Færri útlendingar ákærðir nú en fyrir fimm árum

Ákærum á hendur erlendum ríkis­borgurum hefur fækkað á síðustu fimm árum þrátt fyrir að hópnum hafi fjölgað um 38 prósent á sama tímabili. Þá dragast umferðar­lagabrot saman um 38 prósent á fimm árum.

Hegningar- og refsilaga­brotum einstaklinga með erlent ríkisfang hefur fækkað um 16 prósent á síðustu fimm árum á sama tíma og innflytjendum hefur fjölgað um 38 prósent. Þetta má lesa úr svari dómsmála­ráðherra við fyrir­spurn Diljár Mistar Einars­dóttur, þingmanns Sjálfstæðis­flokksins.

Dómsmála­ráðuneytið tók saman fjölda ákærðra með erlent ríkisfang og má sjá augljósa fækkun hegningar- og refsilaga­lagabrota sé litið til fimm ára. Fíkniefna­brotum fjölgar hins vegar.

Afbrota­fræðingur og dósent hjá Háskóla Íslands, Margrét Valdimars­dóttir, segir tölfræði dómsmála­ráðuneytisins ekki nægilega ítarlega til þess að það sé hægt að draga víðtækar ályktanir út frá henni og varar raunar við slíku, en þar er aðeins tekinn saman fjöldi ákærðra með erlent ríkisfang en ekki hvort þeir hafi verið dæmdir fyrir brot sín. Þá geta verið sömu einstaklingar á bak við fleiri en eitt afbrot.

Hegningarlagabrotum fækkar

„Hegningar­lagabrotum hefur almennt fækkað hér á landi,“ segir Margrét. Afbrota­tölfræði yfir einstaklinga með erlent ríkisfang …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár