Framkvæmdum á Ófeigsfjarðarvegi hætt í bili

Vestur­verk hefur lokið framkvæmdum á Ófeigs­fjarðar­vegi í bili. Áætlað er að hefja þær að nýju þegar vorar.

Vestur­verk hefur lokið störfum á Ófeigs­fjarðar­vegi í bili en þetta stað­festir Birna Lárusdóttir, upplýsinga­fulltrúi Vestur­verks, í samtali við Kjarnann.

„Við erum farin að segja þetta gott í bili,“ segir hún og bætir því að þrátt fyrir að verkið hafi verið á áætlun þá hafi það heldur sótt seint vegna bleytu og veðurs. „Það var svosem ekkert óviðbúið. Það haustar venjulega snemma þarna fyrir norðan,“ segir hún.

Birna segir að framkvæmdir muni halda áfram þegar snjóa leysir en glugginn fyrir framkvæmdir sé frekar lítill.

Fram hefur komið í fréttum að land­eigendur Seljaness við Ingólfs­fjörð hafi mótmælt ólögmætum framkvæmdum Vega­gerðarinnar við Ófeigsfjarðarveg. Í yfir­lýsingu frá Vega­gerðinni kom fram að hún hefði ekki staðið fyrir framkvæmdum á veginum en hún hefði hins vegar framselt veghald vegarins til Vestur­verks.

Fyrir­tækið hefði fengið heimild til að standa fyrir virkjana­framkvæmdum og væru endur­bætur á veginum nauðsyn­legur hluti þeirra framkvæmda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár