Viðspyrnan hröð hjá konum en ungir og erlendir sitja eftir

Þrátt fyrir að atvinnu­þátttaka sé nú svipuð og hún var í síðustu uppsveiflu hefur samsetning vinnu­markaðarins tekið miklum breytingum á síðustu árum. Á meðan störfum kvenna hefur fjölgað hratt hafa aðrir þjóð­félagshópar ekki náð sér að fullu.

Heildar­atvinnu­þátttaka er nú á svipuðum stað og hún var við lok síðustu efnahags­uppsveiflu árið 2019. Hins vegar hefur staða ungs fólks og innflytjenda á vinnu­markaði versnað, á meðan atvinnu­þátttaka kvenna hefur aukist. Þetta kemur fram í vinnu­markaðs­tölum Hagstofu og tölum frá Vinnumála­stofnun.

Meiri áhrif á konur, innflytjendur og unga

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður hefur heims­faraldurinn haft ójöfn áhrif á mismun­andi þjóð­félagshópa á vinnu­markaði. Þannig fækkaði starfandi innflytjendum um 18 prósent frá árinu 2019 þegar verst lét, á meðan störfum innfæddra fækkaði ekki um meira en sex prósent á sama tíma.

Svipuð áhrif mátti gæta á milli kynja og aldurs­hópa. Í faraldrinum fækkaði störfum kvenna en störfum karla, auk þess sem fólk undir 25 ára aldri var mun líklegra til að hætta í vinnunni sinni eða vera sagt upp heldur en aðrir aldurs­hópar.

Á síðasta ári tók störfum yngsta aldurs­hópsins svo aftur að fjölga, en með því jókst hlutfall þeirra sem voru starfandi úr 61 prósenti og 67 prósentum. Þetta er þó mun lægra hlutfall en árið 2019, þegar rúmlega 70 prósent fólks á aldrinum 16-25 ára var starfandi.

Staða innflytjenda á vinnu­markaði batnaði einnig töluvert í fyrra eftir því sem efnahagsleg áhrif faraldursins minnkuðu, en starfandi innflytjendur í desember voru orðnir jafnmargir og þeir voru á milli áranna 2019 og 2020. Hins vegar hefur atvinnu­lausum innflytjendum ekki fækkað, en samkvæmt tölum frá Vinnumála­stofnun eru rúmlega fjórir af hverjum tíu á atvinnu­leysis­skrá innflytjendur og hefur það hlutfall aldrei verið jafnhátt.

Aðra sögu er hins vegar að segja um konur á vinnu­markaði, en staða þeirra gjör­breyttist á síðasta ári. Líkt og sést á mynd hér að ofan nær helmingaðist atvinnu­leysi kvenna í fyrra, þar sem það fór úr tæpum átta prósentum niður í 4,5 prósent. Á síðari hluta ársins hefur atvinnu­leysi kvenna svo verið minna en atvinnu­leysi karla, sem hefur verið tiltölu­lega óbreytt í rúmum fimm prósentum.

Sömuleiðis hefur starfandi konum fjölgað töluvert hraðar en starfandi körlum. Samhliða því hefur atvinnu­þátttaka kvenna aukist, en hún mælist nú í tæpum 76 prósentum, sem er meira en hún var árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár