Fjölskyldunni gert að yfirgefa húsnæðið innan 10 daga

„Fyrir fimm manna fjöl­skyldu er ómögulegt að finna húsnæði á svona skömmum tíma“

Lands­bankinn krafðist þess í bréfi þann 1. júní að fimm manna fjöl­skylda í Hafnar­firði yfirgæfi húsnæði sitt og skilaði lyklunum til fullnustu­deildar bankans innan 10 daga. „Að öðrum kosti verður málið falið utan­aðkomandi lögfræðingi og krafist útburðar án frekari viðvarana,“ segir í bréfi frá bankanum sem fjölskyldu­faðirinn birti á Facebook og vakið hefur talsverða athygli.

Í bréfinu kemur fram að bankinn hafi eignast fasteignina þann 8. maí og óski eftir að íbúar rými eignina eigi síðar en 11. júní. „Takið eftir dagsetningunni á bréfinu og þeim tíma sem fimm manna fjöl­skylda á að hafa til að komast í annað húsnæði eins og leigu­markaðurinn er í dag,“ skrifar maðurinn. Stundin hafði samband við hann og fékk að heyra forsögu málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár