Nærri því tveir af hverjum þremur breytt hegðun sinni vegna umhverfisáhrifa

Meirihluti Íslendinga virðist meðvitaður um áhrif sín á umhverfið en 64 prósent lands­manna segjast hafa breytt hegðun sinni mikið eða nokkuð síðastliðna tólf mánuði til að lágmarka áhrif sín á umhverfi og loftslags­breytingar.

Meirihluti lands­manna, eða 64 prósent, segjast hafa breytt hegðun sinni mikið eða nokkuð síðastliðna tólf mánuði til að lágmarka áhrif sín á umhverfi og loftslags­breytingar. Þá kveðast einungis 12 prósent svarenda ekki hafa gert breytingar á hegðun sinni. Landsmenn virðast þó tregari til að gera breytingar á matar- og ferða­venjum en alls segjast 60 prósent hafa gert litlar eða engar breytingar á matar­venjum sínum og 69 prósent á ferða­venjum sínum. Þetta kemur fram í nýrri umhverfis­könnun MMR sem framkvæmd var dagana 23. til 29. maí 2019.

86 prósent flokka meira sorp

Íslendingar virðast nokkuð meðvitaðir um áhrif sín á umhverfið en samkvæmt könnun MMR hafa 14 prósent lands­manna gert miklar breytingar á hegðun sinni. Þá segjast 50 prósent hafa gert nokkrar breytingar á hegðun sinni og fjórðungur litlar breytingar. Aðeins 12 prósent segjast ekki hafa gert neinar breytingar á hegðun sinni til að lágmarka áhrif á umhverfið og loftslags­breytingar.

Í niður­stöðum könnunarinnarkemur jafnframt í ljós að Íslendingar eru meðvitaðir um flokkun sorps og segjast alls 86 prósent svarenda hafa síðastliðna tólf mánuði gert miklar eða nokkrar breytingar á flokkun sorps hjá sér. Þá kveðast 62 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á kaup­hegðun sinni. Aftur á móti segjast mun færri hafa gert breytingar á matar- og ferða­venjum sínum en alls sögðust 60 prósent hafa gert litlar eða engar breytingar á matar­venjum sínum og 69 prósent á ferða­venjum sínum.

Konur frekar breytt hegðun sinni

Samkvæmt niður­stöðum könnunarinnar hafa 75 prósent kvenna gert miklar eða nokkrar breytingar á hegðun sinni saman­borið við 53 prósent karla. Karlar eru jafnframt talsvert líklegri en konur til að hafa ekki gert neinar breytingar á hegðun sinni, eða alls 17 prósent karla saman­borið 7 prósent.

Enn fremur er fólk á aldrinum 18 til 29 ára líklegri til að hafa gert miklar breytingar á hegðun sinni en alls 19 prósent ungs fólks segjast hafa gert miklar breytingar á hegðun sinni. Samkvæmt niður­stöðum könnunarinnar fer hlutfall þeirra sem hafa gert miklar breytingar stig­lækkandi með auknum aldri.

Þá er nokkur munur á svörum eftir stjórnmála­skoðunum. Af stuðnings­fólki Samfylkingarinnar segjast 85 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á hegðun sinni og 79 prósent stuðnings­fólks Vinstri grænna. Af stuðnings­fólki Miðflokksins segjast 24 prósent ekki hafa gert neinar breytingar á hegðun sinni, 20 prósent stuðnings­fólks Fram­sóknar og 19 prósent stuðnings­fólks Sjálfstæðis­flokksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár