Lægsta hlutdeild lífeyrissjóða í húsnæðislánum síðan 2017

Á meðan útlán banka­kerf­is­ins til heim­ila hefur auk­ist hratt á síð­ustu mán­uðum hafa þau dreg­ist saman hjá líf­eyr­is­sjóð­unum. Hlutfall líf­eyr­is­sjóð­anna í hús­næð­is­lánum hefur ekki verið lægra í fjögur ár.

Á milli júní­mán­aða 2020 og 2021 dró veru­lega úr hús­næð­is­lánum líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sinna, á meðan útlán þriggja stærstu bank­anna juk­ust um hund­ruði millj­arða. Hlut­deild líf­eyr­is­sjóð­ana í útlánum til heim­ila hefur ekki verið lægra síðan í júlí árið 2017.

Verð­tryggð útlán líf­eyr­is­sjóð­anna til heim­ila, sem rúm­lega tvö­föld­uð­ust á fjórum árum og námu um 420 millj­örðum króna um mitt síð­asta ár, hafa minnkað stöðugt síðan þá, þar sem upp­greiðslur lána hjá sjóðs­fé­lögum hafa verið meiri heldur en nýjar lán­tökur.

Samkvæmt nýbirtum tölum Seðla­bank­ans um eignir líf­eyr­is­sjóð­anna námu þær 360 millj­örðum króna í júní, rúm­lega 68 millj­örðum minna en á sama tíma í fyrra. Því hafa upp­greiðslur lán­anna umfram nýja lán­töku numið tæpum sex millj­örðum á hverjum mán­uði. Með þessum hraða gætu verð­tryggð útlán líf­eyr­is­sjóð­anna til heim­ila horfið innan sex ára.

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður eru vaxta­lækk­anir íslensku bank­anna lík­lega ástæðan fyrir minnk­andi útlán líf­eyr­is­sjóð­anna á hús­næð­is­mark­aðnum. Samkvæmt tölum frá Seðla­bank­anum hafa útlán bank­anna til heim­ila auk­ist um tæpa 420 millj­arða á sama tíma.

Því hefur hlut­deild lána frá líf­eyr­is­sjóðum lækkað hratt, líkt og sjá má á mynd hér að ofan. Á fyrri hluta síð­asta árs áttu sjóð­irnir tæp­lega þriðja hvert útlán til heim­ila. Í júní var þetta hlut­fall komið niður í 22 pró­sent og hefur það ekki verið lægra síðan í júlí 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár