Twitter festir kaup á Ueno

Fyrir­tækið Ueno, sem var stofnað utan um verkefna­vinnu vefhönn­uð­arins Haraldar Þorleifs­sonar árið 2014, verður brátt hluti af Twitter. Kaup­verðið hefur ekki verið gefið upp.

Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno.
Haraldur Þor­leifs­son, stofn­andi Ueno. Mynd: Ueno

Samfélagsmiðlarisinn Twitter hefur fest kaup á íslenska tækni- og hönnunar­fyrirtækinu Ueno, sem Haraldur Þorleifsson stofnaði utan um verkefna­vinnu sína árið 2014. Dantley Davis, hönnunar­stjóri Twitter, greindi frá þessu í tilkynningu á miðlinum í dag.

Samkvæmt tilkynningu Davis munu Haraldur og aðrir starfs­menn Ueno nú ganga til liðs við hönnunar- og rannsókna­deild Twitter, eftir að hafa áður sinnt verkefnum fyrir samskipta­miðilinn sem verktakar.

Davis segir í tilkynningu sinni á miðlinum að Twitter hafi fengið að sjá frá fyrstu hendi hversu fram­sæknir starfs­menn Ueno hafi verið í vinnu sinni fyrir Twitter og að Twitter hlakki til að fá þau í hópinn.

Kaup­verðið í þessum viðskiptum hefur ekki verið gefið upp, en Ueno velti yfir tveimur milljörðum króna árið 2019.

Í frétt tækni­miðilsins TechCrunch er haft eftir talsmanni Twitter að Ueno muni ljúka verkefnum sínum fyrir aðra viðskipta­vini á næstu vikum.

Síðan muni Twitter hitta alla núverandi starfs­menn Ueno til þess að kynnast þeim og sjá hvar og hvort þeir muni passa inn í starfsemi Twitter.

Ueno hefur verið með starfsemi í San Fransiskó, New York og Los Angeles, auk skrif­stofu í Reykjavík, og hefur stækkað hratt á síðustu árum.

Fyrir­tækið hefur sinnt verkefnum fyrir fjölmörg stór­fyrirtæki, til dæmis Google, Apple og Facebook, auk AirBnB, Slack, Uber og fjölda annarra.

Haraldur gefur í skyn, í léttum tóni á Twitter-síðu sinni, að nú þurfi hann og Jack Dorsey forstjóri Twitter að fara að skoða hvort ekki sé hægt að gera eitthvað varðandi það að kynna til leiks edit-takka, sem notendur samfélags­miðilsins hafa ítrekað óskað eftir á undan­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár