Í þá tíð… Gósentíð mafíósanna

Bannárin í Banda­ríkjunum höfðu ekki tilætlaðan árangur, þar sem Al Capone og fleiri glæpa­foringjar möluðu gull á smygli og sprútt­sölu.

Al Capone.
Al Capone.

Bannárin í Banda­ríkjunum voru skrítinn tími. Ekki þarf að leita lengra en að „Charleston-þema“ á árshátíð um það bil hvers einasta íslenska fyrir­tækis og stofnunar síðustu ár, til að sjá að þessi tími er sveipaður ákveðnum gleðiljóma þrátt fyrir að raun­veruleikinn hafi verið nokkuð harðari og óvægnari.

Fram eftir nítjándu öldinni óx bindindis­hreyfingunni fiskur um hrygg, enda var áfengis­ofneysla talin rót hinna ýmsu samfélags­meina. Nokkur ríki tóku af skarið og bönnuðu áfengis­sölu innan sinna landamæra og varð Kansas fyrst til þess árið 1881.

Dreifbýlli ríki voru jafnan hlynntari áfengis­banni, en fylgið gekk þvert á flokka­línur þannig að það varð tiltölu­lega seint að pólitísku bitbeini á landsvísu. Í forseta­kosningunum 1916 tóku Demó­kratinn Woodrow Wilson og Repúblikaninn Charles Evans Hughes hvorugur beina afstöðu til málsins, en á þingi hafði myndast sterkur meirihluti innan beggja flokka og í báðum deildum þingsins til þess að leggja þá vegferð að banna áfengis­sölu í Banda­ríkjunum með stjórnar­skrár­viðauka.

Ályktun þess efnis var samþykkt í árslok 1917 og send ríkjunum til stað­festingar (lög kveða á um að 2/3 beggja deilda og 3/4 ríkis­þinga, hið minnsta, þurfi til að staðfesta). Það var svo í janúar 1919 að átjándi stjórnar­skrár­viðaukinn slapp í gegn, þegar Nebraska varð 36. ríkið til að samþykkja tillöguna. Á endanum voru það bara tvö ríki af 48 sem lögðust gegn stjórnar­skrár­bundnu áfengis­sölubanni, Rhode Island og Connecticut.

Í október það sama ár samþykkti þingið í Washington DC frumvarp um lög til að fram­fylgja banninu, hin svokölluðu Volstead lög. Wilson forseti beitti neitunar­valdi gegn lögunum, en þingið ógilti neitunina og lögin gengu í gegn. Í þeim fólst meðal annars bann á sölu og flutningi á áfengum drykkjum (yfir 0,5% að styrk­leika), en ekki á neyslu, og skilgreining á undan­tekningum, þ.e. til notkunar í læknis­fræðilegum tilgangi eða við rann­sóknir, við trúar­athafnir og ýmislegt fleira.

Við gildis­töku laganna í janúar 1920 voru rúmlega 1.500 alríkis­lögreglu­menn settir í að fram­fylgja þeim.

Glæpagengin stíga inn í myndina

Eins og svo oft áður þegar löggjöf gengur gegn lögmálinu um framboð og eftir­spurn, voru til einstaklingar og hópar sem voru meira en til í að svala þorsta Bandaríkja­manna eftir að bannið gekk í gildi.

Einn af frumkvöðlunum var maður að nafni Johnny Torrio. Hann hafði unnið sig upp innan raða glæpa­gengis í New York en tók við rekstri ölstofa og vændis­húsa í Chicago 1909. Þegar áfengis­sölubannið skall á árið 1920 var hann fljótur til að hasla sér völl í sprútt­sölu og tryggði sér yfirráð yfir drjúgum hluta markaðarins í Borg Vindanna, eins og Chicago kallast jafnan.

Það var þó ekki hann sem varð holdgervingur mafíósa á bann­árunum, heldur var það undir­maður hans, Al Capone.

Maðurinn með örið

Capone er eins konar samnefnari fyrir mafíósa á þessum tíma. Feitlaginn, vel klæddur maður af ítölskum ættum. Honum hefur enda verið gerð skil í fjölda kvikmynda og þátta, sem hafa fóðrað goðsögnina ríkulega.

Capone fæddist og ólst upp í Brooklyn og fór að vinna fyrir Torrio strax að loknum sjötta bekk. Í einum af mörgum áflogum sem hann lenti í við „skyldu­störf“ sín var hann skorinn í kinnina með rakhníf. Hann fékk af því myndarlegt ör og hlaut fyrir vikið viðurnefnið „Scarface“.

Þegar Al var tvítugur, árið 1909, kallaði Torrio á hann til að aðstoða sig við vændishúsa­reksturinn í Chicago. Eftir að bannárin gengu í garð ákváðu helstu glæpa­hópar borgarinnar að skipta með sér hverfum til að koma í veg fyrir átök. Stærsta og öflugasta gengið, sem kennt var við forsprakkann Dion O'Banion, stjórnaði norður­borginni, þar sem flottustu hverfin voru og langflestir veitinga­staðirnir. Torrio stjórnaði svo suður­borginni og aðrir minni aðilar fengu líka sinn skerf.

Þannig gekk sprútt­bransinn fyrir sig fyrstu þrjú árin, en þá kom að því að O'Banion þótti Ítalirnir í suðrinu vera að gera fullgóða hluti. Samkomulag var gert til að friða O'Banion, meðal annars átti hann að fá sneið af ágóða Torrios, en það varð ekki til að stilla til friðar því að O'Banion hafði stundað það að ræna vínsendingum frá Kanada sem voru á leið til Genna-klíkunnar.

Genna-bræður og Torrio ákváðu að taka höndum saman og losa borgina við O'Banion. Því nýttu þeir sér tækifærið í tengslum við jarðarför eins félaga þeirra (sem O'Banion lét einmitt kála) og fóru inn í blóma­búðina sem var skálka­skjól O'Banions og skutu hann til bana. Þetta var í nóvember 1924.

Upp úr því hófst mikið og blóðugt gengja­stríð sem stóð yfir í mörg ár. Norðan­menn sóttust eftir að hefna síns fallna foringja og reyndu að stytta Torrio aldur í janúar 1925, þegar hann var að koma heim úr verslunar­ferð með konu sinni. Byssu­kúlum rigndi yfir bíl Torrios og stórsærði hann. Meðal annars fékk hann skot í kjálka, nýru, lungu, kvið og í fætur, og var laminn allhressilega í kjölfarið. Engu að síður lifði Torrio af, en fékk skömmu síðar árs fangelsisdóm fyrir sprútt­sölu.

Sviðið var því í höndum sjálfs Als Capone, sem tók við tíma­bundið en eftir að Torrio slapp úr fangelsi ákvað hann að snúa baki við mafíu­lífinu og valdi Capone sem eftirmann sinn áður en hann hélt sjálfur til fæðingar­lands síns, Ítalíu, með konu sinni og móður.

Nýi kóngurinn í Chicago

Al Capone var ekki lengi að festa sig í sessi sem grimmasti og ófyrirleitnasti glæpa­foringinn í Chicago og breiddi stöðugt út yfirráða­svæði suður­borgar­klíkunnar þar sem sprútt­sala, veðmál og vændi voru í forgrunni.

Hann vílaði ekki fyrir sér að salla niður andstæðinga sína og sprengja upp veitinga­staði sem neituðu að kaupa af honum vín. Þannig náði hann undir sig sífellt fleiri svæði og nýtti sér um leið mútur til að koma sér í mjúkinn hjá borgar­yfirvöldum og lögreglu til að sleppa við óþarfa afskipti af lögbrotunum.

Þrátt fyrir það var Capone alls ekki að láta lítið fyrir sér fara. Þvert á móti. Hann barst mikið á, klæddist glæsi­legum klæðskera­saumuðum jakka­fötum og skart­gripum og var jafnan umkringdur glæsi­meyjum.

Hann gekkst upp í eins konar Hróa Hattar ímynd af sjálfum sér þar sem hann dreifði ölmusu af sínum gríðar­miklu, illa fengnu, auðæfum til fátækra víða um borg. Hann mætti á kappleiki og var oft fagnað eins og hetju. Hann hafði oft á orði að hann væri einfald­lega kaup­sýslumaður. „Ég gef fólkinu bara það sem það vill!“ var algengt viðkvæði hjá honum.

Á meðan geysaði grimmilegt stríð milli klíku Capones og norður­borgarklíku O'Banions heitins. Hjaðningavíg gengu á víxl þar sem margir lykilmenn beggja vegna lutu í gras, meðal annars bílstjóri Capones sjálfs og einn daginn mættu fjöldi norður­borgarmanna fyrir utan höfuð­stöðvar hans og létu kúlum rigna úr Thompson-vélbyssum, hinum frægu Tommy-guns sem eru eins og táknmynd þessa ára.

Ofbeldið stig­magnaðist og náði hámarki árið 1929 þegar Capone fyrir­skipaði morð á Bugs Moran, sem þá var foringi norðan­manna. Hópur Capone-manna réðist inn í vöru­skemmu Morans og yfir­bugaði sjö manns sem þar voru að vinnu. Þegar mönnunum hafði verið stillt upp við vegg komu fleiri menn inn, vopnaðir vélbyssum og hagla­byssum og hreinlega brytjuðu mennina niður.

Dagblöðin birtu sláandi myndir af vettvangi og kölluðu ódæðið „Saint Valentine's Day Massacre“, enda var fjölda­morðið framið á Valentínusardag. Þetta kastaði rýrð á orðspor Capones sem velgjörðar­manns, og í fram­haldinu lögðu löggæslu­stofnanir miklu meiri áherslu á að klekkja á honum.

Endalokin nálgast

Yfirvöld reyndu allt til að fá Capone dæmdan þar sem hann var hand­tekinn og/eða kærður fyrir alls konar brot, allt frá vergangi upp í brot á Volstead-lögunum. Það sem varð honum hins vegar að falli voru skattamál.

Árið 1927 hafði Hæstiréttur Banda­ríkjanna staðfest að tekjur af ólöglegri starfsemi væru sannarlega skatt­skyldar. Þegar hinn frægi lögreglu­maður Eliot Ness, ásamt sérsveit sinni, Hinum Vammlausu, hafði um árabil hamast í starfsemi Capones í Chicago var breytt um stefnu og ákveðið að hamra á skatta­málunum. Capone var svo ákærður og síðar sakfelldur fyrir skattsvik og hlaut ellefu ára fangelsisdóm árið 1931.

Hann hóf afplánun árið 1932. Við komuna í fangelsið var hann greindur með sárasótt og lekanda sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á hann á næstu árum. Hann átti erfitt með að fóta sig aleinn í fangelsinu og varð fyrir talsverðu áreiti, þannig að hann var fluttur yfir í Alcatraz-fangelsið utan við San Fransisco.

Síðustu árin í afplánun var andlegri heilsu hans farið að hraka talsvert vegna tauga­hrörnunar sem var afleiðing sára­sóttarinnar.

Honum var sleppt úr haldi árið 1939, en var sjúklingur allt til æviloka. Hann bjó í húsi sínu í Miami þar sem hann fékk heila­blóðfall árið 1947 og nokkrum dögum síðar varð hjarta­áfall glæpa­foringjanum fyrr­verandi að aldurtila, 48 ára að aldri.

Afnám áfengisbanns gróf undan glæpahópunum

Þegar Capone var sendur í fangelsi árið 1932 var orðið ljóst að áfengis­sölubannið hafði ekki borið tilætlaðan árangur. Glæpir höfðu aukist og glæpa­foringjar eins og Capone höfðu efnast gríðar­lega, án þess að dregið hefði sérstak­lega úr drykkju meðal almennings.

Því lögðu þingmenn í Washington í að fella átjánda viðauka stjórnar­skrárinnar úr gildi með öðrum viðauka, sem varð sá tuttugasti og fyrsti. Málið fékk hefð­bundna afgreiðslu í báðum deildum þingsins, en í stað þess að leggja málið fyrir ríkis­þingin eins og venja var, var ákveðið að nota aðra aðferð, þ.e. að stofna til sérstakra samkunda í hverju ríki þar sem málið var rætt. Það var gert vegna þess að talið var að ríkis­þingmenn væru of háðir bindindis­hreyfingunni til að málið fengi nokkurn tíma eðlilegan framgang.

Það var svo í árslok 1933 að 21. stjórnar­skrár­viðaukinn, til afnáms áfengis­sölu, var stað­festur með samþykki Utah, sem varð 36. ríkið sem velti síðasta hlassinu.

Eftir það féll að sjálfsögðu botninn úr sprútt­sölu glæpahópa, en eftir­mönnum Capones lagðist ýmislegt til og þeir héldu yfirráðum yfir undir­heimum Chicago í áraraðir eftir það.

Eftir stendur ímynd um tíma þar sem gleðin var vissulega við völd, en undir niðri geisaði fordæma­laus ofbeldis­alda um allt land þar sem morð, limlestingar og dauði voru daglegt brauð. Hugsið endilega um það þegar þið setjið upp kúluhatt og axlabönd og stingið dótabyssu í buxna­strenginn á næstu árshátíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár