Í þá tíð… Sunnudagurinn blóðugi 1905

Kröfu­ganga breytist í blóðbað sem grefur undan tiltrú Rússa á keisara sínum. Reyndist síðar vera forspilið að rússnesku byltingunni 1917.

Svona sá pólski málarinn Woiciech Kossak fyrir sér atburði 22. janúar 1905 við Vetrarhöllina í St. Pétursborg.
Svona sá pólski málar­inn Woiciech Kossak fyrir sér atburði 22. janúar 1905 við Vetrarhöllina í St. Péturs­borg.

Á þessum degi fyrir réttum 112 árum, hinn 22. janúar 1905, átti sér stað atburður sem átti eftir að hafa djúp áhrif á framvindu mála í Rússlandi og örlög Rómanov keisara­ættarinnar. Dagur sem kallaður er Sunnu­dagurinn blóðugi, en þá skutu hermenn í St. Péturs­borg á hóp almennra borgara sem stefndi að Vetrar­höll Nikulásar keisara til að krefjast bættra kjara.

Á þessum árum var að myndast sterk undiralda verkalýðs og byltingar­sinna í Rússlandi. Til að slá á þá kergju lögðu stjórn­völd, árið 1904, blessun sína yfir stofnun ýmissa verkalýðs­félaga. Eitt af þeim félögum var Samband iðnverkamanna í St. Péturs­borg, en leiðtogi þess var Georgí Gapon, sem var auk þess klerkur í rétt­trúnaðar­kirkjunni. Fljótlega fór álit stjórnar­herranna á Gapon að súrna. Hann þótti of róttækur – jafnvel hallur undir lýðræðis­sinna – og eftir að fjórir félagar hans voru reknir frá störfum stóð Gapon fyrir mörgum verk­föllum í St. Péturs­borg þar sem allt að 120.000 manns lögðu niður störf.

Gapon brá á það ráð að efna til mótmæla og beina kröfum verka­lýðsins til keisarans sjálfs. Nikulás II hafði, þegar þarna var komið við sögu, ríkt í rúman áratug, en hann tók við keisara­tigninni við andlát föður síns árið 1894, þá 27 ára. Gabon þótti greini­lega affara­sælast að beina kröfunum persónu­lega til keisarans sem var nú enda lands­faðirinn og var almennt álitið að hann væri einfald­lega ekki meðvitaður um þrautir almúgans. Ef hann myndi aðeins hlýða á boðskap þeirra gæti hann varla horft fram hjá óskum þegna sinna um réttlæti.

Safnast að frá sex stöðum

Mikill mann­fjöldi kom saman þennan dag og gengu frá sex stöðum í kringum Vetrar­höllina. Samkoman var friðsæl og hafði Gapon meira að segja tilkynnt yfir­völdum hvað stæði til. Fólkið bar meðal annars trúarlegar helgi­myndir, sem og myndir af keis­aranum sjálfum, auk kröfu­spjalda, og sungu sálma og ættjarðarlög.

Frásögnum ber ekki saman um fjölda mótmælenda, þar sem lögreglan sagði þá hafa verið um 3.000 talsins, en skipuleggjendur göngunnar héldu því fram að þar hafi verið saman komin allt að 50.000 manns. Hvort sem það var, þá greip fólk í tómt, að því leyti að Nikulás keisari var alls ekki staddur í Vetrar­höllinni til að taka á móti mann­skaranum. Þar var hins vegar fjölmennt lið keisara­varðarins, kósakka og fótgöngu­liðar, sem og föður­bróðir keisarans, Vladimír stór­hertogi, yfirmaður örygggislögreglunnar.

Hildarleikurinn hefst

Herliðið taldi um 10.000 manns, og hafði verið fyrir­skipað af Vladimír stór­hertoga að hleypa fólki ekki inn að torginu framan við Vetrar­höllina. Aðgerðir herliðsins voru hins vegar fálm­kenndar og án alls samræmis þar sem fólki var ýmist sleppt í gegn, eða stöðvað á ferð sinni. Fljótlega fóru að heyrast skot­hvellir hér og hvar auk þess sem riddara­liðar kósakka réðust að fólki með sverð á lofti. Áfram hélt fólk að streyma að og ekkert lát var á drápunum.

Þessi hildar­leikur fór ekki fram, eins og oft hefur verið dregið upp, að hermenn hafi skotið á stóran hóp, heldur gerðust drápin í lotum, gegn minni hópum, enda kom fólk víða að. Sögum ber ekki saman um hversu margir létust þennan örlaga­ríka dag í St. Péturs­borg. Stjórn­völd sögðu að 96 hafi látið lífið og á fjórða hundrað hafi særst, en stjórnar­andstæðingar sögðu að 4.000 hafi látist. Flestir telja þó að tala látinna hafi hlaupið á hundruðum.

Gapon sjálfur komst lífs af en flúði þó fljótlega land og samtök hans voru bönnuð strax þennan sama dag. Heimildir herma að hann hafi hrópað upp yfir sig, þegar kúlunum fór að rigna yfir mótmælendur: „Það er enginn guð! Það er enginn keisari!“

Keisarinn rúinn trausti

Keisarinn lýsti því yfir að atburðirnir hafi verið sorglegir, en það stillti ekki reiði almennings þar sem óeirðir brutust út víða um borgina. Ímynd Nikulásar sem lands­föður beið mikla hnekki þennan dag, bæði vegna hörkunnar sem stjórnar­liðar gripu til og ekki síst vegna þess að hann var ekki á staðnum. Það gróf undan tiltrú almennings á velvilja keisarans, sem magnaðist svo upp í hatur.

Óeirðirnar undu upp á sig með viðlíka mótmælum og verk­föllum víðar um Rússland, sem og óróa innan hersins. Uppreisnin var síðar innblástur fyrir kvikmyndaleiskstjórann Sergei Eisenstein við gerð myndarinnar „Orrustu­skipið Pótemkin“ þar sem skip­verjar komu almenningi til varnar gegn hermönnum keisarans.

Ástandið náði slíkum hæðum að talað er um „Rússnesku byltinguna 1905“ en til að stemma stigum við óróanum gekk keisar að ýmsum kröfum stjórnar­andstæðinga. Meðal annars var samþykkt stjórnar­skrá fyrir Rússland auk þess sem stofnað var til fulltrúa­þings, Dúmunnar, sem hafði aðeins ráðgjafar­vald.

Þrátt fyrir að þessir áfanga­sigrar hafi slegið nokkuð á baráttu stjórnar­andstæðinga, var þarna kominn vísir að nokkru mun stærra og áhrifa­meira. Byltingunni í Rússlandi árið 1917 þar sem keis­aranum var velt af stóli og Lenín og Bolsévikarnir tóku völdin og stofnuðu Sovét­ríkin.

Þessi friðsama kröfu­ganga klerksins Gapons, sem var alls ekki fyrir­huguð sem uppreisn eða bylting, varð sannarlega afdrifarík og eftir­farinn var boðberi og forsmekkur nýrra tíma í Rússlandi og síðar Sovét­ríkjunum. Keisarinn, sem sá sér ekki fært að taka á móti mótmælendum, var myrtur ásamt konu sinni og fimm börnum árið 1918 í Ékaterínburg.

Gapon sjálfur var drepinn árið eftir, eftir að upp komst að hann lék tveimur skjöldum þar sem hann annars vegar vann fyrir sósíal­ista, en var svo líka í samskiptum við innan­ríkis­ráðuneytið í Rússlandi. Félagar hans í sósíalista­flokknum ginntu hann til fundar í útjaðri St. Péturs­borgar og hengdu hann þar.

Aðrir markverðir atburðir sem gerðust 22. janúar:

1901

Viktoría Bretadrottning deyr eftir 63ja ára setu á valdastóli.

1957

Ísrael dregur lið sitt frá Sinai-skaga. Það markaði lok Súez-deilunnar.

1973

Hæstiréttur Bandaríkjanna fellir dóm í máli Roe gegn Wade og staðfestir þar með rétt kvenna til að eyða fóstri á fyrstu sex mánuðum meðgöngu.

1979

Opinberir starfsmenn í Bretlandi fara í allsherjarverkfall til að krefjast hærri launa.

1980

Sovéski andófsmaðurinn Andrei Sakharov handtekinn fyrir mótmæli gegn íhlutum Sovétmanna í Afganistan. Hann var síðar sendur í fangabúðir, en Mikhaíl Gorbatsjov gaf honum frelsi árið 1986.

1998

Hryðjuverkamaðurinn Ted Kaczynski játar á sig sprengjuárásir undir dulnefninu „Unabomber“.

2006

Evo Morales sver embættiseið sem forseti Bólivíu, fyrstur allra af ættum frumbyggja.

2008

Leikarinn Heath Ledger deyr af of stórum lyfjaskammti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár