því sé hægt að viðhalda. En okkar áherslur í efnahgsmálum almennt munu miða að því að viðhalda þeim árangri og hugsa til langrar framtíðar eins og stöðugleika­sjóðurinn sem fjallað er um í stjórnar­sáttmálanum er til vitnis um.“

Benedikt sagði að til stæði að hlusta á ákall þjóðarinnar í heilbrigðis­málum, í öldrunar­málum og velferðar­málum og að Ísland ætti að vera samkeppnis­hæft við nágranna­löndin hvað varðar laun og vaxta­stefnu. Þá sagði hann að áhersla hefði verið lögð á á jafnréttismál og eitt fyrsta verk þessarar ríkis­stjórnar yrði að koma á jafn­launa­vottorði. Fyrir aldraða yrði sveigjanleg starfslok að megin­reglu og dregið úr skerðingum vegna vinnu þeirra.  

Í stefnu­yfir­lýsingunni er hvorki talað um aðildar­viðræður að ESB né uppboðs­leið í sjávar­útvegi, sem var eitt helsta stefnumál Viðreisnar fyrir kosningarnar. Benedikt svaraði fyrir það á fundinum. „Við sögðum alltaf þegar við vorum að kynna okkar stefnu fyrirfram, við leggjum mikla áherslu á markaðs­tengingu, að við værum ekki með einhverja eina ákveðna leið heldur legðum við meiri áherslu á það að ná leið sem næði þessum markmiðum en væri sem víðtækust sátt um, bæði milli stjórn­mála­flokkanna og við greinina sjálfa.“ 

Þá sagði Óttarr að honum væri hugleikið að hér yrði snúið ofan af mengandi stóriðju­stefnu og að tekið á móti fleiri flótta­mönnum. 

Vilja ástunda önnur vinnubrögð

Að lokum sagði Benedikt mikilvægt að ríkis­stjórnin ástundaði ný vinnu­brögð. „Að við temjum okkur gagnsæi, opnari stjórn­sýslu. Við opnum bókhald ríkisins meira heldur en verið hefur og líka að við temjum okkur samstarf við minni­hlutann. Að þar sem mögulegt er þá reynum við strax á fyrstu stigum mála að hafa samstarf við minni­hlutann þannig að hann geti komið athuga­semdum að.“

Þá sagði Ótarr Bjarta framtíð hafa talað fyrir breyttu verklagi, opnari vinnu­brögðum, auknu gagnsæi, meira samráði og samvinnu. „Við höfum sameinast um það í þessari stefnu­yfirlýsingu að leggja mikla áherslu á þetta.“

Skipting ráðuneyta

Sjálfstæðis­flokkurinn fær sex ráðherra, Viðreisn þrjá og Björt framtíð tvo. Áður hefur fram komið að Sjálfstæðis­flokkurinn mun tilnefna mann í embætti forseta Alþingis og fimm formenn af átta í nefndum Alþingis. 

Skipting ráðuneyta er eftir­farandi en ekki hefur verið ákveðið hverjir gegni ráðherra­stöðum, fyrir utan að Bjarni verður forsætis­ráðherra. 

Sjálfstæðis­flokkur:

Forsætis­ráðuneytið

Utan­ríkis­ráðuneytið

Innan­ríkis­ráðuneytið: Samskipta-, fjar­skipta- og sveitar­stjórnarmál.

Iðnaðarmál, ferðamál og nýsköpun

Menntamála­ráðuneytið

Dómsmála­ráðuneytið 

 

Viðreisn:

Fjármála­ráðuneytið

Land­búnaðar- og sjávar­útvegs­ráðuneytið

Félagsmála­ráðuneytið

 

Björt framtíð:

Heilbrigðismál

Umhverfismál

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár