BDSM-félagið fagnar því að loksins eigi að afnema klámbann

Tveir þingmenn Pírata lögðu fram frumvarp í haust þar sem þeir mælast til þess að bann við dreifingu á klámi verði afnumið. Flestar umsagnir um frum­varpið eru neikvæðar en BDSM-félagið er himin­lifandi með það.

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Björn Leví Gunnarsson eru flutningsmenn frumvarpsins.
Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir og Björn Leví Gunn­ars­son eru flutn­ings­menn frum­varps­ins. Mynd: Samsett

„Við í félaginu BDSM á Íslandi fögnum því að loksins standi til að afnema lög um bann við birtingu og dreifingu á klámi úr íslenskum lagabálki.“

Þetta kemur fram í umsögn félagsins, sem er hagsmuna­félag BDSM-fólks hérlendis, um frumvarp tveggja þingmanna Pírata, Arndísar Önnu Kristínar­dóttur Gunnars­dóttur og Björns Leví Gunnars­sonar, sem leggur til að refsiheimild vegna birtingar, innflutnings, sölu útbýtingar og annars konar dreifingar á klámi verði felld út.

Íslensk lög um klám hafa staðið óbreytt í 153 ár. Í greinar­gerð sem fylgir frum­varpinu segja flutnings­menn þess að á sama tíma hafi viðhorf til kynlífs, umræða um það, kynhegðun og kynfrelsi breyst mikið.

Margir glímt við djúpa sjálfsskömm

Í umsögn BDSM-félagsins segir að meðlimir þess hafi mörg hver glímt við djúpa sjálfs­skömm vegna eigin kennda og langana. „Skömm sem verður til við það að alast upp í samfélagi sem lokar augunum fyrir fjöl­breytileika mannlegrar kynverundar og rígheldur í úrelt viðhorf um kynferðisleg samskipti, til dæmis forneskjulegar hugmyndir um kynferðis­legan “hrein­leika” kvenna, upphafningu hjóna­bands eins karls og einnar konu umfram öll önnur kynferðisleg sambands­form, og ýmsar kreddur um hvað sé og hvað sé ekki “eðlilegt” kynlíf.“

BDSM-hneigðir séu aldrei ræddar nema á neikvæðan hátt eða í háði og þegar verið sé að ræða klám og skaðleg áhrif þess séu kynferðis­athafnir þeirra sem slíkt kynlíf stunda gjarnan taldar upp sem dæmi um svokallað ofbeldis­klám. „Það fylgir aldrei sögunni að til sé fólk sem hafi virkilega unun af þessum athöfnum og að mögulega sé umrætt myndefni því ekki að sýna ofbeldi, heldur samþykkta skynjunar­leiki.“

Núgildandi lög eru að mati BDSM-félagsins algjör­lega gagnslaus og í raun skaðleg, frekar en hitt, þar sem þau ýti undir jaðar­setningu kynlífs­verkafólks og takmarki möguleika þeirra til þess að afla sér lífs­viðurværis á öruggan og löglegan hátt. „Það hlýtur auk þess að teljast ótækt að ætla sér að banna eitthvað mannlegt athæfi án þess að það sé skilmerki­lega skilgreint og afmarkað en slík er einmitt raunin í núgildandi lögum, þar sem engin nothæf skilgreining er sett fram. Þar sem skilgreiningin á því hvað falli undir þessi lög er algjör­lega huglæg, setur það kynfræðara í þá stöðu að vera hugsanlega gerð brotleg við þau með því einu að dreifa fræðslu­efni. Það má einnig benda á að netsíur sem ætlað er að sía út klám, flokka almennt allt BDSM-fræðslu­efni sem klám. Ef stuðst er við þá skilgreiningu eru BDSM-fræðendur gerð brotleg við þessi lög og þar með verið að útiloka virkilega mikilvæga fræðslu um samþykki og mörk.“

Flestar umsagnir neikvæðar

Alls hafa níu umsagnir borist um frum­varpið. Flestar eru þær neikvæðar og mæla gegn því að bann verði afnumið. Í umsögn Stígamóta segir til dæmis að klám sé í raun stór ógn við lýðheilsu og jafnrétti. Barna­heill telja að það sé ekki gagnlegt að afnema bann við klámi öðruvísi en að gera aðrar ráðstafanir til að takmarka aðgengi barna að klámi í lögum. Mann­réttinda­skrifstofa Íslands er einnig andvíg frum­varpinu og segir í umsögn sinni að klám sé í raun ekki annað en myndað vændi og það að vera myndaður í kynferðis­legum athöfnum við klám­framleiðslu sé kynferðis­ofbeldi á sama hátt og vændi. Kven­réttinda­félag Íslands er á svipuðum slóðum, er ósammála því að öll refsiheimild er tengist klámi verði afnumin og hvetur stjórn­völd til að hafna frum­varpinu í heild sinni. Í umsögn þess segir að rann­sóknir hafi sýnt fram á hvernig kynferðisleg áreitni og misnotkun byggð á klámi geti tengst vændi og mansali.

BDSM-félagið fjallar um athuga­semdir sem þessar í sinni umsögn, og aðrar sem settar eru fram með þeim rökum að það verði að hafa einhver lög um klám til að sporna við ýmsum samfélags­meinum sem tengjast því, til að mynda barna­klámi og mansali. „Það eru nú þegar lög í landinu sem banna fólki alfarið að beita börn ofbeldi eða gera þau útsett fyrir kynferðis­legum athöfnum, sem og lög um frelsis­sviptingar og hverskyns nauðungar­vinnu. Myndefni sem sýnir slík lögbrot er orðið eitthvað annað og alvarlegra en klám og þar með er hægt að fella fram­leiðslu og birtingu á slíku undir önnur, betur afmarkaðri lög.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár