Sundabrú myndi rísa allt að 35 metrum yfir haffletinum í Kleppsvík

Starfs­hópi sem falið var að meta hvort fýsilegra væri að nota jarðgöng og lágbrú til að þvera Kleppsvík í tengslum við Sunda­braut komst að þeirri niður­stöðu að kostir brúar væru meiri. Sundabrú yrði hins vegar ekki neitt sérlega lág.

Sundabrúin myndi vera í allt að 35 metra hæð yfir haffletinum, nógu há til þess að skip sem væru nærri 30 metrum gætu siglt undir hana og laggst að bryggju innar í Kleppsvík.
Sunda­brúin myndi vera í allt að 35 metra hæð yfir hafflet­inum, nógu há til þess að skip sem væru nærri 30 metrum gætu siglt undir hana og laggst að bryggju innar í Klepps­vík. Mynd: Efla verkfræðistofa/Úr skýrslu starfshópsins

Brú yfir Kleppsvík, sem tillaga er gerð um í nýrri skýrslu starfs­hóps og talin er fýsilegri kostur en jarðgöng yfir í Gufunes, yrði engin smásmíði. Þegar orðið „lágbrú,“ er nefnt eru eflaust fáir sem sjá fyrir sér brú af þeirri stærðar­gráðu sem teiknuð hefur verið upp og stefnt er að, sem fýsilegasta kosti.

Samkvæmt uppfærðri tillögu frá Eflu verkfræði­stofu er gengið út frá því að brúin verði 1.172 metra löng og því lengsta brú á Íslandi. Hún er næstum því 300 metrum lengri en hin aflagða Skeiðar­árbrú á Skeiðar­ársandi, til saman­burðar. Um helmingur brúarinnar yrði á landi í Sundahöfn til móts við Holtaveg en um helmingur yfir haffletinum.

Brúin, eins og hún er teiknuð upp á tillög­unni, rís hæst í um 35 metra hæð yfir hafflötinn og áætlað er að næstum því 30 metra há skip geti siglt undir hana, í 100 metra breiðri siglinga­rennu.

Í reynd hefur verið fallið alveg frá hugmyndum um „lágbrú“ á þessum stað, en starfs­hópnum var ætlað að skoða mismun­andi útfærslur að brú sem líklegt væri að sátt næðist um.

Brúin þarf að vera svona há til þess að athafna­svæðið í Sundahöfn, sem verður undir fyrir­hugaðri brú, verði ekki fyrir raski. Áfram á að vera hægt að sigla stórum skipum inn að viðlegu­kanti sem er innar í Klepps­víkinni.

Faxa­flóahafnir, sem áttu fulltrúa í starfs­hópnum, höfðu áður lýst hugmyndinni um lágbrú á þessum stað sem „rothöggi“ fyrir starfsemi Sunda­hafnar.

Tæplega 30 milljarðar í Sundabrú eina og sér

Þessi brú yrði mikið mannvirki, sem endur­speglast í kostnaðar­tölunum sem settar eru fram í skýrslu starfs­hópsins, en brúin ein og sér er verðmetin á 29,5 milljarða króna. Áætlað er að fullbúnar tengingar við Sæbraut kosti 6,8 milljarða og að tengingar í Gufunesi við Borgaveg og Hallsveg kosti 7,5 milljarða króna.

Heildar­kostnaðurinn við þverun Klepps­víkur er því metinn 43,7 milljarðar króna og við það bætist kostnaður við leiðina á milli Gufuness og Kjalarness, sem áætlaður er að verði 25 milljarðar. Kostnaður við Sunda­braut með brúar­leiðinni er því áætlaður 69 milljarðar í heild.

Gengið er út frá því að brúin verði í heildina 26 metra breið. Gert er ráð fyrir fjórum akreinum fyrir bíla á brúnni eða tveimur í hvora átt og svo 5,7 metra breiðum göngu- og hjólastíg, en það var einmitt talið Sundabrú til tekna umfram Sundagöng í mati starfs­hópsins að þar gætu allir ferða­mátar farið um.

Vert er þó að taka fram að báðir kostir þóttu raunhæfir, að mati starfs­hópsins, en jarðganga­leiðin er metin um 14 milljörðum dýrari.

Samskip telur að lengja þurfi Vogabakka áður en nokkuð er gert varðandi Sundabrú

Fram kemur í skýrslu starfs­hópsins að tillagan að Sundabrú sem hér er fjallað um hafi verið kynnt helstu hagsmuna­aðilum við Sundahöfn. Ekki hafi verið gerðar verulegar athuga­semdir við útfærslunar, nema efnislegar athuga­semdir sem komu frá Samskipum.

Í skýrslu starfs­hópsins má lesa að Samskip telur að nauðsynlegt sé að lengja Vogabakka til norðurs áður en framkvæmdir við Sundabrú hefjast. Að öðrum kosti telur fyrir­tækið að starfsemi þess muni svo gott sem stöðvast á framkvæmda­tímanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sundabraut

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár