Twitter búið að opna útibú í Reykjavík

Í lok síðasta mánaðar var útibú fyrir Twitter skráð í fyrirtækja­skrá. Stofnandi Ueno, sem seldi fyrir­tækið nýverið til samfé­lags­miðl­arisans, vann fyrsta daginn sinn fyrir Twitter hérlendis í dag.

Har­aldur Þor­leifs­son, stofn­andi Ueno, vann fyrsta daginn sinn sem Twitter starfs­maður í dag, en hann seldi fyrir­tækið til samfélagsmiðlarisans í byrjun árs.

Í stöðu­uppfærslu á Twitter segir Haraldur frá því að það hafi tekið aðeins lengri tíma en til stóð að hann myndi hefja störf þar sem fyrir­tækið bauðst til að setja upp fyrirtæki á Íslandi í kringum starfsemi svo Haraldur gæti áfram búið hérlendis. „Þannig að, Twitter Reykjavík er nú raun­veruleiki!“ skrifar Haraldur í færslunni.

Í fyrirtækja­skrá er hægt að sjá að „Twitter Nether­lands B.V. útibú“ var skráð hérlendis 25. janúar síðastliðinn. Rekstrar­form þess er „útibú erlends félags“ og atvinnu­greina­flokkunin „önnur ótalin sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi“.

Seldi Ueno til Twitter

Greint var frá því í byrjun árs að sam­fé­lags­miðlinn Twitter hefði fest kaup á Ueno. Það gerði Dantley Davis, hönn­un­­ar­­stjóri Twitter, í stöðu­upp­færslu á miðl­inum sjálf­um. Ueno var tækni- og hönn­un­ar­fyr­ir­tæki sem Har­aldur stofn­aði utan um verk­efna­vinnu árið 2014,

Ueno hefur verið með starf­­semi í San Francisco, New York og Los Angeles, auk skrif­­stofu í Reykja­vík, og hefur stækkað hratt á síð­­­ustu árum.

Fyr­ir­tækið hefur sinnt verk­efnum fyrir fjöl­­mörg stór­­fyr­ir­tæki, til dæmis Google, Apple og Facebook, auk AirBnB, Slack, Uber og fjölda ann­­arra.

Sam­­kvæmt til­­kynn­ingu Davis áttu Har­aldur og aðrir starfs­­menn Ueno ganga til liðs við hönn­un­­ar- og rann­­sókna­­deild Twitter, eftir að hafa áður sinnt verk­efnum fyrir sam­­skipta­mið­il­inn sem verk­tak­­ar.

Kaup­verðið í þessum við­­skiptum hefur ekki verið gefið upp, en Ueno velti yfir tveimur millj­­örðum króna árið 2019.

Í frétt tækn­i­mið­ils­ins TechCrunch var haft eftir tals­­manni Twitter, þegar greint var frá kaup­un­um, að Ueno muni ljúka verk­efnum sínum fyrir aðra við­­skipta­vini á næstu vik­­um.

Síðan muni Twitter hitta alla núver­andi starfs­­menn Ueno til þess að kynn­­ast þeim og sjá hvar og hvort þeir muni passa inn í starf­­semi Twitter.

Ætlar að greiða alla skatta hérlendis

Har­aldur vakti mikla athygli í lok síðasta mánaðar þegar hann greindi frá því að allir skattar sem greiddir verði vegna sölu fyr­ir­tæk­is­ins til Twitter verði greiddir á Ísland­i.

Í stöðu­upp­færslu á Twitter, sem var á ensku, sagði Har­aldur að hann hafi fæðst á Íslandi og að for­eldrar hans hafi verið lág­tekju­fólk. Auk þess glími hann við alvar­lega fötl­un. „En þar sem þetta land býður upp á fría skóla og fría heil­brigð­is­þjón­ustu þá gat ég ég dafn­að.“

Þess vegna sé hann stoltur að greina frá því að allir skattar sem verða greiddir vegna söl­unnar á Ueno verði greiddir á Íslandi til að styðja við það kerfi sem studdi við hann á sínum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár