Gengi krónunnar fellur eftir boðun afnáms hafta

Íslenska krónan féll um 2,65 prósent í dag. Tilgangur afnáms hafta var meðal annars að styrkja sjávar­útveginn og ferða­þjónustuna fyrir sterku gengi.

Seðlabankastjóri og forsætisráðherra
Seðla­banka­stjóri og for­sæt­is­ráð­herra Már Guð­munds­son og Bjarni Bene­dikts­son boð­uðu afnám fjár­magns­hafta í gær. Mynd: Pressphotos

Fyrstu viðbrögð við boðun afnáms gjaldeyris­hafta sem tekur gildi á morgun er að íslenska krónan hefur fallið um þrjú til fjögur prósent í morgun gagnvart helstu gjald­miðlum. 

Þannig hefur evran farið úr um það bil 114 krónum upp í um 118 krónur frá því að markaðir opnuðu í morgun. Gengi dollarans er nú um 111 krónur.

Haft hefur verið eftir nokkrum hagfræðingum að ólíklegt sé að gengi krónunnar sveiflist mikið vegna afnáms haftanna. Á forsíðu Frétta­blaðsins í dag er haft eftir Friðriki Má Baldvins­syni, hagfræði­prófessor við Háskólann í Reykjavík, að engin ástæða sé til að ætla að sviptingar verði á gengi krónunnar á næstunni.

Ekki gert ráð fyrir falliKrónan hefur fallið í morgun, en til lengri tíma er ekki gert ráð fyrir miklu falli.

Til lengri tíma er óljóst hver áhrifin af afléttingu hafta verða. Með afléttingunni losna hömlur á lífeyris­sjóði að fjárfesta erlendis, en óttast hefur verið að fjár­festingar lífeyris­sjóða innanlands valdi bólu­áhrifum í hagkerfinu. Benedikt Jóhannesson fjármála­ráðherra lýsti því í gær að hann vonaðist til að afnám hafta stöðvaði styrkingu krónunnar.

Seðla­banki Íslands hefur greint frá því að gjaldeyris­varaforðinn hafi aukist verulega undan­farna mánuði, úr tæpum 600 milljörðum króna í júní 2015 í rúmlega 800 milljarða króna í febrúar síðastliðnum, þrátt fyrir endur­greiðslur erlendra lána, hækkun á gengi krónunnar og gjaldeyris­útboð í júní. Það þýðir að Seðla­bankinn er í góðri aðstöðu til að grípa inn í sveiflur á gengi krónunnar.

Síðustu mánuði hefur gengi krónunnar styrkst verulega. Það hefur orðið til þess að eigendur fyrir­tækja í sjávar­útvegi og ferða­þjónustu hafa lýst áhyggjum af stöðunni. Sterkara gengi krónunnar þýðir að hlutfalls­lega verður launa­kostnaður þeirra hærri og svo fram­kallar það meiri kostnað fyrir viðskipta­vini sjávar­útvegsins og ferða­þjónustunnar, sem getur minnkað eftir­spurn og dregið úr hagnaði félaga sem starfa í útflutnings­geirum. Á hinn bóginn má gera ráð fyrir að sterkara gengi lækki verð á innfluttum vörum og geri almennum borgurum á Íslandi auðveldara að ferðast erlendis, svo eitthvað sé nefnt.

Styrking á gengi krón­unnarFram að til­kynn­ingu um afnám fjár­magns­hafta hafði krónan styrkst gagn­vart evru.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár