Fyrstu herþotur Rússa komnar til Sýrlands

Fyrstu herþotur Rússa eru komnar til Sýrlands til að berjast með stjórnarher landsins gegn uppreisnar­mönnum Íslamska ríkisins (Islamic State) og fleiri uppreisnar­hópum í landinu. Þetta kemur fram á vef Wall Street Journal, og er Ash Carter, varnarmála­ráðherra Banda­ríkjanna, sagður hafa rætt beint við rússnesk yfirvöld til þess að fá upplýsingar um hvað Rússar, undir forystu Vladímir Pútíns forseta, hygðust gera og hvernig þeirra áform væru um hernað.

Engar slíkar upplýsingar hafa komið fram opinber­lega, að öðru leyti en að rússnesk stjórn­völd hafa sagt að nauðsynlegt sé að bæla niður öfgamenn sem hrakið hafa hundruð þúsund á flótta frá heimilum sínum að undan­förnu, en samtals er að talið að um níu milljónir manna í Sýrlandi séu á flótta, af um 22 milljóna heildar­íbúafjölda.

Bandaríkja­menn hafa stigið varlega til jarðar hvað hernaðar­íhlutun varðar í Sýrlandi, og hafa ítrekað sat stjórn Assad forseta ekki treystandi til þess að beita herafli. Hann hiki ekki við að beita því gegn óbreyttum borgurum.


#UPDATE Four Russian fighter jets deployed in Syria, Pentagon says http://t.co/beo81gsc8R


— Agence France-Presse (@AFP) September 18, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár